Stúdentablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Qupperneq 30

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Qupperneq 30
26 STÚDENTABLAÐ Egill Sigurgeirsson, stud. jur., formaður, Friðrik Einarsson, stud. med., gjaldkeri, Kjartan Guðmundsson, stud. med., ritari. Málgagn félagsins er „Nýja stúdentablaðið1'. l'élacj þjóðernissinnaðra stúdenta. Félag þetta var stofnað 11. febr. s. 1. það berst fyrir þjóðernisstefnunni, „sameiningu og samstarfi allra þjóðfélagsþegna“. Einnig berst það gegn Marxisma i Háskólanum. Stofnendur íélagsins voru 15. Félagið bar fram sérstakan lista við siðustu Stúdentaráðskosningar og hlaut hann 34 atkvæði. Núverandi formaður þess er Guttormur Erlendsson, stud. jur. — Málgagn þess heitir Mjölnir. Nýr prófessor. Við fráfall próf. Magnúsar Jónssonar var skip- i'ður prófessor við lögfræðideild Háskólans dr. pórður Eyjólfsson. Hann varði doktorsritgerð sína, „Lögveð", hér við Háskólann 19. júní s. 1. Býður Stúdentablaðið hann velkominn að skól- anum. Orator. Málfundaiélay layadeildar. Engar breytingar hafa orðið á starfsháttum félagsins á þessu ári. það hefir starfað að hagsmunamálum deildarinnar, og hefir það starf verið venju frcmur áhrifarikt. Annars ræð- ir það um allt á milli himins og jarðar og jafnvel fleira. — í stjórn eru: Formaður: Hinrik Jónsson, ritari: Arnljótur Guðmundsson, gjaldkeri: Gunnlaugur Pétursson. íþróttafélag stúdenta. það hefir starfað undanfarið með allmiklu fjöri. Stendur það fyrir leikfimiskennslu reglu- lega tvisvar í viku. Ennfremur hafa verið farn- ar nokkrar ferðir út fyrir bæinn. Stjórn mynda: Hinrik Jónsson, stud. med., fonnaður, Baldur Johnsen, stud. med., ritari, þórður Oddsson, stud. med, gjaldkeri. Taflfélay Háskólans. Lítið lífsmark var með félaginu síðastliðinn vetur. þó voru haldnar nokkrar taflæfingar og fjöltefli háð við Jón Guðmundsson með frekar góðum árangri, og þá skiljanlega með tilsvarandi vondum árangri fyrir Jón. Varla er orð á því gerandi sem afreki, að félagið skoraði á Mennta- skólann í kapptefli, því að hann skoraðist undan. Félagið lét sig ekki, og i vetur skoraði það enn; þekktist skólinn það nú og lagði til orrustu, en beið ósigur. Stúdentar sigruðu með 6% : 3%. Stjórnina skipa: Olafur Iíristmundsson, stud. jur., formaður. Jakob Havsteen, stud. jur., ritari. Kristinn Júlíusson, stud. jur., gjaldkeri. Erlendir kennarar við Háskólann. í ár eigum við þess kost, í fyrsta sinn, aö hlýða i fyrirlestra og njóta kennslu í þremur erlendum lungumálum við Háskólann, þýzku, ensku og frönsku. D r. G e r d W i 1 1 flytur þýzku fyrirlestrana. Efni þeirra er: „Nachklassisclie Kulturström- ungen in Deutschland". Ennfremur hefir hann cefingar í þýzku með stúdentum. M r. G. E. S e 1 b y, B. A. flytur fyrirlestra um enskar bókmenntii- og enska þjóðarháttu. llnnn hefir einnig æfingar með stúdentum í cnskri tungu.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.