Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1924, Blaðsíða 15

Stúdentablaðið - 01.12.1924, Blaðsíða 15
1924 STÚDENTABLAÐ 7 En hann hefir ekki látið hér við sitja. Tvær rausnargjafir hefir hann og frú hans, Katrín Skúladóttir, fært Læknadeild TTáskólans. Hina fyrri veturinn 1919, í minningu þess, að þá hafði hann í 25 ár haft kenslu á hendi. Var hún að upphæð 2500 krónur og skyldi vöxtum þeirra vera varið til að styrkja læknisfræðisnemendur til bóka- kaupa. Síðari gjöfina færði hann og frú hans Læknadeildinni árið 1922. Var hún að upp- hæð 50.000 krónur og hafa þau hjónin mælt svo fyrir, að með því skuli stofna sjóð, er heiti: ,,Minningarsjóður prófess- ors Guðmundar Magnússonar og konu lrans Katrínar Skúladóttur“. J)egar sjóður þessi er orðinn 100 þús. krónur, skal verja vöxtum hans til: 1. að styrkja ísl. kandídata í læknis- fræði eða ísl. lækna til undirbúnings undir kennaraembætti í læknisfræði við Lækna- deildina. 2. að styrkja og efla ísl. vísindastarf- semi. J)essa miklu rausn, sem sýnir, hve mikla umhyggju próf. Guðm. Magnússon bér fyrir Háskólanum og hinni íslensku læknastétt, finst oss háskólaborgurum skylt að þakka á þessum degi. Og þjóðin þakkar honum fyrir hans miklu læknisstörf og viðleitni til að skapa nýta og dugandi læknastétt í landinu. Sunnudaginn 28. þ. m., nokkrum dögum eftir að þessar línur hér á undan voru rit- aðar, barst sú óvænta sorgarfregn út um landið, að nú væri þessi ágæti merkismað- ur fallinn frá. Hversu mikils vér eigum þar á bak að sjá vita þeir best, er þektu próf. Guðmund mest. Og vér, sem höfum notið kenslu og leið- sagnar hans um lengri tíma, erum þakk- látir fyrir þær mörgu gleði- og lærdóms- ríku stundir, sem vér höfum haft hjá hon- um og umfram alt þökkum vér fyrir, að hafa fengið að kynnast öðrum eins manni og hann var. Minning hans er okkur dýrmæt og hana munum vér geyma og varðveita, svo lengi sem okkar nýtur við. ---o---- Nýjnm stúdentum faúnocV Ræða Lndv. Guðm. flutt í Iðnó 25. okt. 1924. Kæru nýju félagar og vinir! Mér finst eg hafa skyldur við alla, ykk- ur sem aðra, og eg gerði rangt, ef eg þegði nú og segði vkkur eigi frá þeirri dýr- keyptu, dýnnætu reynslu, sem eg hefi fengið á þeirri braut, sem þið haldið nú inn á. Og eg vil vera hreinskilinn við ykk- ur, eins og eg væri að tala við sj álfan mig, og segja það eitt, sem eg veit sannast og nöfugast. Vinir mínir! þið eruð frjálsir menn! þið njótið hins akademiska frelsis! En hvað er það? Er það frelsi til þess að lifa og njóta, eins og þau orð eru vanalega skilin? Er það frelsi tiT þess að fullnægja hverri fýsn og girnd, sem skýtur upp í huga vkkar? Er það frelsi til þess að „fljóta sofandi að feigðarósi"? Nei og aftur nei! — Hið akademiska frelsi er göfugur arfur — heilög gjöf til þin! þú ert frjáls! Hinn akademiski heim- ur stendur þér opinn. Lyklavöldin að öll- um hirslum hans eru fengin þér í hendur. þú ert frjáls að því að nota alt, sem hann á, til þess að þroska anda þinn og lyfta honum hærra siðferðilega. þetta er hið akademiska frelsi! Alt þitt líf er auðnuleit. En mundu: hamingjan er ekki fólgin í auð fjár, ást- arnautn og víni, né heldur í bóklegum lær- dómi. þú getur átt og notið alls þessa, og samt verið hamingjusnauður. Á þessa leið

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.