Stúdentablaðið - 01.12.1934, Page 11
STÚDENTABLAÐ
7
skólanum og stúdentalífinu, eins og það kom
mér fyrir sjónir þennan stutta tíma, sem
óg dvaldi í bænum, enda býst ég við, að
mörgum stúdentum leiki helzt hugur á að
heyra eitthvað um lænna fornfræga háskóla
Englands.
Háskólinn í Cambridge er með elztu há-
skólum heimsins, nokkru yngi-i en háskól-
inn i Oxford, en hann og háskólinn í París
og Bologna eru taldir elztir. Það er um há-
skólann í Cambridge eins og elztu háskól-
ana yfirleitt, að það verður ekki sagt með
vissu, hvenær hann verður til. Fyrsti stúd-
fcntagarðurinn, Peterhouse College, var
stofnaður 1284, en löngu fyrir hanr. tíma
fara sögur af einskonar vísi til hess, er
síðar varð af stofnun sú, er nú er nefnd
University of Cambridge. Sjálft orðið Uni-
versity (lat. universitas) var upphaflega
aldrei notað eitt sér, heldur ætíð í sam-
bandi við önnur orð, svo sem: „university of
scolars“, ,,university of study“, og sama er
um orðið „college“, sem er heiti á stúdenta-
görðunum. Smám saman fjölgaði stúdenta-
görðunum, og að sama skapi efldist háskól-
inn. Lengi fram eftir öldum átti hann í ein-
lægum erjum við borgina, heimtaði skatt-
frelsi stúdentunum til lianda, lögsögu yfir
heim og gerðist á mörgum sviðum all yfir-
g'angssamur. Þessar deilur hafa nú fyrir
löngu verið jafnaðar með lögum, enda gafst
háskólinn upp við að halda til streitu kröf-
unni um lögsögu yfir stúdentunum, en hún
var aðal deiluefnið.
Háskólinn er sjálfseignarstofnun og al-
gjörlega óháður ríkinu. Hann samanstendur
af 17 stúdentagörðum. Kvenstúdentagarðar
eru tveir. Það var ekki fyr en laust eftir
síðustu aldamót, að konur fengu aðgang að
fyrirlestrum og prófum háskólans. Stúdenta-
fjöldinn er nú vanalega 5—6 húsund, har
af um 10% kvenstúdentar.
Yfirstjórn háskólans er í höndum háskóla-
ráðs (senate). Stúdentarnir skiptast í tvo
flokka, „undergratuates“, sem ekki hafa tek_
ið próf, og ,,gratuates“, sem lokið hafa prófi.
Hver stúdentagarður hefir sitt kennaralið,
og' eru heir nefndir ,,fellows“. Þeir stjórna
stúdentagarðinum og kjósa yfirmann hans
(Master) æfilangt. Eftir hriggja til fjög-
urra ára nám taka stúdentarnir próf, sem
veitir heim titilinn B. A. (Bachelor of
Arts). Eftir önnur 3 ár geta heir svo
fengið titilinn M. A. (Master of Arts). Há-
skólaárinu er skift í 3 „tenns“ — með
fríum á milli, lengstu um hásumarið. Allir
háskólastúdentar eru skyldir til að búa á
stúdentagörðunum. Að vísu er nú svo kom-
ið, að stúdentagarðarnir geta ekki hýst all-
an námstímann hann fjölda stúdenta, sera
há sækir, og hefir há verið tekið upp hað
)áð, að leyfa stúdentum að búa úti í bæ, oft-
ast hjá fullorðnum konum, sem verða að
hafa fengið leyfi háskólans til hess að hafa
stúdenta í húsum sínum. Allir stúdentarnir
búa hó nokkurn tíma, 1—3 ár af námstím-
anum, á sínum stúdentagarði.
Stúdentagarðamir, sem eru með fegurstu
liáskólabyggingum heimsins, eru aðalprýði
bæjarins. Ibúatala hans er um 60 hús., og
á síðari öldum hefir hann aðallega átt há-
skólanum að hakka vöxt sinn og viðgang.
Landslag umhverfis bæinn er flatt og til-
komulaust. Skiptast á engi og akrar með
limgirðingum á milli, en trjáraðir meðfram
vegum og ánni. Stúdentagarðamir eru vana-
lega byggðir í hyrpingu utan um ferhyrnt
svæði (court), og er svo bætt við nýjum
courts eftir hví sem húsnæðishörf stúd-
entagarðsins eykst. Margar eru bygging-
amar ævagamlar, t. d. stendur enn nokkur
liluti af hinni upprunalegu byggingu Peter-
house College. í elzta hluta bæjarins eru
göturnar víð'a mjög hröngar með gömlum
óbrotnum íbúðarhúsum, sem undirstrika
glæsileik stúdentagarða og kirkjubygginga.
Á bökkum árinnar Cam, sem bærinn dreg-
ur nafn af, liggja ’5 af stúdentagörðunum.
Framhliðamar, sem að götunni vita, eru
með svipmiklum, rammgerðum hliðum, en á
bak við há rennur Cam, lygn og friðsæl. Á
aðra hönd gnæfa hinar fornu byggingar, og