Stúdentablaðið - 01.09.1983, Page 5
STUDENTABLAÐIÐ
5
Kynning á Félagsstofnun stúdenta
Á hverju ári bætist við nokkur fjöldi nýrra nemenda í H.í. Því er
þörf þeirra vegna að geta þessa fyrirtækis í 1. stúdentablaði vetrarins.
Hinir gamalreyndu nemendur í H.í. mega gjarnan lesa lengra og
öðlast meiri þekkingu á F.S. Félagsstofnun stúdenta var stofnuð
1968. Ekki með þeim tilgangi einum að hlúa að aumum náms-
niönnum með heitu vínarbrauði og kaffi í morgunsárið hcldur var
tilgangur stofnunarinnar og markmið mjög breitt. í dag tilheyra F.S.
eftirtaldar deildir: Bóksala stúdenta, Ferðaskrifstofa stúdcnta,
Matstofa stúdenta, Háskólafjölritun, Stúdentakjallarinn, Hótel
Garður, Gamli og Nýi Garður, Hjónagarðar, Kaffistofur í Lögbergi,
Ámagarði og aðalbyggingu Háskólans svo og barnaheimilin Valhöll
og Efrihlíð. Skrifstofa F.S. sér um daglega stjórnun þessara fyrir-
tækja. Verður nú getið helstu deilda og starfsemi þeirra.
Bóksala stúdcnta. hefur aðsetur í
Stúdentaheimilinu við Hringbraut.
Þar á að vera hægt að fá allar bæk-
ur sem kenndar eru við H.I., svo og
úrval af ritföngum, bókahillum og
fleiru. Bækur bóksölunnar eru
pantaðar á sumrin og eiga að vera
komnar í sölu í uþphafi skólaárs.
Markmið bóksölunnar er að vera
með réttar bækur á réttum tíma á
hagstæðu verði fyrir nemendur og
F.S.
Bóksalan er opin frá kl.
9.00—18.00. Sími 27822 og 24555.
Ferðaskrifstofa stúdenta, er stað-
sett í Stúdentaheimilinu við Hring-
braut. Markmið þessarardeildarer
að útvega námsmönnum ódýra
möguleika til að ferðast innanlands
og utan. Þetta hefur tekist í sumum
tilvikum en enn er unnið að verð-
lækkunum á öðrum leiðum. Nefna
má 25% námsmannaafslátt á
Sjóöir í vörslu SHÍ
Gagnstætt öllum venjum í okkar ágæta samfélagi lúrir vort ágæta
Stúdentaráð á sjóðum (sbr. atvinnuvegina sem aðeins lúra á skuldum.)
Sjóðimir eru tveir og heitir sá feitari Stúdentaskiptasjóður.
Samkvæmt 2. grein reglugerðar
sjóðsins er hlutverk hans að styrkja
deildarfélög og önnur félög við H.í.
sem ekki eiga aðild að Stúdentaráði
til samskipta við erlenda stúdenta.
Fé fær sjóðurinn af innritunar-
gjöldum og skal a.rn.k. 10% þeirra
renna í sjóðinn (100 kall frá hverj-
um stúdent þetta árið). Úthlut-
unarnefnd fyrir sjóðinn skipar svo
hagsmunanefnd SHÍ (þar sem Jó-
hanna hefur töglin og hagldirnar).
Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fer
fram í nóvember og skal auglýst í
októbermánuði (sjá næsta Stbl.).
Ætlað er að þá verði eftir um
fimmtungur auðsins sem skal klár-
ast í vorúthlutun en hún er auglýst í
febrúarmánuði.
Og þá er það hinn sjóðurinn en
sá heitir Félagsmálasjóður
stúdenta. Til skamms tíma voru í
hlutverki hans tveir sjóðir: Sjóður
funda- og menningamálanefndar
og félagsmálasjóður. Jafnframt
samruna þessara tveggja sjóða var
tekið fyrir úthlutun fjár til póli-
tískra félaga (sjóðasukkið marg-
fræga).
Þessum sjóði er ætlað að styrkja
hvers kyns félagsstarfsemi á vegum
stúdenta og útgáfustarfsemi
einstakra félaga. (Sjá nánar aug-
lýsingu hér I blaðinu). Tekjulind
hans er4% innritunargjalda.
frh. af síðustu síðu
Utanríkis-
nefnd
Hér I næstu línum er ætlunin að
geta í örfáum orðum þeirra verk-
efna og starfa sem utanríkisnefnd
SHI mun gera skil á komandi
mánuðum. í meirihlutasamstarfi
Félags vinstri manna (FVM) og
Félags umbótasinnaðra stúdenta
(FUS) mun nefndin fjalla um og
gera ályktanir þegar þessgerist þörf
hverju sinni. Þetta fer að sjálfsögðu
eftir efni og ástæðum sem upp
kunna að koma. Hverjum meðlimi
nefndarinnar er að sjálfsögðu skylt
að taka afstöðu eftir sinni sannfær-
ingu eins og í hverju því landi sem
telur sig í hópi lýðræðisríkja
heimsins. Full mannréttindi gilda.
