Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Síða 15

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Síða 15
STÚDENTABLAÐ 11 Svo færði hún öld sinni fórnirnar þungu og fannst sem hún stæði á eyðihjarni. Hún bað hann að sjá, hversu sjálfselsk hún væri, hitt sagði hún ekki ■— hún var með barni. Einn dag í apríl var moldin mjúk, og morgunþoka á grund. — Einn dag í apríl var akkerum létt á útleið um grænblá sund. þar stóð hann á þiljunum viljalaus, vonlaus. Hvað var liann að syrgja það léttúðarkvendil Hann sá hana fyrst, þegar lagt var frá landi, hún leit á hann brosandi og veifaði hendi. þann dag lagðist særinn sem sárbeittar eggjar á sverði á milli hjartna tveggja, og vorsins sólslcin varð sársauki tómur í svefnlausum andlitum þeirra beggja. Hún eignaðist son, það var aleiga hennar, i augum hans lá hennar síðasti kraftur. — F.n kreppa og hungur herjuðu landið, lil hennar kom neyðin, er vetraði aftur. A meðan vinurinn hennar horfni varð hetja í barátt.u fyrir marga, ................................................ í vöggunni litlu lá heimurinn hennar, sem hún varð með einliverjum fórnum : að bjarga. : Hún seldi sín klæði, sinn líkama að lokum, ; svo langt var hún komin, hún fór þá svonal • A hrímköldum nóttum í hálfauðum strætum * sást hungruð móðir sem vændiskona. En hann, sem hún sleit út úr hjarta sínu, : sem hélt honum líkt og i þröngri stíu, hann varð sá, er fyllti stórborgar-strætin með sterkum þyti af mannkyni nýju. En hún var forsmáð og fyrirlitin, og feimin við barnið sitt : varð hún stundum, • það minntist þess óglöggt á æfinni síðar, live eyðilcg kom hún af næturfundum. það liðu ár — og einn desember dag lá dökkvi um hafsins ós, • þá var hún lögð inn á líkskurðarstofu sem lik af einhverri götudrós. • • þar krufðu þeir iíkamann, líf hennar ekki, • og leifarnar moldin örmum vafði. • það vissi enginn hvað vændiskonan veröld þessari gefið hafði. : .............................................. Nokkur orð um sjálfstæði íslands [Höfundur þessai’ar greinar, Bruno Kress, er þýzkur stútent, sem leggur stund á íslenzkunám hér við háskólann]. Mörgum útlendingi bregður í brún, er hann kemtir til íslands og verður þess var, að landið svarar ekki nema að sáralitlu leyti l 1 þess, sem hann hafði gert sér í hugar- lund. Að vísu hafa ýmsir gestir landsins heyrt þess getið, áður en þeir heimsóttu það, en sjaldnast svo, að það gæfi rétta hugmynd um eyjuna eins og hún er nú á tímum. Það eru margir, sem gerðu sér von- ir um að finna hér land drauma sinna, land hetjuskapar og manndáðar löngu liðinna tíma. En þeir munu fljótt hafa komizt að raun um, að hamingjuna var hvorki að finna í Atlantshafi né annarsstaðar í heiminum. Slíkir menn verða fyrir von- brigðum — og því fer betur. Island er ekk- ert sögulegt ruslaherbergi, heldur er það iifandi land, sem berst fyrir sjálfstæði sínu rneðal þjóða heimsins, eins og hvert annað land, sem hefir sjálfstraust. Hversu hörð þessi barátta er, dylst þeim ekki, sem hafa lengri viðdvöl liér en svo, að þeir geti skroppið skemmtiferð að Grýtu og Þing- völlum, eða ef til viil farið fótgangandi um landið. Það dugar ekki heldur að geta þakk-

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.