Spegillinn - 01.05.1965, Page 13

Spegillinn - 01.05.1965, Page 13
Helgu og hún ljómaði. Og samkvæmt upplýsingum Róberts um aldur þeirra beggja, hlýtur manneskjan að vera komi- in um eða yfir fimmtugt! Skyldi þær allar vera svona fýrugar á þeim aldri? Ef svo er, finnst mér að ætti að banna eiginkonum undir fimmtugu að sjá leik- ritið. Svo fór hún hreinlega með hann fram, og líklega bara upp á loft. Ég gat ekki á mér setið að spyrja sessunauta mína: »Hvað ætli þau Helga og Gísli séu að gera svona lengi frammi? Eru þau kannski að þvo upp?“ En aftur þrumaði Sigurður: „Silen- cium,“ og Ólafur hvæsti: „Þegiðu, skurra!“ (Scurra ku vera latína og þýða fífl). Þegar leik'itinu lauk skildi ég hvorki upp né niður í því c j eftir að ég var búin nað lesa le.' .dóma þeirra Sigurðar og Ólafs, ski :i ég ennþá minna. Ég held bara, þó að það sé kannski ljótt að segja það, að þeir hafi skilið jafnvel ennþá minna en ég! Ég var mætt_r uppi í Stjórnarráði klukkan 10 daginn eftir. Dómsmála- ráðherra var nýlega kominn. Hann var dálítið þrútinn og rauðeygður. „Jæja, hvernig gekk með blómstur- pottana, Jóhann minn?‘ ‘spurði ég með samúð. „O, minnztu ekki á það!“ hnussaði ráðherrann reiður. „Bölvaðir gaurarnir, hann Ingólfur á Hellu og Guðmundur í., stóðu allan tímann fyrir framan bezta blómapottinn og pexuðu upp á grín um uPPbætur á smjör. Og fjórar spikfeitar þingmannafrúr úr öllum flokkum byrgðu þann næstbezta.“ „Svo að þú hefur orðið að skála í botn fyrir Marx, Lenín og byltingunni?“ „ Já, og Breshnjeff og Kosangas og einhverjum fleiri Rússafurtum. Helvítis- helvíti." „Gáðu að munninum á þér, maður! Þú ert kirkjumálaráðherra." „O, étt ’ann sjálfur," svaraði ráðherr- ann snefsinn. Svo gáðum við vandlega að þvl, hvort nokkur lægi á hleri, hölluðum okkur svo fram á skrifborðið sitt hvorum megin, °8 ég sagði, í hálfum hljóðum það mergjaðasta úr stykkinu. Ráðherrann var strax mjög spenntur og sagði æ á- kafari: „Og hvað svo?“ Einu sinni gleymdi hann sér alveg, þegar ég hafði eftir allkröftug orðaskipti. Hann rak upp hafsteinskan tröllahlátur og hróp- aði: „Helvíti var þetta sniðugt!“ En hann áttaði sig strax, hleypti I brýnnar og sagði þykkjuþungur: .Bölvaður skandali er þetta.“ Þegar skýrslu minni var lokið, hugs- aði ráðherrann sig um stundarkorn, og sagði svo: „Já, Faraldur, ætli maður verði ekki að banna þennan óþverra af siðferðisástæðum . . . Hverjir sagðirðu annars, að færu með aðalhlutverkin?" „Hann Róbert Attfinnsson leikur eig- inmanninn.“ „Já, einmitt. Við eigum ekkert vand- gert við þann mann.“ ,, En kannski er það nú samt hún Helga Valtýsdóttir, sem fer með aðal- hlutverkið og dregur ekki af sér.“ „Ha, hvað segirðu?' ‘spurði ráðherr- ann og varð hálf hvumsa við. „Hún Helga Valtýsdóttir? ... Humm ... humm ... hum.a .. .£ .n sagt Morgunblaðið og Árvakur h.f.“ Nú hugsaði ráðherrann sig um stimd- arkorn. Svo tók hann ákvörðun: „Ætll við látum það ekki laxera. Lofum þeim að hunzkast við að sýna svínaríið. Þjóð- in vill það hvort sem er. En það er nú samt rétt að líta vel eftir þessum leik- húsum. Og ég þakka þér fyrir athuganir þínar, Faraldur minn. Sé það við þlg 1 einhverju seinna.“ Við kvöddumst með virktum, og ég bakkaði fruktandi út úr ráðherraskrif- stofunni. Svo fór ég beint í morgunkaffi á Skálanum til að hressa mig á sam- ræðum við Hauk Björnsson, Agnar Þórðarson, Berg Pálsson, Jóa Steina, Atla Ólafsson og fleiri góða menn. Það var ólíkt upp’ -gilegra en helvítið hún Virginía Volf. Yðar einlægur . ; - E,. Faraldur. SPORTVÖRUR LilKFÖNG HVERFISGÖTU 59 — SÍMI 18722 — SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT Spegillinn 13

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.