Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1924, Blaðsíða 13

Stúdentablaðið - 01.12.1924, Blaðsíða 13
1924 STÚDENTABLAÐ Undan brekkunni. Lífið er fjallg'ang'a. Á unga aldri er mönnum greitt um sporið, en er stundir iíða, sjá þeir, að það er lengra á áfanga en þeir hugðu í fyrstu. þá er breytt um gang. Feðurnir gefa sonum sínum tak- markið. þeir reyna fyrst að koma þeim í hæð við sjálfa sig, svo er þeim skotið fram fyrir. þeir eiga að sækja í brattann og létta bvrðum af herðum þeirra eldri, þeg- ar þeim daprast gangan. — þjóðin heldur hópinn. Æfiskeið kynslóð- anna eru aðeins spor á leið hennar. þau liggja ýmist fram eða aftur, en þeir fremstu ráða stefnunni. En hvernig fer þjóðin að því, að velja og undirbúa þá menn, sem ætlaðir eru til að ráða auðnu hennar 1 framtíðinni, þá sem eiga að vera forverðir menningar og heilbrigði og troða fyrir henni brautina inn í ónumin vonalönd? þeir, sem nærri standa, þvkjast kunna skil á tvenns konar foringjaefnum. Sumir koma sjálfboðnir. það eru menn, sem njóta brautargengis ættingja og vina. Aðrir hafa engin fararefni nema góðan vilja og hæfileika á ýmsum stigum. þeir síðarnefndu verða annaðhvort að duga eða drenast, hinir þm’fa hvorki að duga nó drepast. þeir eru settir á peninga að- standenda sinna. Hina setur þjóðin á gaddinn. beir efnuðustu þurfa aldrei um annað að hugsa en námið: þeir fátækustu mega aldrei gefa sig alla við því. þá kallar sulturinn. T51 að seðja hann, verða þeir að o-e<rna annarleaum störfum allan ársins hring, eða leita á náðir annara, eins og örkumlamenn. Hið fvmefnda eyðir tfma oa kröftum, hið síðarnefnda sjálfstæði, kiarki og einurð, en hvorugt nægir til að hfa eins og leiðtogum sæmir. Flestir skrimta þó af, taka lögboðin nróf og ger- ast leiðtogar. En margir þeirra eru þá búnir að selja frumburðarrétt sinn, kjarn- ann úr sjálfum sér, fyrir mat, og verða fyr eða síðar fótakefli eða byrði á þjóð- inni. Oft er kvartað um það, að mentamenn séu of margir með þjóð vorri. það er mála sannast. þeir kroppa nú augun hver úr öðrum og þjóðinni. En góðir mentamenn eru of fáir. þjóðin kann ekki að ala sér höfðingja. það er of margt af vanmenn- um með embættisprófi, mönnum, sem eru orðnir að gagnslausum beygjum, af því að hafa lifað á horsnöpum alla sína skólatíð, og mönnum, sem hafa verið beygjur frá fæðingugen haldið til jafns við sér betri menn með fjárafla og heppilegra uppeldi. þjóðin spyr ekki eftir því, hvernig hún fái best hagnýtt sér krafta barna sinna, en einstaklingarnir kjósa helst þær stöð- ur, sem vænlegastar eru til að rýja þjóð- ina. þeir þurfa að gefa sér tóm og matfrið eftir sultarárin. þeir, sem ná völdum, fljúgast á um æti. Viðhorfið er breytt. þjóðin verður að bera foringja sína í stað þess að þeir létti henni gönguna. þjóðin aflar en þeir njóta. En á meðan gengur hún jöfnum skrefum undan brekkunni. Ól. Marteinsson. ----o----- Myndin á fyrstu síðu er hugsuð og teiknuð af Tryggva Magnússyni listmál- ara, Skólavörðustíg 88. Hann tekur að sér að teikna mynd.ir og auglýsingar. MENSA ACADEMICA mötuneyti stúdenta Lækjargötu 2, sfmi 1292 selur fæði fyrir sannvirði og venjulegar veitingar allan daginn. «illilllllllllllUII!U»

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.