Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 5

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 5
STUDENTRBLRÐ Reykjavík, 1. desember 1934 Atvinnudeild Háskólans Vér Islendingar hugsum of sjaldan nógu alvarlega um það, hversu örðug afstaða vor, sem sjálfstæðrar þjóðar, í raun og veru er. Vér búum í landi, sem að vísu er auð- ugt að ýmsu leyti og gjöfult, en þó liggur rorður undir heimskautsbaug og er því í'astheldið í gæði sín, svo að kostnaðarsamt og örðugt er að afla þeirra. Vér erum fá- menn þjóð og höfum eigi það bolmagn í viðskiptum vorum við aðrar þjóðir, sem fjölmennið veitir mannfleiri þjóðum. Vér getum eigi varpað áhyggjum vorum upp á neina aðra þjóð, vér verðum að bera þær sjálfir og reyna að bjarga oss af eigin rammleik. Tímarnir eru nú sem stendur i.rðugri smáþjóðunum en nokkru sinni fyr, því að í rauninni geisar nú hið grimmasta stríð uni allan heim, þótt eigi sé barizt með hervopnum, meira stríð og illvígara en áð- ur hefir þekkst, viðskiptastríðið, sem á fá- um árum hefir minnkað verzlunarviðskipti þjóðanna um tvo þriðjunga og sverfur fast jafnvel að hinum auðugustu þjóðum. Vér höfum fengið að kenna á því eins og aðrir, og allar líkur benda til þess, að vér höfum enn eigi kennt á því til fulls. Þó er nú svo komið, að báðir aðalatvinnuvegir vorir standa mjög höllum fæti. Bændurnir hafa, svo að hundruðum skiptir, orðið að f á uppgj öf á skuldum sinum', og útgerðarmennirnir þurfa þess einnig, margir hverjir. 1 við- skiptastríðinu er bolmagn vort lítið. Fá- menn og einangruð þjóð á þar örðugt um vöm. Þó að allt væri með kyrrum kj örum í heim- inum1, þá mundi líklega engri þjóð vera Próf. Ólafur Lárusson. meiri þörf á varfærni og hagsýni en oss. Eins og nú er ástatt er það lífsskilyrði. Ég fæ ekki skilið, að nokkrum heilvita manni geti verið það dulið, að með sama áfram- haldi og verið hefir um hríð á atvinnuhátt- um vorum, er stefnt að óhjákvæmilegu fjárþroti. Sjálfsfon-æði vorf er þá úr sög- uimi og menningarviðleitni sú, sem þjóðfé- lagið hefir verið að reyna að halda uppi að undanfömu, leggst þá að miklu leyti niður. Það er víst, að ef vér eigum að geta gert óss nokkra von um að standast þá eld- raun, sem nú gengur yfir, þá verðum vér að gæta hinnar frekustu hagsýni í atvinnu- lífi voru, vér verðum að reyna að læra að Ivagnýta gæði landsins sem bezt með sem minnstum kostnaði og fyrirhöfn og þannig, að sú öflun sé serri öruggust. Til þess verð-

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.