Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Page 20

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Page 20
16 STÚDENTABLAÐ Stúdentar útskrifaðir úr Reykjavíkur-Menntaskóla vorið 1934 Myndin er tekin f trjágarði Hressingarskálans Fot. Kaidal nemenda, sem þurfa að kaupa sér auka- kennslu. Stúdentar þeir, sem taka vilja að sér kennslu, geta svo leitað til skrifstofunn- ar og athugað, hvað á boðstólum er og val- ið síðan það, sem þeim kann að henta. Sum- jr vilja t. d. kennslu fyrir fæði, aðrir einka- tíma o. s. frv. Þetta fyrirkomulag verðúr vafalaust til hagsbóta báðum aðiljum. Bæj- arbúar hafa þama vísan stað, sem þeir geta leitað til, ef þeir þarfnast kennslu, og stúd- entar eru betur tryggðir en áður. Þá væri ekki úr vegi, að þessi skrifstofa gæti einnig annazt um að útvega stúdentum sumaratvinnu. Undanfarin sumur hefir margur stúdent haft atvinnu af skornum skammti og létta pyngju að hausti. Það er því ekki vanþörf á að ráða einhverja bót þar á, ef hægt væri. Sennilega yrði bezt að láta fram fara eirts konar atvinnuleysis- skráningu í Háskólanum á vorin og sjá þannig, hve margir væru, sem þyrfti að út- vega atvinnu. Síðan yrði skrifstofan að komast í samband við atvinnurekendur, bæði ríkið og einstaklinga, og ráða stúdenta þar eftir því, sem mögulegt væri. Ég vil að lokum beina þeirri áskorun til Stúdentaráðs, að það taki þetta mál í sín- ar hendur og hrindi því í framkvæmd svo fljótt, sem auðið er. Sigtryggur Klemenzson.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.