Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Side 24

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Side 24
20 STÚDÉNTABLAÐ svæði. — Þær hrífa vinnuna frá hinum vinn_ andi stéttum, sem við það verða atvinnu- lausar og færast þannig skrefi eftir skrefi nær gráðugri hungursneyð. Að þessu athuguðu ætti að liggja í aug- um uppi, að það eitt nægir því ekki að e i g a töfrasprotann. Hitt verður og jafn- vel aðalatriði, að töfrasprotanum sé beitt í djúpri lotningu fyrir mknnlífinu, beitt með ríkum kærleika og víðtækum skilningi á gildi hvers einstaklings, beitt í trú á lífinu, eigi þeirri, að það sé einkennilegt, ósjálfrátt efnasamsull, sem blindir nátt- úrukraftar hafi einhverju sinni hrúgað saman af seinheppni sinni, eins og fyrver- andi „vísindalega“ efnishyggjan hélt fram og tilveruréttur lífsins því annaðhvort eng- inn ellegar takmarkaður við nokkur ár, sem þó eru ekki jafnlangur tími í jarðsögunni og sú agnar-tímaeind í mannsæfinni, sem fer í það, að depla einu sinni auga — held- ur þeirri trú á gildi mannlífsins, að það sé þróun — eigi aðeins breyting — heldur þró- un, viðleitni tilverunnar til að framkalla æori veruleika en dautt efnið og það eígi tilverurétt sinn sakir ódauðleikans, sálarlífs- ins, sem birtist með mönnum og guðsneist- ans, sem gefinn er hverjum einstakling sem trygging þess, að hjá öllum séu möguleik- arnir fyrir hendi að glæða kærleikslíf, hreinleika, fegurð og fullkomnun og það sé einmitt takmarkið. Lífið sé því aðall til- verunnar, röð tækifæra til að s k a p a s t. Þessi lífsskoðun hefir verið borin uppi af mörgum andans jöfrum. En sá, er flutt hef- ir hana í mestri hæð, fegursta og full- komnasta, er Kristur. Eigi aðeins vegna þeirrar leiftrandi speki, sem engum manni hefir hlotnast fyr né síðar, en sem var beitt til þess að dýpka þesssa lífsskoðun, heldur og einnig vegna verkanna, þar sem sjálfur brautryðjandinn gengur fyrstur og sýnir, hve dásamlega æðra lífi hægt er að lifa í krafti þessarar lífsskoðunar. Kristur er sá, er fyrstur dró fram skoð- unina um hið ómetanlega mæti mannssálar- innar, sem væri meira virði en allur heim- urinn. 1 krafti þessarar kenningar taka stoðir þær að bresta, er risið hafa undir þeim háa sess, sem auðnum hefir verið liossað upp í. Dýrkun hans er sú áþreifan- legasta orsök að meinum og seinþroska mannanna. Sú dýrkun heldur ómótstæðilega át’ram á meðan gullið er það dýrmætasta í augum fjöldans. En í bjarmia hinnar nýju kenningar hættir jafnvel gullið að lýsa. Það er eigi hjáguð lengur, nú er það manns- sálinni, sem þjóna ber. Hvílíkur boðskapur, hvílíkt fagnaðarerindi, einkum þó þeim, sem ekkert áttu af ytri verðmætum til að öðlast ]mð innsæi í lífið, að þrátt fyrir sína ytri íátækt og smæð í stétt, að þá áttu þau samt verðmæti, sem var meira virði en heimúrinn allur, þótt gerður væri úr skíra gulli. Kristur er líka sá, er á fullkomnasta stigi hefir sýnt með verkum sínum, hversu t r ú i n getur verið stórvirkur orkugjafi í mannlífinu. Sagan hefir og einnig sýnt það betur og betur með degi hverjum, sem liðið hefir, að trúin virðist vera það afl, sem hægast geti framkallað siðferðilegan þroska og sálarfegurð — eða jafnvel sé það eina afl, er því megi orka. Hún sé því eitt af þeim öflum, sem sízt megi missast í þjón- ustu lífsins. Vaxandi vísindin hafa því skapað þrótt- mikinn þékkingarþroska, efnishyggja og trúleysi hefir blóðsogið siðgæðisþroskann. Þegar sú kynslóð, sem er voldugust að mætti, á við hina ítrustu nevð að búa, þá ev það vegna þess, að þekkingarþroskinn ber siðgæðisþroskann ofurliði. Hver og einn, sem því vill vinna og stríða sem liðsmaður lífshamingjunnar, verður því að taka fagnaðarerindi Krists um mæti og ódauðleik mannssálarinnar í þjónustu barátt- unnar, það því fremur sem undir þá lífsskoðun hafa runnið styrkar, óhagganleg- ar vísindalegar 'stoðir á seinustu tímum. Efnishyggjan er að tærast upp í björtu skyni nýrrar þekkingar, sem verkar á hana sem magnaðir eiturgeislar.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.