Stúdentablaðið - 20.03.1974, Blaðsíða 11
Vökuslúður
Framhald af 9- síðu.
menntaskólana hefur líklega
sjaldnast heppnast bemr í sögu
Stúdentaráðs en í vetur, enda
var hún skipulögð á fullkom-
lega lýðræðislegan hátt þar eð
deildafélög stúdenta í einstökum
greinum útnefndu kynnendur.
sem útbjuggu síðan kynningar-
blöðunga í sínum greinum
þannig að líklega hefur mennta-
skólanemnum aldrei gefist kost-
ur á jafn ýtarlegum og hlutlæg-
um skriflegum sem munnlegum
upplýsingum um einstakar
námsgreinar.
4) Við samningu hinnar ítar-
legu stefnuskrá menntamála-
nefndar hefur verið ömetanlegt
gagn að því að styðjast við þær
upplýsingar sem fengist hafa á
erlendum ráðstefnum um
menntmál (sérstaklega í Hels-
inki og í Vín, einnig í viðræð-
um í Kaupmannahöfn og Prag).
5) Ráðstefnan í Vín, sem
menntamálanefnd t.k þátt í var
styrkt af austurrísku stúdenta-
samtökunum (O.H.) og má það
vera nokkur huggun Vöku-
mönnum, því eins og kunnugt
er, eru O.H. íhaldssömustu
stúdentasamtök í Evrópu
Þess má að lokum geta að
menntamálanefnd hefur verið
boðið að skrifa grein um
menntamál í hið virta tímarit
Alþjóðasambands stúdenta:
Democratization of Education.
Einnig fól Bandalag Háskóla-
manna menntamálanefnd að
semja ræðu um háskólamál þ.e.
hlutverk háskóla og nýjar
námsleiðir, sem er ein af f jórum
ræðum se mfluttar verða á ráð-
stefnu B.H.M. um menntamál
22.—2. mars.
Þessir virðingarvottar sýna
best það traust og þá virðingu
sem menntamálanefnd hefur á-
unnið sér í vetur með miklu og
samviskusamlegu starfi.
Arni Blandon,
formaður mennta-
málanefndar S.H.I.
Bankinn sem
hefur
launaEolk
landsins að
baki
Alþýðubankinn er stofnaður af
aðildarsamtökum Alþýðusam-
bands íslands, í umboði 40
þúsund félagsmanna þsss, í
því skyni að efla menningar- og
félagslega starfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar, og treysta at-
vinnuöryggi launafólks á íslandi.
Til þess að þessum tilgangi
verði náð, er ör vöxtur Alþýðu-
bankans nauðsynlegur.
Það er þegar sýnt að launafólk
er sér meðvitandi um þessa
nauðsyn, því á fyrsta starfsári
,, banka.ns tvöfölduðust heildar-
innistæðut* hans.
Launafólk í öllum greinum
atvinnulífsins.
Eflið Alþýðubankann,
bankann ykkar.
Alþýdubankinn
STYRKIR
til námsdvalar í Frakklandi
sumarið 1974.
Franska rikisstjórnin hefur í hyggju að veita á sumri komanda
nokkra styrki handa íslendingum ti lnámsdvalar í Frakklandi í
einn mánuð (júlí, ágúst eða september). Hver styrkur nemur
600 frönkum á rnánuði. Til greina koma við styrkveitingu há-
skólastúdentar, kennaraháskólanemar, tækniskólanemar, nem-
endur í Iveimur efstu bekkjum menntaskóla, Verslunarskóla
Islands og Samvinnuskólanum.
Styrkirnir eru veittir til þátttöku í námskeiðum við ýmsa há-
skóla í Frakklandi og verður þar einkum kennd franska. Þeir
munu að öðru jöfnu ganga fyrir til styrkveitingar, sem hyggja
á háskólanám í Frakklandi eða frönsktmám við Háskóla íslands.
Franski scndikcnnarinn við Háskóla íslands, Jacqucs Raymond
(hcimasimi: 1 16 53), veitir nánari upplýsingar um styrki þcssa.
Skriflcgar umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, Reykjavík, fyrir 5. apríl nk. Fylgja skal ljósrit af nýj-
asta prófskírteini, svo og meðmæli skólastjóra eða kennara.
MENNTAMÁLARÁÐTJNEYTIÐ,
11 .mars 1974.
Eigum venjulega fyrirliggjandi
hinar heimsþekktu
ritvélar, 3 gerðir ferðaritvéla
og hina eftirsóttu rafritvél,
sem sérfræðingar telja nú bezt
gerðu ritvélina á markaðnum
í dag, sérstaklega þegar tekið
er tillit til hve ódýr hún er.
BORGARFELL HF.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 23, SÍMI 11372
NÝ STEYPUSTÖÐ
Frá og með 1. marz nk. munum vér hefja starfrækslu
steypustöðvar þeirrar, er áður var í eigu Verk hf. og
reka hana undir nafninu „BREIÐHOLT HF., Steypu-
stöð“.
Með alsjálfvirkri blöndun getum við tryggt jöfn og
örugg steypugæði. Við munum kappkosta að veita
góða þjónustu og bjóðum hagstætt verð og greiðslu-
skilmála.
Við erum tilbúnir að veita tæknilegar leiðbeiningar
um steypu og steypuvinnu oe kynnum okkur aðstæð-
ur á byggingarstað ef þess er óskað áður en steypu-
vinna hefst.
BREIÐHOLT h.f.
STEYPUST ÖÐ
Fífuhvammi - Kópavogi - Sími 43500 (4 línur)
styrkur
þjálni
þjónusta
Skrifstofa: Lágmúla 9 — Reykjavík — Sími 81550 — Símnefni: Breiðholt
STÚDENT ABLAÐIÐ — 11
t