Stúdentablaðið - 01.12.1934, Side 31
STÚDENTABLAÐ
27
Mlle Petibon flytur fyrlestra með
skuggamyndum um Frakkland og hefir æfingar
með stúdentum í frönsku.
pess skal getið, að almenningi er heimill að-
g.mgur að öllum fyrirlestrunum.
Á leiði sálaríræðinnar.
F.ins og flestum stúdentum er kunnugt ski])ii
próf. Agúst H. Bjarnason um kennsluhók i sálar-
fræði í haust. Leggur hann nú iil grundvallnr
sálarfræði Sehelderups prófessors i Oslo.
Bíða stúdentar þt'ss með eftirvæntingu, hvort
sálarfræði Ágústar rísi upp úr gröf sinni að nýju.
Fundur háskólastíidenta um atvinnudeildina.
Blaðið flytur nú forystugrein eftir próf. Ólaí'
T.árusson um deild þessa.
Háskólastúdentnr hafa öllum betur skilið þú
brýnu nauðsyn, sem er á þvi, að byggja atvinnu-
vegi vora á vísindalegum grundvelli, og fyrsti
almenni fundurinn, sein haldinn hefir verið á
Garði, tók mál þotta til umræðu.
Fundur þessi var vafalaust sá fjölmennasti
fundur liáskólastúdenta, sem haldinn Tiefir verið
um langt skeið. og sóttu hann ýmsir menn aðr-
ir on stúdentar, sem áliuga höfðu á málinu, m.
a Arni Friðriksson, próf. Niels Dungal, Trausti
Ólafsson, Hákon Bjarnason og Bragi Steingr., en
próf. Alexander Jóhannesson var málshefjandi.
Ennfremur hafa háskólastúdentar sent Alþingi
áskorun um að hrinda málinu í framkvæmd, og
á einum tveim dögum var 116 undirskriftum
safnað á hana.
Munu stúdentar fylgja. máli þessu fast eftir, og
er vonandi, að þröngsýnum þingmönnum takist
ekki að drepa málið með rökstuddri dagskrá, eða
á annan hátt.
Lánssjóður stúdenta.
Stjóm hans skipa:
Próf. Ólafur Lárusson, formaður, kosinn af
Háskólaráði.
Björn E. Árnason, kosinn af ríkisstjórn, og
Eggert Steinþórsson, kosinn af Stúdentaráði.
ITr sjóðnum hafa alls verið veitt 113 lán, flest
til 4 ára. 31 lán hefir verið greitt að fullu. Rekstr-
arfé sjóðsins er 22.500 krónur, lán frá Háskóla-
i'áði. Hrein eign er ca. 6000 krónur.
Lögfræðilega aðstoð
veita nemendur lagadeildar efnalitlu íólki ó-
keypis hvert mánudagskvöld. Léttir þetta mönn-
um róðurinn móti skuldaþrjótum sínum og öðr-
um viðskiptavinum. En nemendur deildarinnar
uppskera breði gagn og ánœgju.
Stúdentaráðskosning i Háskólanum í Khöin.
Nýlega eru kosningar til Stúdentaráðs Háslcól-
ans í Khöfn um garð gengnar. Að því er dönsk
lilöð skýra frá, voru uppi tvær meginstefnur
meðal stúdenta um það, hvernig málefnum
þeirra skyldi stjórnað, og voru sumir sem vildu
halda stjórnmálum algerlega utan við þau mál,
i n aðrir, sem lölilu bið gagnstæða. Kosningar
fóru svo, að þeir fyiiöldu fengu 46 af 51, sem
i ráðinu eru, en „Soe.ialsamling", sem er félags
skapur marxista, fékk aðeins 5 sæti. það hefir
oftar komið fram, að danskir háskólastúdentar
kieia sig ekki um að stjórnmálum sé blandað
inn í þeirra sakir. Nýlega biðu t. d. „Konserva
tivir“ stúdentar mikinn ósigur í lelagi stúd-
enta, þegar þeir komu þar fram með ákveðinn,
stjórnmálalitaðan mann, sem fonnannsefni. petta
kemur þó ekki af þvi, að stúdentamir séu áhuga-
lausir um stjórnmál yfirleitt, heldur af því,