Fálkinn - 08.06.1929, Síða 4
4
F A L K I N N
Bœndur í Korea við maisuppskeru.
menn tóku að hafa afskifti af
honuin. Ræktunaraðferð tndiána
var mjög óhrotin. Kvenfóllcið
annaðist um ræktunina, —
ruddi skóginn, með því að
kveikja í honum, rótaði mold-
inni og öskunni saman í hauga
og gróðursettu þar maís-Kjarna.
Bændurnir í Ameríku, sem i
fyrstu lærðu maísrækt hjá Indí-
ánum nota ennþá orðin „hills of
corn“ — eða maíshóla, um maís-
akrana, og sýnir þetta, að rækt-
unin hefir í fyrstu verið í smá-
hólum, en ekki á flatlendi, j)ó
þetta sje nú orðið breytt. ög
það er eftirtekarvert, að það
sem Ameríkumenn kalla „corn“:
þ. e. korn, er einmitt mais.
Nú á tímum hefir mais breiðst
um víða veröld, en vitanlega eru
ræktunarskilyrðin undir loftslag-
inu komin. f Evrópu eru það
einkum Dónár-löndin, sem
stunda maísrækt að nokkrum
mun, í hlutfalli við aðra korn-
yrkju. Einnig er talsverð maís-
rækt i Spáni og þó fremur i
ftaliu.
En Ameríka er ennþá aðal
heimkynni maísins og verður
sennilega um ófyrirsjáanlegan
tima. í Norður-Ameríku eru
ræktaðir % af allri heimsfram-
leiðslunni. Hagskýrslurnar sýna,
að í Norður-Ameríku, eða rjett-
ara sagt Bandaríkjunum er maís
ræktaður á 40.000 hektörum
lands, en í þeim löndunum, sem
næst koma, Rúmeníu og Argen-
tínu, á aðeins 3 til 4 þúsund
hekturum. Og vjelaiðnaðurinn
hefir haft óumræðileg áhrif á
maísframleiðsluna. Fyrir 50 ár-
um kostaði það 16—17 stunda
vinnu að framleiða 100 kg. af
maís, en nú tvær stundir eða
minna. Landbúnaðarvjelarnar
hafa orsakað byltingu í þessari
grein, og áhrif þeirrar byltingar
má fyrst og fremst marka af
stórfeldri verðlækkun. En þó
verða svo miklar verðbreytingar
á maís, eftir því hvort upp-
skeran er mikil eða lítil, að sum
þau lönd, sem venjulega kaupa
þessa ódýru korntegund til
skepnufóðurs, verða að vera án
hennar, þegar framboðið er lít-
ið. Hinsvegar fer uppskeran svo
fram úr hófi stundum, að bænd-
ur verða að nota kornið til elds-
neytis í stað þess að flytja það
á markaðinn.
Maisinn er af grasættinni,
sem kölluð er í jurtafræðinni.
Stráið verður 3—4 metra langt,
og um hálfan sentimetra á þykt.
Kólfurinn með maísbaununum
er á lilaðstöngli i miðri blað-
hvirfingunni. Maiskornin eru svo
þjett, að þegar þau fara að vaxa,
fletja þau hvert annað út og
verða þessvegna köntuð og af-
löng. Á maís með gisnum korn-
um eru þau í laginu eins og
stórar baunir og alveg kúlu-
mynduð, en slík korn eru mjög
sjaldgæf. Talið er, að um 120
inismunandi tegundir sjeu til af
maís. Stönglar jurtarinnar og
blöð, eru notuð til skepnufóðurs
ástaðnum, og jafnast að fóður-
gildi á við hey.
Mais er notaður á ýinsan hátt.
I flestum þeiin landbúnaðarlönd-
um, sem einkum leggja stund á
framleiðslu mjólkur, osta og
smjörs er hann notaður afar
mikið sem gripafóður. Danskir
bændur hafa t. d. aukið maís-
kaup sin frá öðrum löndum úr
4000 smálestum í 500000 síðan
um 1880. í Ameríku standa
menn það fram-
ar Evrópumönn-
um, að maís-
brauð þykir ó-
missandi á borð-
inu með öðru
brauði, í Ítalíu
er maísgrautur
alstaðar á borði
fátækra, — Spán-
verjar baka kök-
ur og brauð úr
maísmjöli, Indí-
ánar í Suður-
Ameríku brugga
maísbrennivín og
í Mexíkó brugga
menn öl úr maís-
stönglunum.
