Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 14

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 14
STÚDENTABLAÐ 10 Helgi Sveinsson frá Hraundal: Fór Einn sóllítinn morgun í september lá sumarið tárvott á bæn um skærara sólskin og lengra líf, svo laufblöðin héldist græn. ])á fundu þau fyrst hvors annars ást, og arminn um hana hann lagði. þar kyssti hann loks hennar lokaða munn, hún leit til jarðar og þagði. En í hennar bládjúpu augum, er ástin snart hana fyrst, var undarleg sorg yfir einhverju því, sem aldrei hún hafði misst. þau hittust oft, en i atlotum hennar var einhver varfærni, hik og fát. Hún elskaði hann, en hún hugsaði máske, að helgidóm hæri að snerta með gát. En ást hans var heit og ástríðuþrungin, og eldur brann í hans ríka geði, í máttugu eðli hans öfgarnar börðust, sem eitthvað stórt v<æri jafnan í veði. Hún hlustaði oft bæði hrifin og kvíðin á hugsjónamál hans til frelsis og þarfa, þá fannst henni, að hún myndi hefta för hans, er heimurinn kallaði á sál hans til starfa. „Ilvað er ég á móts við hans hugsjónahæðir“, hún hugsaði margoft með sárum kvíða, ,ég get ekki heimtað hann handa mér einni, hans hlutverk er þar, sem milljónir stríða“. Hann sá aldrei hennar sálarkvalir né sorgirnar í hennar hvita barmi. Hún gaf honum allt, hún varð ástríðumeiri, jafnt yfirbuguð af sælu og harmi. það var eitt kvöld, hún var fölleit og fálát með ferskar hamingjustundir í minni; liún sagði: „Eg má ekki haldaþérhjámér, ég hindra þín stórvirki i framtíðinni. n i n Já, þú átt lampa, sem lýst getur öðrum og leitt þá, sem bágt eiga á götu þinni. Eg tek frá þér og þeim þá gæfu“; — )iún þagnaði og lokaði tárin inni. „Nei“, sagði hann, „góða, ég fer ekki frá þér inig furðar á hversu þú um þetta biður. Mig varðar lítið um heimsmenning hinna, hvað, hugsjónir mínar, ég læsi þær niður!" Hann vantaði auð, svo hún verið gæti um veröld alla í fvlgd með honum, og heima lá martröð á menningunni, og margur var umkiángdur dauðum vonum. þá nótt lá hún andvaka kramin og kvalin, liún hvislaði að sjálfri sér stynjandi af ekka: „Minn einkavin ég úr álögum leysi, þótt eitraðan bikar ég verði að drekka. Eg verð að knýja hann áfram, áfram i i 1 ódauðlegs verks, þar sem hinir stranda, og hvað er það, þótt ég gráti og gleymist, ef gef ég heiminum. stóran anda?“ Einn kaldan og gráhvítan morgun í marz varð mönnunum tíðrætt um snjó, og ýmsir töluðu um atvinnuleysi, en aðrir um rok á sjó. þá fékk hann að síðustu frá henni bréfið með fregn um, að ást hennar væri búiri, hún sagði, að hann mætti hata hana, því hún væri bráðum ti) annars flúin. Hún skrifaði: „Vertu nú viljasterkur, allt veltur á því, hvað þú reynist gleyminn. Eg liið, að þú minnist mín aldrei oftar, svo er ég dáin, — en þú átt heiminn". það var ekki satt, sem hún sagði honum um samvistir hennai- með öðrum manni. Hann trúði því samt, því hann sá hana eklci né sál hennar auða sem kirkju í banni. ♦

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.