Stúdentablaðið - 01.12.1924, Page 17
1924
STÚDENTABLAÐ
9
pú, sem ætlar þér að leiða aðra til Guðs
— byrjaðu á sjálíum þér!
Vei þeim þjóni Guðs, sem viljandi vík-
ur aí' braut Krists! Vei þeim presti, sem
meira metur metorð og fé en Guðs ríki!
Vei þeim kennimanni, sem svívirðir Guðs
orð með illri breytni sinni!
Vinir mínir! þessar hugsjónir hafið þið
valið ykkur að leiðarstjörnum, hver eftir
séreðli sínu og sérnámi.
En sem manni ber þér þó, hver sem sér-
grein þín kann að vera, að fylgja hinu
æðsta dæmi, sem vér þekkjum, dæmi
Krists!
Islensku stúdentar! Vinnum heit: helg-
um Kristi og eilífðinni alt vort líf! þá
mun oss takast að lyfta þjóð vorri upp í
hæðir andans.
„Ó Guð, ó Guð, vér föllum fram
og íórnum þér brennandi, brennandi sál,
Guð faðir, vor Drottinn frá kyni til kyns
og vér kvökum vort helgasta mál;
vér kvökum og þökkum í þúsund ár,
því þú ert vort einasta skjól;
vér kvökum og þökkum með titrandi tár,
þvi þú tilbjóst vort forlaga lijól.“.
——0------
Stúdentagarðssjóðurinn.
Yfirlit yfir störf stúdentagarðs-
nefndarinnar.
Forsaga stúdentagarðsins verður síðar
skráð. Hér er eigi rúm til þess. Verður nú
aðeins getið helstu framkvæmda á síðastl.
tveim árum og árangurs þeirra.
Haustið 1922 tók Stúdentaráðið að sér
stúdentagarðsmálið; hafði það þá legið í
dái í 5 ár. Með bréfi lögreglustj óra dags.
30. nóv. 1922 veitti landsstjórnin leyfi til
útgáfu 100,000 happdrættisseðla. Verð
hvers seðils kr. 1,00. Vinningar 35; virð-
ingarverð þeirra kr. 13,985,00. Var þá
stofnað til happdrættisins. Seðlasala og
alm. fjársöfnun hófst á fullveldisdaginn, 1.
des. 1922, en sá dagur er jaínframt hátíð-
isdagur stúdenta og háskólans. Sex manna
nefnd var falin fjársöfnun og framkvæmd-
ir í málinu.Valdir voru: hæstaréttardómari
L. H. Bjarnason, próf., dr. phil. G. Finn-
bogason, dr. phil. Alex. Jóhannesson, stud.
jur. Astþór Matthíasson, gjaldkeri nefnd-
arinnar, stud. med. Ludvig Guðm., form.
nefndarinnar, og stud. theol. þorst. Jó-
hannesson, ritari nefnd. Haustið 1923
gengu úr nefndinni hr. hrd. L. H. B. og
stud. theol. þ. Jóh. í stað þeirra tóku sæti
í nefndinni stud. jur. Thor Thors og stud.
jur, Tómas Jónsson, gjaldk., en Á. M. tók
við ritarastörfum.
Illæri var til lands og sjávar, er nefndin
hóf starf sitt. þrátt fyrir það safnaðist svo
mikið fé, að kleift ætti að vei’ða að reisa
nokkurn hluta stúdentagarðsins á næsta
sumri.
Happdrættið var stærsta fyrirtækið.
það kom skriði á málið. 100 þús. seðlum
var dreift urn allar sveitir af meir en 600
útsölumönnum, embættismönnum, stúd-
entum og öðrum. þ. 16. febr. s.l. var dreg-
ið og númer vinninga birt.
Lántaka. Nefndin leitaði til Alþ. 1923
um styrk eða lán til stúdentagarðsins.
Veitti Alþ. ríkisstjóminni heimild til þess
að ábyrgjast lán alt að 100,000 kr. til
hússins gegn tryggingu í II. veðrétti.
Bókaútgáfa. Ilr. skrifstofustj. Alþ. Jón
Sig., gaf nefndinni þýðingu sína á Pan eft-
ir K. Hamsun. S.l. haust kom bókin út í
mjög vandaðri útgáfu, 1000 eint., þar af
500 tölusett. Söluverð kr. 12,00. Hr. rith.
Sig. Kr. Pét. gaf þýðingu sína á Abdallah,
skáldsögu frá Austurlöndum eftir E. La-
boulay. Sá nefndin sér eigi fært að ráðast
í útg. á þeim tíma. Gaf þá L. Guðm. bók-
ina út á eigin kostnað; væntanl. tekjur
renna í Stúdentagarðssjóðinn.
Sönglag. Hr. læknir og tónskáld Sig-