Stúdentablaðið - 01.12.1934, Síða 10
G
STÚDENTABLAÐ
:um, sem greiðast eiga á næstu 5 árum, ca.
29 þús. kr.
Kostnaður við bygginguna hefir orðið sem
hér segir: Byggingin, múr. og naglföst,
mun hafa kostað ca. 246 þús. kr. Hús-
gögn 1 Garðinn ca. 31 þús., eða kostnaður
samtals 277 þús. kr. Vantar því nokkuð á,
að Garður verði skuldlaus, þegar hann er
kominn upp, og væri vonandi, að Alþingi sæi
sér fært að ábyrgjast annað lán í viðbót
fvrir Garð, þar sem ríkið er ekki í ábyrgð
íyrir nema 50 þús. kr., en á fjárlögum und-
anfarinna ára hefir verið allt að 100 þús.
kr. ábyrgðarheimild til Garðsins.
Stjóm Garðs, sem þó mun eiga að breyta
að einhverju leyti, skipa 5 menn: Prófessor-
arnir Niels Dungal og Asmundur Guðmunds-
son, kjörnir af Háskólaráði, Gunnlaugur
Einarsson læknir, formaður, tilnefndur af
lcennslumálaráðherra, Ólafur P. Jónsson
og Eggert Steinþórsson, valdir af Stúdenta-
jáði Háskólans. Stjornin úrskurðar hverjir
liljóti garðvist og- ræður starfsmenn Garðs-
ins. Garðprófastur er Gústav Pálsson verk-
Séð eftir gangi á fyrstu hæð
r
1 Cambridge
Eins og háskólastúdentum mun kunnugt,'
fórum við sex stúdentar frá Háskólanum,
2 stúlkur og 4 piltar, til Englands í maí s. 1.
samkv. boði, sem Háskólanum barst frá
tvennum enskum stúdentasamtökum. 9 daga
dvöldum við í Cambridge sem gestir fé-
lags: ,,The Cambridge University Coun-
eil for the Entertainment of Foreign
Students“. Félagsskapur þessi var stofnað-
ur fyrir tíu árum í því skyni, svo sem
nafnið ber með sér, að auka kynni við er-
lenda stúdenta með þeim hætti, að bjóða á
hverju háskóla-„term“ stúdentum frá ýms-
um löndum til nokkurra daga dvalar í borg-
inni. 10 daga dvöldum við í London á veg-
um N. U. S. („National Union of Students"),
sem meðal annars vinnur að því sama og
með mjög líkum hætti og félagsskapur sá,
er fyr er nefndur. Báðar þessar stofnanir
njóta aðstoðar ýmissa góðra borgarbúa við
hýsingu boðsstúdenta og dvöl. Var dvölinni
þannig háttað, að við bjuggum 3—4 daga,
og stundum lengur, í einu hjá hverri fjöl-
skyldu, en máltíða neyttum við ýmist í stúd-
tntagörðunum eða á heimilum einstakra
manna.
Sem þátttakanda, í för þessari hefir verið
til þess mælzt við mig, að ég skrifaði nokk-
ur orð um ferðalagið yfirleitt, en ég mun
þó aðallega lýsa dvölinni í Cambridge-há-
fræðingur. Bryti er Jónas Lárusson og
dyravörður Kjartan Lárusson.
Þótt stúdentagarðurinn sé nú kominn upp,
íoega stúdentai- ekki Jcggja hendur í skaut
sér og álíta, að takmarkinu sé náð, heldur
hafa það hugfast, að þetta er aðeins hjalli
á leiðinni, og enn eru margir stúdéntar, sem
þarfnast ódýrara húsnæðis, og því nauðsyn-
legt að lyfta öðru grettistaki til, því að
fyrst, þegar hægt er að sjá öllum stúdent-
um fyrir ódýru húsnæði, er takmarkinu náð.
E. S.