Spegillinn - 01.04.1967, Page 11

Spegillinn - 01.04.1967, Page 11
Glötuðu synirnir megu snúu heim Jón Þorsteinsson, þingmað- ur krata lýsti því fjálglega yfir á eldhúsdegi, að allir þeir Al- þýðuflokksmenn, sem villzt hefðu yfir til Alþýðubanda- lagsins á undanförnum árum, væru innilega velkomnir í sinn gamla fiokk aftur. Minnir þetta mjög á dæmi- söguna um glataða soninn og göfuglynda föðurinn, og er ekki að efa að Emil lætur slátra alikálfinum þegar þeir Hannibal og Alfreð koma iðr- unarfullir til fornra föður- húsa, eftir að hafa etið draf með svínurn. „HVAÐ A BARNIÐ AÐ HEITA'? Hið virðulega kaffisölufirma O. Johnson & Kaaber á nú við miklar aðventuraunir að stríða — er í vandræðum með að skira nýja kaffiblöndu, sem kölluð liefur verið „Vacuumpakkað“ kaffi. Þetta nafn hefur farið mjög 1 fínu taugarnar á málmvöndun- arpostulum. Fyrirtækið segir sjálft frá vandræðum sínum í blaðagrein: „Leitað var til færustu mál- vísindasérfræðinga Háskólans, °g ennfremur til annara tækni- legra málsmekksmanna. En eng- in viðunandi lausn fannst. Til leiðbeiningar vildum við benda á að orðum og orðasam- böndum, eins og þeim sem hér fara á eftir, hefur nú þegar ver- ið hafnað, sem ónothæfum. 1. Lofttómspakkað. 2. Pakkað með lofttæmingar- aðferð. 3. Loftdregið. 4. Loftsogspakkað. 5. Lofttæmingarpakkað. Fleiri tillögur gætum við nefnt, en gerum það ekki, vegna þess hvað þær eru fjarstæðu- kenndar. Já, ekki er gaman að guðspjöll- unum! Spegillinn skipaði þegar í stað málvísindanefnd, og hún leysti vandann fljótlega, og fann það rétta mest viðeigandi heiti á kaffiglundrinu og umbúðum þess. Nefndin leggur til að kaff- ið verði kallað einfaldlega: — TÓMAS. ÞRALATUR DAUÐI Blöð hafa að undanförnu klif- að mjög á því sem hverri ann- arri rosafregn, að rússneskum læknum hafi tekizt að lífga manngarm nokkurn eigi sjaldn- ar en 35 sinnum, og á hann að hafa verið steindauður á milli. En eftir alla þessa meðferð ku maðurinn vera lifandi enn. Það eitt þykir oss fréttnæmt við þetta, að Rússar skuli hafa lagt þessa fyrirhöfn á sig við að halda lífi í manninum. Þeir eru þekktari fyrir það, að kála mönnum, og hafa þá sízt áhuga á því að lífga þá. Annars finnst okkur þetta lít- il tíðindi. Vér höfum þekkt menn, sem dáið hafa tvisvar þrisvar á dag mánuðum saman og alltaf verið llfgaðir aftur ým- ist á Arnarhóli, Kjallaranum eða Súðumúla og þótti engum mikið. Heildsölubirgðir: Kristjón Ó. Skagfjörð S p e g i 11 i n n 1T

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.