Spegillinn - 01.04.1967, Síða 25

Spegillinn - 01.04.1967, Síða 25
FINNBJORG Á FARTINNI VASAST í PÓLITÍK Ég var rétt að byrja að kynna mér hvað hæft væri í fregnunum um óháða framboðið í Reykjavík og á Suðurnesj- um, búin að gera tilraun til að pumpa Aka Jak. og fleiri óánægða utanveltu- gemsa í pólitíkinni, en þeir vörðust allra frétta. Áki var að vísu hinn kotroskn- asti og taldi, að ekki spillti að sýna þess- um flokksklafapiltum í tvo heimana með óháðu framboði, það væri jafngott þótt stjórnarstefnan fengi dálítinn skell. -— Þú ætlar ekki að launa Krötunum vel hvað þeir tóku elskulega á rnóti þér, þegar þig bar á fjörur þeirra sem póli- tízkan flóttamann úr kommaherbúðun- um, Áki minn, sagðí ég. -— Mér hafa alltaf heldur leiðst Krat- amir, þótt ég væri í slagtogi við þá um tíma, sagði Áki og glotti kalt. Þá hafði ég tal af fáeinum útvegs- mönnum og óánægðum Jósafats-vinum, en þeir þorðu fjandakornið ekkert að segja. En ég var sem sé rétt að byrja á þessurn eftirgrennslunum, þegar Landsfundur Sjálfstæðismanna hófst, og ég eins og þota þangað. Bjami minn blessaður var einmitt í miðri ræðu, þeg- ar ég kom, og hafði auðsjáanlega lýst skynsamlegri og vellukkaðri stjórnar- stefnu af miklum fjálgleik, því að Lands- fundarfulltrúar göptu bókstaflega upp til hópa af hrifningu, og jafnvel útgerð- armennirnir virtust hafa gleymt í bili að þeir voru í þann veginn að rúlla yfir, þegar þeir fóru að heiman, og iðn- rekendurnir, sem fundinn sátu, voru farnir að ímynda sér, að þessir eilífu greiðsluerfiðleikar þeirra væm úr sög- unni, eða hefðu jafnvel aldrei verið neinir. Svo lauk Bjami formaður máli sínu, og var þá gefið smá fundarhlé, til þess að fulltrúunum gæfist kostur á að ræða saman, áður en sæluvíman, sem rann á þá undir ræðu formannsins, rynni af þeim. Ég sætti þá færi að ná tali af nokkmm fulltrúum utan af landsbyggðinni. Fyrst náði ég tali af einum norðan-fulltrúa, skikkelsismanni. — Sæll vertu, og hvað er títt úr þínu byggðarlagi, sagði ég hressilega. Mann- tctrið virti mig fyrir sér, eins og hann væri að reyna að sjá út, hvort ég væri kommaspæjari. —- O, takk fyrir, allt sæmilegt, sagði hann, svo varfæmislega. —- Nóg atvinna og kjör fólks dag- batnandi, er það ekki? spurði ég. Manntötrið leit í kringum sig, eins og til að sjá hvort nokkrir áhrifamenn væru að hlusta á okkur. — Blessuð vertu, það er engin at- vinna, og satt að segja farið að þrengja talsvert að hjá almenningi, hálfhvíslaði hann að mér. — Bærilega hefur stjórnarstefnan blessast þar, sagði ég og hjólaði strax í næsta fulltrúa. — Nei, sæll og blessaður og þakka þér fyrir síðast, sagði ég kumpánlega. Þessi fulltmi reyndist vera af Suður- nesjunum. — Sæl vertu, höfum við sézt áður?, sagði hann frernur þurr á manninn. — Við sáumst á síðasta Landsfundi, maður, sagði ég. S p e g i 11 i n n 25

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.