Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Side 6

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Side 6
2 STÚDENTABLAÐ um vér að þekkja sem bezt þau skilyrði, sem atvinnulíf vort er háð, náttúruskilyrðin fyrst og’ fremst. Fákunnáttan er dýr á því sviði, ekki síður en annarsstaðar. Aðrar þjóðir, seni miklu eru öflugri en vér, hafa fyrir löngu lært það, að vísindin eru at- vinnulífinu til ómetanlegrar styrktar. Þær verja árlega stórfé til hagnýtra rannsókna og fá það fé endurgoldið margfaldlega. Vér höfum litla rækt lagt við slíkt hingað til, en vér höfum ekki ráð á að vanrækja það miklu lengur. Rannsóknir annarra þjóða koma oss eigi að haldi nem'a að nokkru leyti. Landshættir eru hér svo sérkennileg- ir í mörgu, að innlendar rannsóknir einar koma að gagni, Slíkar rannsóknir koma því aðeins að gagni, að þær séu með fullkomlega vísinda- legu sniði. Menn kunna ef til vill að draga það í efa, hvort oss séu slíkar rannsóknir færar, hvort vér eigum völ á nógum1 mönn- um til þeirra, og hvort vér getum gert þá svo úr garði að nauðsynlegum áhöldum, að þeir geti unnið eins og með þarf. Ég ætla, að um hvorugt þetta sé ástæða til að efast. Sú litla reynsla, sem þegar er fengin hér á landi í þessu efni, sýnir það. Vér búum! við auðugustu fiskimið jarð- arinnar. Vér höfum hingað til verið næsta tómlátir um vísindalegar rannsóknir á þess- ari gullkistu vorri, á lífsskilyrðum nytja- fiskanna og á hagnýtingu þeirra afurða, sem fiskimiðin gefa. Um aldamótin síðustu: vorum vér svo heppnir að eignast ágætan og áhugasaman visindamann í fiskifræði, dr. Bjarna Sæmundsson. Honum var veitt- ur lítilsháttar styrkur til fiskirannsókna, styrkur, sem tæplega mun hafa hrokkið fyr- ir íerðakostnaði hans árlega. Ilonum1 var ætlað að hafa þessar rannsóknir í hjáverk- um og ekki séð fyrir neinum vinnutækjum. Þrátt fyrir þetta, er víst óhætt að segja, að það fjárhagslega gagn, sem fiskveiðar þjóð- arinnar hafa haft af starfsemi dr. Bjarna, sé ómetanlegt. En hitt er í rauninni hörmulegt, að hugsa til þess, hversu miklu meira sá maður hefði fengið áorkað, ef liann hefði haft viðunanlega aðstöðu til þess að vinna að rannsóknum sínum. Nú höfum vér eignast ungan og ötulan vísindamann á þessu sviði, mag. Áma Friðriksson, sem þegar er búinn að sýna, að hann hefir bæði hæfileilta og áhuga til að afreka mikið í þessum efn- um, og vonandi nýtur hann betri vinnu- skilyrða en fyrirrennari hans. Öldum saman hefir bráðapestin drepið sauðfé bænda í þúsundatali árlega. Er það eicki lítill skattur, sem sá sjúkdómur hefir heimt af bændum landsins ár hvert, þar til vísindin komu til sögunnar og fundu upp- tök sýkinnar og ráð við henni. Tjónið, semi bráðapestin gerir nú, er hverfandi móts við það, sem áður var. Islenzk vísindi hafa átt sinn mikla þátt í því, að vinna bug á þeim vágesti. Próf. Niels Dungal hefir fundið bóluefni við bráðapest, sem tekur hinu er- lenda bóluefni, er áður var notað, stórum fram. Hversu mikill gróði bændunum hefir stafað af þessum rannsóknum, sést Ijósast af því, að skýrslan sýnir, að af fé, sem bólu- sett er með bóluefni próf. Dungals, drepst aðeins Vn%, af fé bólusettu með erlendu bóluefni 2% og af óbólusettu fé á sóttnæm- isaldri 40—50%. Þetta eru tölur, sem tala, og sýna það svart á hvítu, hversu mikla fjár- hagslega þýðingu slíkar rannsóknir geta haft. Próf. Dungal hefir auk þess fundið meðöl við tveimur öðrum1 hættulegum sauðfjár- sjúkdómum, sem mikið tjón hafa gert, og menn stóðu áður ráðalausir gegn, lungna- pestinni og ormaveikinni. Við lungnapestinni, sem hvergi hefir verið rannsökuð nemá hér, fann hann bóluefni, sem1 reyndist nálega óbrigðult, og við ormaveikinni meðal, sem að vísu aðeins hefir verið reynt eitt ár, en reynzt hefir ágætlega. Þetta sýnir, að unnt er að gera slíkar rannsóknir hér, og að þær borga sig marg- faldlega. Vér þurfum eigi að óttast, að vér höfum eigi menn til þeirra, m. a. eru marg- ir ungir menn héðan í þann veginn að ljúka vísindalegu námi erlendis í þeim

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.