Spegillinn - 01.04.1967, Blaðsíða 4

Spegillinn - 01.04.1967, Blaðsíða 4
Alþýðubandalags- hrellingar Mono: Kalt er við kórbak, kúrir þar Jón hrak. Ýtar snúa austur og vestur, alíir nema Jón hrak. Hryggir í huga eru Hannibalistar, þeim öllum er vísað til útlegðarvistar. Sorg er hjó kvikfé Selórdals, harmar það örlög Hannibals. Or flokknum Alfreð öfugur hrökk eftir hastarleg heljarstökk. Geðlækninum gekk það stirt að lækna kommanna lið — viti firrt. Hótt er ei risið ó Hannibalssonum. því Bandalagið bróst þeirra vonum. En menningarbylting Maós hins rauða nær gegnum Austra til íslenzkra sauða. Ungir Varðliðar æfa kóra til að magna og hylla Manga hinn stóra. Og blessunin rauða fró Kína og Kúbu, blandast þar saman í banvæna súpu. Listinn var saminn í logandi flaustri, í sæti Einars er setztur Austri. Hinum eru skammtaðar roð og ruður, en atkvæðin riðlast út og suður. 4 Spegillinn GENERAL GRÖNDAL Austri kollega skýrir svo fró: „Fyrir nokkrum árum var Benedikt Gröndal gerður að heiðursforingja í bandaríska flughernum í ánægju- legu samkvæmi á Keflavíkurflugvelli. Skyldi hann nú hyggja á hliðstæð metorð austantjalds?“ Þessari frétt hefur oft lítið verið á loft haldið. En vér skorum á Gröndal að koma fram á kosningafundi í vor í fullum generálsdressi, ekki hvað sízt í sjónvarp- inu. En Kratarnir girnast þá glötuðu syni, og kalla þá aftur elsku vini! V es t ri.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.