Utanríkisnefnd skipa nú undir-
ritaður, Jón Gunnar Grjetarsson
sem jafnframt er formaður hennar,
Ólafur Sigurðsson (báðir fulltrúar
FVM), Baldur Ragnarsson sent er
fulltrúi nefndarinnar í stjórn
stúdentaráðs (fulltrúi FUS), Lína
G. Atladóttir og Óskar Sverrisson
(bæði fulllrúar Vöku). Nefndin
mun starfa að þeim málum er
varða erlend samskipti svo og að
þeim er SHI felur henni beint. Við
leggjum áherslu á eflingu sam-
skipta við erlendar stúdentahreyf-
ingar hvar sem er í heiminum. Við
munum reyna að koma á almenni-
legum og virkurn samskiptum við
svokallaðar jaðarþjóðir Norður-
landa, t.d. Grænlendinga og Fær-
eyinga svo og Álandseyinga
og Sarna svo dæmi séu tekin. Reynt
verður að koma á samskiptum
þessum sem fyrst og þá á jafn-
ræðisgrundvelli. Lögð verður
áhersla á áframhaldandi samstarf
við aðrar stúdentahreyfingar á
Norðurlöndum (NOM). Einnig
munum við fylgjast áfram með
starfsemi WESIB, sem er vestur
evrópsk upplýsingamiðstöð
stúdenta og könnuð aðild okkar að
henni í rólegheitunum.
Hvað viðvíkur samskiptum við
stúdentahreyfingar þar sem þjóð-
félagslegt umrót á sér stað þá mun
nefndin reyna að efla þau. Ef litið
er til stúdentahreyfinga i hinum
svokölluðu þróunarlöndum, eða í
þriðja heiminum, þá mun nefndin
reyna að koma á upplýsingamiðlun
um mörg þau mál er varða nám I
Háskóla, hvar sent er í heiminum,
og á þetta sérstaklega við þar sem
þjóðfélagslegt umrót á sér stað svo
sem í E1 Salvador, Afghanistan,
Póllandi, Tyrklandi og víðar. Hér í
þessu sambandi er hugmyndin sú
að skrifa þessum stúdentahreyf-
Ódýrum flugferðum frá íslandi til
Evrópu. Ódýrum lestar- og flug-
ferðum innan Evrópu. Einnig var
sérstakur námsmannaafsláttur á
ferjunni í sumar.
Ferðaskrifstofan er opin frá kl.
9.00—17.00. Sími 16850.
Matstofa stúdcnta, er einnig stað-
sett í Stúdentaheimilinu. Þar er
hægt að fá góða máltíð á viðráðan-
legu verði. Einnig er hægt að fá t.d.
súpu, brauð og grillrétti. I október
verður gerð tilraun með einn
„verulega“ ódýran rétt daglega.
Vonast er til, að sú tilraun eigi eftir
að gefa góða raun. Verð í matstof-
unni er reiknað í einingum. Ein-
ingakort eru seld í Bóksölu
stúdenta.
Frábær matur
fyrir lítiö fé ...
Verð 100 ein. = 1.240 kr.
Verð 200 ein. = 2.170 kr. og
Verð 300 ein. = 3.000 kr.
300 einingakortin gefa því mestan
afslátt á mtatarverðinu.
Matstofan er opin frá kl.
11.30—13.15.
taka ljósrit af gömlurn prófum, láta
fjölrita ritgerðir og fá vélritaðar og
ljósritaðar ritgerðir.
Fjölritunin er opin frá kl.
8.00—16.00 daglega.
ur um þennan garð og um Gamla
og Nýja Garð. fbúar búa þó yfir-
leitt allt árið á Hjónagörðum. Um-
sóknarfrestur er 15. júlí. Biðlistar
eru á öllum görðunum.
Kaffistofur. Yfir vetrarmánuðina
eru reknar kaffistofur í Lögbergi,
Árnagarði og aðalbyggingu Há-
skólans. Þær eru opnar frá kl. 9.00
til kl. 15.30 mánudaga — föstu-
daga. Þar er hægt að fá rjúkandi
kaffi og meðlæti á vægu verði.
Bamaheiniili stofnunarinnar eru
Valhöll við Suðurgötu og Efrihlíð
við hlið Hamrahlíðaskólans.
