Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Síða 22

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Síða 22
18 STÚDENTABLAÐ Fráfarandi formaður Stúdentaráðsins — með léttra linda hljómsveit og loftin safírheið og gólfið grænt og rautt. Eða þessi vísuorð í kvæðinu Eftir söngleik, sem minna einna helzt á Levertin, án þess að um nokkra stælingu sé að ræða: Ég fann hvernig foldin lyftist, og fagnandi tíminn rann, með morgna, sem klettana klifu, og kvöld, sem í laufinu brann. Ef einhverjum dytti í hug að spyrja, hvert væri erindi herra Tómásar Guðmunds- sonar, myndi ég svara eitthvað á þessa leið: Tómás Guðmundsson er fyrst og fremst listamaður, sem leyfir sér að gleðj- ast yfir því að vera til og eiga heima í mið- bænum, síðan skáld. Og skáld hverra? Hann er framar öðru skáld þeirra tveggja, sem hurfu suður Laufásveginn í rökkri fyr- ir stundu síðan. Líður að jólum Snurðulaust um liðna daga liggur hjartans skapagarn, jörðin hvítnar, jólin nálgast, ég verð aftur lítið barn. Streymir hljóð frá gömlum gjöfum gleðin forna hjgn og djúp, sveipast allt og allir heima æfiniýrabjörtum hjúp. Er máninn óð í mjúkum skýjum, ég man, ég sat við gluggann einn, og mamma kom og kijssti’ á vangann: »Það kemur bráðum jó\asveinn«. Og hann kom inn með ótal böggla, allskyns leikföng, kerti og spil, þá vissi' ég fyrst, að vonir rætast, vissi fyrst að gleði’ er til. En útþrá senn mig seiddi burtu, ég sá ei heim í nokkur ár, og síðan hafa’ í heimsins kulda hrímað öll mín gleðitár. Líður senn að Ijósum jólum, liggja blóm í hvítri gröf, ennþá barnsleg eftirvænting, en engin von um jólagjöf. Því þó að langa leið að heiman leggi nornir skapagarn, jafnan þegar jólin nálgast, ég verð lítið mömmubarn. Aquila. Karl Isfeld.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.