Stúdentablaðið - 01.12.1934, Qupperneq 19
STÚDENTABLAÐ
15
Hagsmunamál
Fæstir þeirra stúdenta, sem nám stunda
við Háskólann og heima eiga utan Reykja-
víkur, eru svo efnum búnir, að þeir geti
kostað sig hér á veturna án þess að sinna
einhverjum aukastörfum. Eins og nú er
ástatt, er full illt fyrir menn, sem eru
óbundnir, að fá nokkuð að gera, hvað þá
stúdenta, sem nokkurn liluta dagsins verða
að hlýða á kennslu við Háskólann og búa
sig undir næsta dag og hljóta því að reyna
a'ð útvega sér eitthvert það starf, sem þeir
geta að nokkru eða öllu leyti ráðið um á
hvaða tima dags er unnið. Af þessum ástæð-
um og svo af því, að þeir hafa þegar aflað
sér nokkurar almennrar þekkingar, verður
flestum að leita eftir einhvers konar kennslu.
Sumir kenna fyrir fæði, sem kallað er, þ. e.
kenna á heimilum hér í bænum ákveðinn
stundafjölda á dag og fá að launum fæoi
sitt. Aðrir hafa einkatíma gegn peninga-
greiðslu og nokkrir stundakennslu við ýmsa
skóla bæjarins. Til eru þeir háskólastúdent-
ay; sem hafa önnur aukastörf á hendi en
kennslu, t. d. skrifstofustörf, en þeir eru
fáir. Reynslan hefir sýnt, að margir fátækir
stúdentar við Háskólann eru svo óheppnir
að fá enga eða allsendis ónóga kennslu á
haustin. Einkum á þetta við um þá stúd-
enta, sem í fyrsta sinn koma til Háskólans
og eru ókunnugir í bæuum og hafa þar af
leiðandi óhæga aðstöðu til þess að afla sér
kennslu. Þessir menn eiga oft um tvennt
að velja, að safna skuldum unz úr rætist
eða hverfa frá námi.
Flestum ætti að vera ljóst, að hér er um
svo mikið hagsmunamál stúdenta að ræða,
að eitthvað verður að gera til þess að bæta
úr þeim vandkvæðum, sem á eru.
Iiér við Háskólann hefir verið svo nefnd
„Upplýsingaskrifstofa stúdenta“. Starf henn-
ar hefir aðallega verið í því fólgið, að veita
stúdentum og stúdentaefnum ókeypis upp-
lýsingar um nám við erlenda háskóla. Til
þessarar skrifstofu hefir Alþingi veitt fé
nokkurt, og er formaður hennar launaður
af því. Upplýsingaskrifstofan er að vísu
gagnleg þeim, sem í hyggju hafa að stunda
nám erlendis, en háskólastúdentum hér er
hún gagnslaus, eins og hún er starfrækt nú.
Það virðist einsætt, að skrifstofa þessi
gæti einnig haft á hendi það hlutverk, að
útvega stúdentum við Háskólann kennslu og
aðra vinnu (t. d. skrifstofustörf og þýðing-
ar) á veturna. Síðari hluta sumars og á
haustin yrði skrifstofan einlíum að vinna
að þessu, því að þá er niest spurt eftir
kennslu. Skrifstofan auglýsir í blöðum bæj-
arins og biður þá, sem kennslu vilja kaupa,
að senda til sín umsóknir ásamt upplýsing-
um um, hvað kenna skuli og hver launakjör
séu. Einnig þarf hún að komast í samband
við skóla í bænum, því að þar er oft margt
dvaldi þar með fjölskyldu sinni á sumrin,
en hér í bænum á vetrum. Hafði hann keypt
nokkrai- jarðir í Grafningnum, upp frá
1 hfljótsvatni og upp með Þingvallavatni að
sunnanverðu og einnig stórbýlið Rannveig-
arstaði, sem er í Flóa, niður við sjó og
hafði þar bú. En ekki mun hann hafa grætt
á búskap sínum fremur en aðrir nú á síð-
ustu árum. Reykjavíkurbæ seldi hann vatns-
réttindi til virkjunar á Soginu, þegar hún
var afráðin, og fékk fyrir þau allmikið fé.
Atti hann í deilum við bæjarstjórn Reykja-
víkur út af ýmsum ágreiningi í viðskiptum
þeirra í mílli, og er mér ekki kunnugt um,
hvort þær deilur voru til fullra lykta leidd-
ar, er hann andaðist.
Magnús var vinsæll maður, glaður í lund
og alþýðlegur í viðmóti. Á síðari árum naut
hann sín ekki vegna sjúkdóms þess, sem
hann gekk með, og efnahagur hans mum
hafa verið orðinn mjög þröngur, enda þótt
hann hefði mikið undir höndum.
Þ. G.