Spegillinn - 01.05.1965, Qupperneq 20
EÐ OÐRUM
ORÐUM...
ilm bafís,
bjarndýraöskur
og fleira
Napurt er um norðurvastir,
nesin lykja ísarastir,
sigling engin er um sinn,
yfir Sléttu svífur svaiinn,
Sandinn, Tjörnes, Aðaldalinn,
Axarfjörð og Köldukinn.
Rirst með „landsins forna fjanda“
flokkur dýra, allra handa,
rosmhvalir og rauðkinnar.
Austanmönnum ekki bregður,
áður sáust skrímsl og flegður
ferlegar, í fjörum þar.
Þó mun eigi þóknast mönnum
þegar berst frá ísahrönnum
bjarndýrsröddin, rám og hrjúf,
hver við alla sönglist sanna,
svo og kveðskap snillinganna,
hiýtur mjög að stinga í stúf.
Aftur burtu ísnum þokar,
engin hindrun framar Iokar
siglingum um sævarslóð.
Aftur kveðast ljóð í landi,
laus við þesai hrollvekjandi
utansýslu aukahijðð.
Balli.
Fyrir nokkru urðu talsverðar umræður
(í fúlustu alvöru) um að banna með öllu
auglýsingar á tóbaki, þeirri skaðræðis-
vöru. Sumar auglýsingarnar 'hafa meira
að segja verið svo ósvífnar, að sýna fall-
ega (stundum afarfallega) stúlkukind
með sígarettu, en það segir sig sjálft, að
einmitt slíkar auglýsingar ýfa upp í
mönnum löngunina — til að reykja.
(Spegillinn hefur aldrei farið út í það að
birta svoleiðis auglýsingar). Þess er því
krafizt, að tóbaksauglýsingar séu bann-
aðar með öllu.
Og þar sem Spegillinn er á því, að
okkur vanti ýmis bönn í viðbót, þá er
tilvalið að banna ýmsilegt annað. T. d.
varð okkur litið í útstillingargluggann hjá
K. Ó. Skagfjörð og Steinvör um daginn,
og sjáum vér ekki einmitt þar heilan
djöfuldóm af alls konar köðlum og tóum
f öllum regnbogans litum og gerðum
t. d. úr nýmóðins nælon og terelín. Hugs-
ið ykkur bara, hversu margi. gætu hengt
sig í öllu þessu tóverki. Svona útstilling-
ar ætti að banna með öllu, a. m. k. 1
slíku árferði eins og núna, og alls ekki
að leyfa að stilla út sverari spottum en
öngultaumum. önglar yrðu hins vegar á
bannlista, því að á þeim geta menn stung
ið sig.
T. d. yrði að etja mjög alvarlega ofan
í við Óttar Ellingsen og harðbanna hon-
um að stilla út hausningnrsveðjum og
flatningshnífum, því að allt slíkt er skað-
ræðisvopn. Sagir og sagarblöð eru í sama
skalla. Það er algjört lágmark, að verzl.
O. Ellingsen fái sér rúllugardínur, sem
séu óspart notaðar, á meðan slíkar skað-
ræðisvörur eru til sölu hafðar, og sýnis
glámskyggn’ i og illa gerðum almenn-
ingi.
Ekki tekur betra við, þegar manni
verður ráfað upp í bæinn, og kíkir í
gluggann hjá þessum frístundabúðum.
Sér maður ekki einmitt tjöld, svefnpoka
o. fl. slíkar svokallaðar sportvörur. Hefur
ekki einmitt fjöltíi manns snúið sig I
ökla og lappabrotið sig í alls konar
fjallapríli, og hversu margir hafa ekki
einmitt orðið innkulsa og fengið kvef af
að sofa í svefnpoka. Og stúlkum hefur
einmitt orðið h; tt við að fá þar að auki
blöðrubólgu undir sömu kringumstæð-
um.
Vér hyggjumst hafa bent mönnum á
voðann með þessum dæmum, en til þess
eru vítin að varast þau, og sannleikur-
inn er sá, að með góðum vilja má finna
eitthvað stórhættulegt og siðspillandi í
hverjum einasta útstillingarglugga. Og
það leggjum vér til að menn geri. Upp-
rætið ósómann hvar sem hann fyrir-
finnst, og finnið hann þar sem hann er
ekki.
Tobbi.
Simar: 21611 - 21612
20 SpegilHnw