Spegillinn - 01.04.1972, Side 12

Spegillinn - 01.04.1972, Side 12
SMÁ AU GLÝSIN GAR Bráðum verður byrjað að framlengja brautina á Kefla- víkurvelli fyrir ísl. peninga. Febrúar-Einar. Bráðum þurfum við að fara að athuga, hvað eigi að gera í þessu með flugbrautina á Keflavíkurvelli. Marz-Einar. Herinn fer úr landi í áföng- um á þessu kjörtímabili. September-Einar. Nú á að fara að endurskoða varnarsamninginn og' at- huga, hvort herinn á ekki að fara. Október-Einar. Engin ákvörðun um brott- för varnarliðsins verður tek- in, fyrr en eftir úttekt er- lendra sérfræðinga á mál- inu. Nóvember-Einar. Engin ákvörðun um brott- för varnarliðsins verður heldur tekin, fyrr en alþingi hefur fjallað um málið. Desember-Einar. Herinn fer kannski úr landi í áföngum á þessu kjörtíma- bili, og er það þó ólíklegt. Marz-Einar. Getum ekki tekið við fleiri sjúklingum að sinni. Geðverndarfélagið. Verkalýðsfélög i launamáia- baráttu lærið af mér. Kynn- ið yður hinn stórbrotna ár- angur BSRB í nýafstaðinni launadeilu við ríkisstjórn- ina. T/r eftir eitt ár. Hver leikur það eftir? Kristján Thoidaunacius. Getum bætt við okkur fleiri varaþingmönnum. Góð laun. Stjórnarflokkarnir. Ársskýrsla okkar nefnist: „Pétur leynilögga gómar KókaKóla þjófana". Golfklúbbur Ness. Þeir sem hafa aflögu gamla báta, kofa, spýtur og fleira, sem gott er að nota í brennu- leik eru beðnir að hafa sam- band við undirritaðan. Okk- ur þykir of dýrt að láta strákana alltaf vera að brenna ofan af okkur sjálft Hraunið. Markús á Hrauninu. Tel fram fyrir fólk alla daga. Tryggi lægri skatta. Er hæf- asti skattskýrsluhöfundur landsins. Komið ítTjármála- ráðuneytið. Halldóre. Viljum ráða framkvæmda- stjóra fyrir væntanlegt skák- einvígi. Árni Gunnarsson kemur ekki til greina. Skáksambandið. Hef fengið tilboð um lekt- orsstöðu við Sundháskóla múrara í Svíþjóð. Ekkert Nei Þorsteinsson. ■ Stækkunargler til sölu. Alþýðublaðslesandinn. Hefur engum dottið i hug, að það hefðu verið fanga- verðirnir, sem gerðu það. Litla-Hraunsfangar. I am not lousy. Bernadetta. Ingólfur i Útsýn er hér með minntur á áminningu þá, sem hann fékk fyrir illt um- tal um mig. Guðni í Sunnu. Guðni í Sunnu er samt vondur. Ingólfur i Útsýn. Blaðaútgefendur. Hagnýtið yður góða þekkingu mina. Lesið greinar minar um, hvernig gefa eigi út blöð, sbr. Alþýðublaðið. Kristján Bersi. Starfsskýrsla okkar fyrir þetta ár kemur út á næst- unni og ber hún heitið ,,Fé- lagi kona“. Menntamálaráð Efnt verður til almennrar söngsamkomu í öllum útsöl- um áfengis- og tóbaksverzl- unar ríkisins, ef næg þátt- taka fæst. Verða þar sungin fjárlögin árið 1972. Halldórc Kaupum uppgjafa blað- snepla háu verði. Þurfa helzt að vera á hausnum. Tökum ennfremur að okkur vonlít- inn prentsmiðjurekstur og arðlitla útgáfustarfsemi. Eigendur Dagblaðsins Vísis. Get útvegað SAM i um- ræðuþætti og á mannamót. Óli grís. % 12

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.