Stúdentablaðið - 01.12.1934, Qupperneq 25
STÚDENTABLAÐ
21
Stúdentar frá
Menntaskólanum
á Akureyri 1934
Marg'ir líta til stjórnmálaflokkanna se’n
keirra, sem með skipulagi eingöngu á skipt-
ingu gæða jarðarinnar séu þess einir megn-
ugir, að búa mönnum hamingjuheim. Skal
hér drepið á nokkur atriði i hessu sam-
bandi, en rúmleysis vegna í blaðinu verður
því ekki gerð þau skil, sem þyrfti. Betra
skipulag á framleiðsluháttum og neyzlu lífs-
nauðsynja er eitt af því, sem mest er að-
kallandi sem stendur. Eigi þó vegna þess,
er hvai-vetna virðist vaka fyrir stjórnmála-
flokkunum: Þ ú s k a 11 e i g a eða v i ð
s k u lu m e i g a, heldur hins, sem er
grunntónninn í kenningum Krists: við
s k u l u m v e r a. Að eiga er ekki einhlít
hamingjuleit, heldur að vera, þessvegna
nægir eigi heldur skipulagið eitt til að skapa
hamingju. Þegar það er í alveldi sínu, ]>á
gefur það öllum brauð, en í kenningum
Krists virtist takmarkið, sem keppa ber að,
að fullkomnast í veikleikanum, sem er ham-
ingjuleitin.
Viðvíkjandi starfsháttum stjómmálafl.
\ ildi ég benda á eitt atriði. Leiðtogarnir
þekkja vel veiluhliðarnar á þroskalífi þjóð-
arinnar. Þeir vita af fáfx-æði, öfund, trú-
girni og tortryggni. En þessi jarðvegur
er engu síður plægður og í hann sáð póli-
tískum frækornum, ef þess má vænta, að
upp vaxi sú „rétta“ pólitíska skoðun, virðist
því vera ástæða til þess, að líta eigi jafn-
björtum augurn fram á nýja sigurvinninga
sfjómmálaflokkanna, þótt þeir eigi spari
köllin: frelsi, jafnrétti, bræðralag.
Hér birtast lítilsvirðing fyrir verðmæti
einstaklingsins. Gerir elcki, þótt blásið sé á
(lda tortryggni, fáfræði, öfundar og haturs
í brjóstum manna, ef stefnunni aðeins
eykst fylgi, þá fei' allt í rétta átt. Hér er
því verið að vinna heiminn, en glata sálunni
— sálarverðmætinu. Hér eru menn að
verki, er gengið hafa fram hjá kenningum
Krists og ábyrgðartilfinninga fullvissunni
um áframhaldandi líf. Hér hljómar því enn-
þá rödd hrópandans á eyðimörkinni til allra
og fyrst og fi'emst ungra menntamanna:
Hafið fataskipti! Varpið frá ykkur tötrun-
i m, sem lykta al' efnishyggjufýlunni, sem
næstum hefir kæft alla veraldarinnar menn-
ingu. Sækið fram og notið hverja þá hug-
sjón, hvert það afl og alla sanna þekkingu
í baráttunni fyrir guðsríki á jörðu.