Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.10.1958, Page 6

Stúdentablaðið - 01.10.1958, Page 6
^i^óteinn j^oruaiclóóon, BLAÐAMAÐUR STÚDENTALÍF / AUSTUlt-ÞÝZKANDl Eysteinn Þorvaldsson braut- skráðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 1954. Hann stundaði nám í blaðamennsku við háskól- ann í Leipzig 1955—57 og er nú blaðamaður við Þjóðviljann. Stúdentalíf og háskólanám í A,- Þýzkalandi er sérstæður þáttur í sögu þýzkra stúdenta, ólíkur fyrri þróunarstigum stúdentalífsins þar í landi og frábrugðinn þvi ástandi, sem nú rikir meðal stúdenta i V,- Þýzkalandi. Þýzkt stúdentalíf er ríkt af „traditionum", enda þótt þeirra gæti nú lítt í A.-Þýzkalandi. Mörg fræg svið úr sögu og bók- menntum eru einmitt tengd sögu þýzkra stúdenta. Mætti þar nefna Faust Goethes, en í því fræga verki gerist einn þátturinn í fornfrægustu stúdentaknæpu heims: Auerbachs- kjallara í Leipzig. Saga þýzks stúdentalífs öld fram af öld er þrungin taumlausum drykkjuskap og gjarnan krydduð einvígum og skilmingarómantik. Meðal stúdenta í Þýzkalandi hefur það jafnan þótt vera aðalsmerki að hafa ör í andliti eða hálf eyru vegna skilmingaáverka. Og enn í dag má sjá marga miðaldra og eldri akademikera með slík ör, sem reynt hefur verið að fletja út og gera sem mest áberandi. Og enda þótt grunur leiki á, að sumir þess- ara skrámuðu manna hafa krukkað í fésið á sér með rakhnif, þá eru þetta hetjur með ör, sem margur borgari ber lotningu fyrir. En þrátt fyrir alla léttúð og gervi- hetjuskap hafa oft verið sterkar rót- tækar taugar í þessum böldnu stúd- entum. Þáttur þeirra í byltingar- átökunum um miðbik síðustu aldar og í baráttunni fyrir einingu lands sins mun seint fyrnast. Þeir eiga líka heiðurinn af því að hafa fyrst hafið á loft fánann svart-gullna- rauða, sem enn í dag er einingar- tákn þýzku þjóðarinnar. Þegar rætt er um stúdentalif í er- lendu landi, er alltaf freistandi að bera það saman við stúdentalífið í heimalandinu. Slíkur samanburður milli Islands og A.-Þýzkalands sýnir harla mikinn mismun að öllu leyti. Það, sem einkennir stúdentalíf eða háskólanám hér hjá okkur og í öðr- um vestrænum löndum einna mest, er hið svokallaða akademiska frelsi, þ. e. frjáls tilhögun námsins varð- andi lengd námstímans og fyrir- lestrasókn, og þetta greinir líka há- skólanámið frá námi í óæðri skól- um. Segja má, að einkenni háskóla- náms og stúdentalífs í A.-Þýzka- landi sé alger andstæða þessa, þ. e.: Fullkomið námsstyrkjafyrirkomu- lag og þarafleiðandi strangur náms- agi og fyrirlestraskylda í flestum greinum. Ekkert sérstakt stúdentasamband er í Þýzka Alþýðuveldinu. Allsherj- aræskulýðssamtök sósíalista, „Freie Deutsche Jugend", eða deild innan þeirra, annast málefni stúdenta. FDJ hefur gert tillögur um kjör stúdenta og háskólafyrirkomulag. Samtökin hafa þrisvar birt stefnu- skrá um málefni stúdenta. Nýjasta stefnuskráin var birt síðastliðið haust. Námsstyrkjafyrirkomulagið í A,- Þýzkalandi mun vera það fullkomn- asta, sem til er í heiminum. Rúm- lega 90 prósent háskólastúdenta hljóta námsstyrki frá ríkinu. Börn verkamanna og bænda fá undan- tekningarlaust 180 mörk á mánuði. Munaðarleysingjar fá einnig þessa upphæð án tillits til þjóðfélags- stéttar og enn fremur nokkrir aðrir undir sérstökum kringumstæðum. Stúdentar úr öðrum þjóðfélagsstétt- um fá lægri styrki eða frá 130 mörkum á mánuði og stiglækkandi niður á við eftir aðstæðum. Ef faðir stúdents hefur mánaðarlaun, sem nema meiru en 1200 mörkum, hlýt- ur sá engan styrk. Auk þessara styrkja eru veittir viðbótarstyrkir fyrir námsdugnað. Tíu prósent stúd- enta fá 80 mörk í námsverðlaun á mánuði og þrjátíu prósent fá 40 mörk á mán. í sama tilefni. Auk allra þessara styrkja njóta stúdent- ar margs konar annarra hlunninda. Má í þvi sambandi nefna t. d. það, að 98 prósent stúdenta þurfa engin skólagjöld að borga, en 2 prósent borga 450 mörk á ári. Það er ætlun yfirvaldanna, að stúdentar þeir, sem fá 180 marka mánaðarstyrk (en það eru um 80% stúdenta), geti lifað sómasamlegu lífi af þessu fé. 1 „Opnu bréfi“ frá FDJ til 57 stúdentasamtaka, sem þátt tóku í hinni alþjóðlegu stúd- entaráðstefnu í Ceylon 1956, er yfir- lit, eins konar fjárhagsáætlun ó- gifts stúdents, sem fær 180 marka mánaðarstyrk. Þar er gert ráð fyrir, að stúdent verji fénu á eftirfarandi hátt: Húsaleiga, gas, rafmagn, fargjöld............... 30 mörk Fæði í stúdentamatsölu (ein heit mált., morg- unv., og kv.) .......... 70 — Bækur og ritföng .......... 20 — Ýmis konar fatnaður, fataviðgerðir, þvottur 30 — Leikhús, hljómleikar, kvikm. o. f 1., vindlingar 30 — Samtals 180 mörk Með skírskotun til eigin kynna get ég staðfest, að þessi 180 mörk nægja stúdentum til sæmilegs lífs- viðurværis. Þess ber þó að gæta, að Þjóðverjar eru miklu nægjusamari en Islendingar. Islenzkum stúdent- um myndi t. d. þykja það þröngur

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.