Stúdentablaðið - 01.12.1924, Síða 18
10
STÚDENTABLAÐ
1924
valdi Kaldalóns gaf 3000 eint. af sönglagi,
er hann hefir ort við: „pú nafnkunna
landið“, og helgað Stúdentagarðinum.
Söluverð kr. 1,50.
íslendingar í Vesturheimi. Skv. tilmæl-
um nefndarinnar tók pjóðræknisfél. Vest-
ur-Islendinga að sér fjársöfnun meðal
landa vestra. Sala happdrættisseðla er
lögbönnuð í Canada. Sumarið 1923 fór
próf. dr. phil. Ág. H. Bjarnason vestur.
Flutti hann þar mál nefndarinnar. Hafa
þegar borist þaðan kr. 874,00. Heldur fjár-
söfnun þar áfram.
íslendingar í Danmörku hafa sýnt góð-
an skilning og lofsverðan dugnað í þessu
máli I stúdentagarðsnefndinni í Kbh. tóku
sæti: stórkaupm. þór. E. Tulinius, form.,
sendiherra Sveinn Björnsson, gjaldkeri,
stud. mag. Pálmi Hannesson, ritari, próf.
Finnur Jónsson, mag. B. K. þórólfsson og
hr. H. J. Hólmjárn.
Við heimför hr. Sveins Björnssonar tók
við starfi hans í nefndinni hr. Jón Krabbe,
sendiráðsstjóri.
Hefir nefndin þegar sent heim rúml.
10,000 kr. Ennfremur á hún í loforðum c.
kr. 5600,00 (auk ef til vill d. kr. 5000,00).
Auk þessa gáfu konungshjónin kr. d.
1000,00 og erfðaprinsinn kr. d. 500,00.
Herbergjagjafir. Sá er greiðir kr.
5000,00 til stúdentagarðsins, fær að ráða
nafni eins herbergis og getur trygt þeim,
er hann ákveður, forrétt til þess og sér-
réttindi. — Málaleitun þessa efnis var
send bæjar- og sýslufélögum. Siglufjarðar
kaupstaður reið á vaðið og greiddi kr.
5000,00 fyrir eitt herbergi handa stúd-
ent þaðan. Víðar góðar undirtektir, þótt
enn sé eigi lengra komið.
Hr. útgerðarm. Thor Jensen og frú hans
Margrét Jensen gáfu kr. 10,000,00.
Ákvað nefndin, að tvö herbergi skuli
bera nöfn þeirra hjóna, og afkom-
endur þeirra, sem þurfandi kunna að
verða, hafa forgangsrétt að þeim, að öðru
jöfnu. Enn hefir hr. verksmiðjueigandi
Jón Jóhannesson í Kbh. gefið stúdenta-
garðinum kr. 5000,00 til minningar um
látinn föður sinn, lir. verksmiðjueiganda
Sigurð Jóhannesson.
Gjafaloforð. Á meðan á happdrættinu
stóð og hingað til, hefir lítið verið unnið
hér að söfnun beinna gjafa eða gjafalof-
orða. þó hefir nefndin fengið loforð fyrir
kr. 2050,00. þessar gjafir greiðast á
ákveðnu árabili með jöfnum árl. greiðsl-
um. Auk þessa hefir hr. læknir Hinrik Er-
lendsson, Hornafirði, lofað að gefa kr.
100,00 á hverju ári til dauðadags,og kandí-
dat, sem eigi vill láta nafns síns getið, kr.
50,00 á ári til æfiloka (áheit).
Selskinna. S.l. haust lét nefndin gera
bók mikla, bundna í selskinn og spjöldin
prýdd og styrkt greyptum málmspjöldum
og hornhlífum. Ber bókin nafnið íslend-
ingabók; á að safna í hana rithöndum Is-
lendinga. Sá er ritar þar nafn sitt, greiði
um leið kr. 1,00 til stúdentagarðsins.
Skemtanir o. fl. Nokkuð fé hefir safnast
við skemtanahöld, sjónleiki stúdenta,
söngskemtanir, fyrirlestra o. s. frv.
Minnismerki fullveldisins. Hr. stór-
kaupm. þór. E. Tulinius bar fram þá till.,
að stúdentagarðurinn yrði reistur sem
minnismerki fengins fullveldis ísl. þjóðar-
innar. Nefndin samþykti, fyrir sitt leyti,
tillögu þessa.
Fjárhagsútkoman er nú þessi:
1. a. Pen. í Landsbank. kr. 41,468,09
b. Peij. í Landsb. yfirf.
frá Kbh...............— 9987,13
--------- 51,455,22
2. Iljá gjaldkera, að mestu í skulda-
bréfum.......................... 17,627,00
3. a. Óseld 278 eint. Pan kr. 2,502,00
1). Óseld 659 eint. lag
Iíaldalóns............— 741,37
c. aðrar eignir.........— 344,70
----------- 3588,07
4. Útistandandi hjá útsölumönnum