Stúdentablaðið - 01.12.1934, Qupperneq 27
STÚDENTABLAÐ
23
Stúdenta heimsþingið
gegn stríði og fasisma
Dagana 29.—31. des. næstkomandi verð-
uf haldið í Genf heimsþing stúdenta gegn
stríði og' fascisma. Heimsnefnd stúdenta
gegn stríði og fasisma hefir boðað til þings-
ins, og' hafa margir kunnir menntamenn
hafizt handa um undirbúning þess, t. d.
hið heimsfræga franska skáld Barbusse. Það
er ei meir um annað talað nú í heiminum
en ófriðarhættuna. Fyrir nokkrum árum
hristu menn höfuðið yfir slíku tali og köll-
uðu það kommúnistiskan þvætting, en það
er ekki lengur gert.
Það er nú flestum orðið ljóst, sem annað-
tveggja eru ei bjánar eða svívirðilegir
hræsnarar, að „Evrópa er eins og púðui'-
tunna, sem getur sprungið í loft upp, hve-
nær sem er“ og að hið alþjóðlega ástand
hefir á sér öl! einkenni aðfararnætur nýrr-
ar heimsstyrjaldar.
Á slíkum tímum er það knýjandi nauð-
syn, að skipuleggja alla krafta, er tök eru
á, til baráttu gegn þeim skelfingum, er ný
heimsstyrjöld mundi leiða yfir mannkynið,
og' til baráttu gegn fascismanum, sem
þurka vill út persónu- og skoðanafrelsi allra
andstæðinga kapitalismans ásamt því að
vera, eins og t. d. þýzku fascistarnir, verstu
friðarspillar álfunnar.
Þingið í Genf, er einn þátturinn í þeirri
alþjóðlegu baráttu, sem háð er gegn ógnum
stríðsins og fascismans, og stúdentar um
allan heim munu slá um það skjaldborg og
leggja á þann hátt sinn hlut til eflingar
friðinum í heiminum.
Á þessu ári hafa stúdentar viða um heim
háð stórkostlega baráttu gegn fascisma og
stríði.
1 Bandaríkjunum skipulögðu stúdentar
13. apríl mótmælaverkfall gegn yfirvofandi
stríði, og í New York borg einni saman
tóku þátt í því 15 þús. stúdentar. Þeir fóru
i kröfugöngum um borgina undir kjörorð-
um eins og: scholarships, not battleships,
og héldu fjölda mótmælafunda.
Við Columbia-háskóla hrópuðu 7500 stúd-
entar Luther, sendiherra Hitlers, niður með
orðunum: Niður með hinn glæpsamlega
fascisma.
1 allsherjarverkfallinu í Frakklandi 12.
febrúar í ár gengu mörg þúsund stúdentar
í kröfugöngunum með verkamönnunum. Á
Spáni hafa stúdentar tekið svo virkan þátt
í baráttunni gegn fascisma og stríði, að
stjórnarvöldunum hefir hvað eftir annað
pótt við þurfa, að loka háskólunum, t. d. í
Madrid.
í Englandi eykst anti-stríðshreyfingunni
stöðugt fylgi meðal stúdenta. 1 Cambridge
iiafa stúdentamir t. d. háð öfluga baráttu
gegn því, að rannsóknarstofur háskólans
væru notaðar til tilrauna með eiturgas.
Frá Sofiu, Búkarest og Belgrad bex*ast
fregnir af mótmælakröfugöngum stúdenta
gegn stríði og íasisma, frá Tékko-Slovakiu
fregnir um brottvikningu stúdenta úr há-
skólunum í Prag vegna baráttu þeirrar
gegn stríðinu fascismanum, og meðal þýzkra
stúdenta verður óánægjan meiri og meiri,
vegna þeirra gífurlegu takmarkana, sem ei*u
á námsfrelsi við háskólana og hernaðai*æð-
isins, sem ríkir í landinu og kemúr ekki
hvað minnst við stúdenta. Kjörorðið „nicht
marschieren, sondern studieren", sem komið
er fram hjá hinum óánægðu stúdentum,
er ljóst dæmi um friðarvilja þeirra.
Hér er ei tækifæri til þess að greina frá
fleiri dæmum, en hvaðan, sem fregnir ber-
ast, sýna þær vaxandi skilning stúdenta á
]æssum málum og aukinn baráttuvilja
]ieirra. Heimsþingið í Genf á að sameina
þessa dreifðu krafta og gefa þeim nýjan
þrótt til öflugri og stórfenglegri baráttu
en nokkru sinni fyr. Það á að gefa hinum
lærða öreigalýð trúna á sjálfan sig og lífið,
sem kapitalisminn hefir svipt hann og
treysta samúðina og samhjálpina með hon-
um og öreigalýð allra landa.
Félag róttækra háskólastúdenta hefir 6-