Spegillinn - 01.05.1965, Side 18

Spegillinn - 01.05.1965, Side 18
RUSLA Rykfrakki tekinn traustataki. Sá, sem tók frakkann minn í Valhöll á Þingvöllum s.l. laugardag og hefur bersýni- lega notað hann sem tjald yfir sig og fjölskylduna, um helgina, - hér með vinsam- lega beðinn um að gjöra svo vel og skila honum til mín nú þegar, því að mig vantai hann illilega, þegar -ignir næst. Reinhard Lárusson. Augl. í Mbl. 5. maí. P. s.: Spegillinn vonar að Reinhard fái frakkann sinn, því r. ð þvílíkir frakkar fást ekki á hverju strái. * Fræðsla um lykla og lása Það er kunnara en frá þurfi að segja ..v'\'!:ir bölvaðir klaufar íslenzkir innbrotsþjóf- 'T eru. Þeir bera varla annað ið en að brj6+* rúðu og skríða rr >»>n. Erlendis eru innbrotsþjófar miklir sriillingar að dirka upp lása og smíða þjófalykla. Er þessi fákunnátta í íslenzkri þjófastétt til stórrar hneisu. Fyrir skömmu reyndi merk- ur félagsskapur, Germanía, að bæta úr /anþekkingu á þess- um tækjum með því að sýna kvikmynd um lása og lykla. öllum var heimill aðgangur, börnum, þó einungis í fylgd með fullorðnum. Er þess nú beðið með óþreyju, hvort fræðsla þessi ber árangur. * Greiöasemi í Dagbók Morgunblaðsins 13. apríl s.l. birtist ágæt mynd af Bismark sáluga með eigin- handaráritun járnkanslarans. Er myndin í eigu konu nokk- urrar hér á landi. í stuttu greinarkorni, sem fylgir, stend- ur þessi setning: „Mér voru sagðar tvær skemmtilegar sög- ur af Bismark í Ieiðinni af kon- unni, sem á my Jina“. Það er naumast, að konan hefur gert vel við blaðamann- inn! Heiðingjatrúboð Kristnir menn á vegum bandarískra í Keflavík suður auglýsa öðru hverju trúboðs- fundi þar syðra. Er auglýsing- in aðallega stíluð upp á ís- lenzku lögregluþjónana þama suðurfrá, þ. e. a. s. þeir eru sér- staklega velkomnir. Mætti eft- ir þessu álíta að framkoma lögregluþjónanna sé ekki sér- lega kristileg í augum vemd- ara okkar. Væntum vér þess að auglýsendum verði veru- lega ágengt í trúboði sínu Hvernig væri annars að taka upp -.ora lögreglutrúboð í Reykjavík? Gylfi og sálfræðingarnir Fyrir nokkru skrifaði Ólaf- ur Gunnarsson, sálfræðingur borgarinnar, blaðagrein undir fyrirsögninni: „Truflar starfs- fræðsian tilfinningalíf mennta- málaráðherrans?“ Trúlega felst nokkur sann- leikur að baki þessara orða, og 'r Gylfi þá ekki fyrsti mað- urinn, sem Ólafur fer I taug- arnar á. * Pólitízkur magaverkur Að pví er Gluggi Alþýðu- blaðsins segir oss, á þýzki toppkratinn Willy Brandt að hafa sagt viö brezka toppkrat- ann Harold Wilson: — Ríkisstjómi á að starfa eins og ^ginn í manni. Ef hann starfar rétt, hefur maður ekki hugmynd um, að hann sé til. Sæl er sú þjóð, sem hefur slíka ríkisstjóm. — Á voru Iandi verka flestar ríkisstjóm- ir ekki einungis sem stöðugur magaverkur, heldur og sem höfuðverkur og fótaveiki. 18 Spegillinn

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.