Spegillinn - 01.05.1965, Blaðsíða 27

Spegillinn - 01.05.1965, Blaðsíða 27
allt bærilegt, þegar ég leit inn til hans, til að fá páskasnyrtinguna á höfuðið. — Er ekki mikið að gera fyrir hátíð- ina? sagði ég og reyndi að hræsna upp í mér áhuga á rakarastarfinu. — Biddu fyrir þér, maður, það er búin að vera stanzlaus ös hjá mér alla vikuna; þú hittir svei mér vel á; ef þú hefðir ver- ið svo sem hálftíma seinna á ferðinni, hefði allt verið orðið fullt, ef að vanda lætur - - - - Og ég mátti þakka fyrir, ef ég hefði sloppið út fyrir páskana, skaut ég inn í. - Já, ég skal segja þér, að þótt það sé náttúrlega gott að hafa nóg að gera, þá liggur við að ég vorkenni stundum þeim, sem þurfa að bíða lengst, kannski allt að hálfum öðrum tíma; þeim er sum- um farið að hundleiðast svo, að þeir reyna jafnvel að drepa tímann með því að glugga í rifrildin af Samtíðinni síðan í hittiðfyrra og fjölskyldujornúalinum frá því í haust. — Það kemur sér vel, að kúnnarnir þínir hafa ekki alltof mikið að gera, sum- ir hverjir, sagði ég. — Það segirðu satt ,og eiginlega veit ég ekki ennþá, hvað sumir þeirra gera, þótt ég sé búinn að klippa þá í mörg ár. En beztu kúnnana á maður nú í hópi al- þekktra athafnamanna, verzlunarmanna, sjómanna og iðnaðarmanna, já og al- þingismanna, það eru stabílir og góðir kúnnar. Til dæmis klippti ég flutnings- ruenn minkafrumvarpsins áður en þeir *rúru það fram á þingi. Jónas minn Pét- Ursson var orðinn ansi loðinn, enda ekki rakarar á hverju strái austur í Héraði; nafni hans, Rafnar, og Pétur minn seil- or, komu nú, held ég, mest til mála- mynda. Sennilega hafa þeir viljað halda hópinn vegna frumvarpsins. - Þeir hafa auðvitað ekki viljað líta út eins og loðdýr sjálfir, þegar þeir lögðu frumvarpið fram, sagði ég. - Trúlega ekki; en varla held ég nú, að borgaði sig að fást við loðdýrarækt, ef hvert dýr skilaði ekki meiri hagnaði tiltölulega í þjóðarbúið en þingmennirnir okkar svona yfirleitt, þótt þeir séu hins vegar góðir kúnnar. Annars kvíði ég hálft í hvoru fyrir því að fá Stóriðju- nefndina hingað, eftir að hún fer að vas- ast í kísilgúrnum, það kvað vera svodd- an fýla af honum. - O, þú úðar hana bara með þeim mun kraftmeira ilmvatni og þakkar fyrir, ef hún verður ekki alumineruð líka, sagði ég. - Rétt segirðu; verst hvað ilmvötnin eru dýr; mann óar stundum við að sulla þeim í hvaða lubbatrúss sem er, auk þess verð ég að leggja höfuðáherzlu á ódýran og hagkvæman rekstur á næstunni, til að rétta mig við. — Þú hefur náttúrlega fengið óþyrmi- lega að kenna á skattpíningunni, umlaði ég, án þess að þora að opna munninn neitt að ráði; ég vidli ógjarnan fá upp í mig hár af mínu eigin höfði. - Ja, bæði er það nú, og svo álpaðist ég á málverkauppboð hjá honum Sigurði Ben um daginn og keypti þrjátíu ára gamla Kjarvalsmynd á fjörutíu þúsund krónur. Það kemur við pyngjuna að snara út þó ekki sé nema fjörutíu þús- und kalli. Kjarval er náttúrlega alltaf Kjarval og hraunmosi er alltaf hraun- mosi, en hitt er öllu verra, að ég kem myndinni hvergi fyrir í íbúðinni. — Er hún svona stór? skaut ég inn í. - Ekki vil ég segja það, að myndin sé of stór, hún mun vera eins og hún á að vera; hins vegar misminnti mig um veggjastærðina í stofunni hjá mér, en það er auðvitað ekki myndarinnar sök. — Þú færð þér bara stærri íbúð, taut- aði ég. - Fimmtíu krónur, takk, sagði rak- arinn minn og tók hvíta lakið af mér með æfðum handtökum. LAUSIR STÓLAR Enn hefur ekki tekizt að ráða í stól bankastjóra við Seðlabanka Islands. Er því enn ítrekuð auglýsing vor og skorað hér með á alla viðreisnarunnendur að gefa kost á sér. Æskilegt er, að væntanlegt bankastjóraefni sé ekki ráðríkur (vegna hinna, sem fyrir eru). Nýlega keypt myntsafn myndi heyra undir hinn þriðja banka- stjórastól, svo að auk annarra mannkosta þyrfti væntanlegur umsækjandi að hafa vit og lag á að fara með peninga, og ekki sízt gamla peninga. Fornleifafræðingar og brotajámskaupmenn koma því fyllilega til greina sem bankastjórar, í þessu tilfelli. Ennfremur skal athygli vakin á því, að hér er um hentuga at- vinnu að ræða fyrir húsmóður, sem vantar hæga vinnu úti hálf- an daginn. Landvættir LÉTT RENNUR CEREBOS SALT

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.