Barnaheimilin eru rekin af
Reykjavíkurborg, þannig að þessi
FÉLAGSHEIMILI
STÚDENTA
ingum og fá hjá þeim upplýsingar
um skóla og nám í viðkomandi
löndum svo og upplýsingar um
ástand þjóðmála. Þannig fáum við
upplýsingar sem ættu að vera
áhugaverðar fyrir námsmenn og
gætu þær orðið efni í vísi að upp-
lýsingabanka í einhverri mynd. Að
sjálfsögðu munum við senda frá
okkur annað eins og miða þannig
að því að upp komist eðlileg sam-
skipti námsmanna um allan heim,
burt séð frá miklum pólitískum
vangaveltum.
Hver veit nenia upp vakni áhugi
námsmanna fyrir námi í einhverju
þeirra landa sem við fáum upplýs-
ingar frá. Með þessu móti fáum við
upplýsingar um það sem er að ger-
ast i skólamálum utan okkar
heimsálfu líka. En hver veit nema
þetta sé aðeins fjarlægur draumur
sem seint á eftir að rætast? Þessar
vangaveltur eru skemmtilegar og
áhugaverðar og vel þess virði að
framkvæma þær. Þetta viðfangs-
efni er hægt að framkvæma án
mikils tilkostnaðar. Kannski er
þetta bara draumur sem aldrei
rætist en samt þess virði og reyndar
ansi þarfur draumur sem á að geta
orðið að veruleika. Við stefnum
allavega að því I vetur.
Jón Gunnar Grjctarsson
forni. utanríkisnefndar
Stúdentakjallarinn, er í kjallara
Gamla Garðs. Hann er opinn frá
kl. 11.30—23.30 öll kvöld. Hægt er
að fá léttar veitingar t.d. pizzur og
samlokur, kaffi, te og kökur auk
léttvíns.
Hótel Garður, starfar á tímabilinu
10. júní til 1. september. Undan-
farin 2 ár hefur hótelið verið starf-
rækt á Gamla Garði.
Gamli og Nýi Garður. Þessir
stúdentagarðar eru einmennings-
garðar. Á Gamla Garði eru um 40
herbergi og á Nýja Garði um 60
herbergi. Umsóknir þurfa að berast
fyrir 15. júlí fyrir vetrarvist og í
byrjun maí fyrir sumarvist.
Ákveðnar reglur gilda um hverjir
komast inn á garðana, svokallaðar
úthlutunarreglur. Úthlutun er í
höndum þriggja manna nefndar
sem skipuð er af Stúdentaráði,
skrifstofu F.S. og einum frá H AGA
(Hagsmunafélagi Garðbúa). Á
hvorum garðinum eru garðprófast-
ar sem sjá urn daglegan rekstur og
eftirlit.
Hjónagarðar. F.S. á 55 íbúðir við
Suðurgötu 69. Gilda svipaðar regl-
pláss fara inn í heildarframboð
barnaheimila í Reykjavík.
Sem fyrr segir sér skrifstofa F.S.
um daglega stjórnun ofannefndra
fyrirtækja auk verkefna sem tengj-
ast óbeint. Þar má nefna baráttu
fyrir auknu húsnæði fyrir náms-
menn, aukin barnaheimilispláss
o.fl.
Yfirstjórn F.S. er í höndum
stjórnar sem er þannig skipuð.
Tveimur fulltrúum stúdenta og
einum háskólamenntuðum manni
sem skipaður er af Stúdentaráði
H.Í., einum fulltrúa menntamála-
ráðuneytisins og einum fulltrúa
háskólaráðs.
Eftirtaldir fulltrúar sitja nú í
stjórn F.S.:
Kristín Ástgeirsdóttir, sagn-
fræðingur, formaður
Þorsteinn Húnbogason, viðskipta-
fræðinemi
Kristján Ari Arason, sálfræðinemi
Helga Jónsdóttir lögfræðingur,
fulltrúi ráðuneytis.
Valdimar Hergeirsson viðskipta-
fræðingur, fulltrúi háskólaráðs.
Framkvæmdastjóri Félagsstofn-
unar stúdenta er Sigurður Skag-
fjörð Sigurðsson.
Stúdentar verslið
hjá okkur og styrkið
eigið fyrirtæki
■Auglýsing-
vegna úthiutunar úr
félagsmálasjóði stúdenta.
Samkvœmt reglugerð er hlutverk sjóðsins að:
a) styrkja starfsemi deildarfélaga innan Hdskóla íslands og
annarra félaga sem starfa í þágu studenta Háskóla íslands.
b) styrkja þá blaðaútgáfu, sém er á vegum þeirra aðila, sem
getið er í a) lið.
Umsóknir ásamt greinargerð um starfsemi
þurfa að hafa borist skrifstofu SHÍ fyrir 1.
nóvember nœstkomandi.
Úthlutunarnefnd