Og svo hafa
síðustu ára bæti-
efnarannsóknir
leitt í ljós, að
þessi korntegund
er auðug af bæti-
efnum eða líf-
gjafaefnum, sem
allir sár-þreyttir
menn sækjast eft-
ir til þess að
endurnýja fjörið
í sjálfum sjer.
Og því hafa risið
ur, sem taka
Ljósmyndastofa Óskars Gísla-
sonar, Austurstræti 14. Opin virka
daga kl. 10—7 og sunnud. kl. 1—4.
LÖNG HJÓLREIÐAFERÐ
Nýlega kom Portúgalinn de Lima til
Lissabon úr 15 þúsund enskra mílna
ferðalagi á reiðhjóli. Hann lagði i
ferðina í Loanda í Suðvestur-Afríku
í mars 1927. Var hann aleinn alia leið
og fór um Kongo, Sudan, Egyptaland,
Sýrland, Tyrkland, Grikkland, Alhan-
iu, Jugoslavíu, ítaliu, Frakkland, Belg-
íu og Spán til Portúgal. Hann var ár
og níu mánuði á leiðinni, notaði sama
reiðhjólið alla leið og varð ekki fyrir
neinum verulegum óhöppum, þó hann
yrði víða að fara vegleysur.
hlutann af maísnum og setja
hann í fallega pakka, sem nú
ganga um víða veröld undir
nafninu „Corn FIakes“ og öðr-
um nöfnum, og þykja ómiss-
andi, þegar inaður hefir vanist
þeiin á annað borð. — Og þar
með er því slegið föstu, að maís-
inn er að ryðja sjer braut að
þeim sessi, sem hveitið hefir
Eftir maísuppskcrn á Haiti. Kólfarnir liengdir upp i trje
til fierris.
upp verksmiðj- setið í hingað til. Því bætiefnin
bætiefnaríkasta eru orðtak nútímans.
nýkomið.
m
•iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiia
) Mitið ínalj
af góðum og ódýrum 5
! fataefnum I
s
S
•iiiiiiiiiiuniiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiii*
Maður i Tennesee í Ameriku hafði
Iagt ríkt á við konu sina að lileypa
ekki kcttinum út. Hún hlýddi ekki
skipun lians. Eitt sinn er hann kom
heim, mætti liann kisu á hlaðinu.
Hann gekk síðan inn — og skaut
konuna sína með skammbyssu.
----x----
David Davies, eða „hirðinginu frá
Dartmoor“, sem hann venjulega var
nefndur, andaðist nýlega í London.
Hann var „frægur“ fyrir að liafa setið
i varðhaldi í samtals 50 ár. Hann gat
nfl. qkki hætt að stela, cinkum úr
kirkjum, og var álitið af sumum að
hann væri stelsjúkur og ætti því ekki
heima í fangelsi. Lloyd George og
Cliurchill liöfðu báðir notað iiann til
styrktar frumvarpinu um rjettarbætur,
og því varð Davies „frægur“. Hann
vax-ð 79 ára.
Hinn nýji foringi Hjálpræðisliersins,
Higgins, hefir fengið leyfi frakknesku
stjórnarinnar til þess að senda flokk
manna til „djöflaeyjunnar“ i Guiana,
þar sem 8000 glæpamenn eru hafðir I
haldi. Þar liefir aldrei verið prestur,
engir skólar nje fyrirlestrar haldnir
fyrir fangana og yfileitt ekkert gert til
þess að betra þá. Hiti er þar óskap-
Iegur og hafið kringum eyna er krökt
af hákarli, sem gleypt liefir hvern
þann sem freistað hefir þess að synda
í land. Á eyju þessari eru allir liættu-
lcgustu afbrotamenn Frakklands, svo
]iað er ekki liættulaust að ætla sjer
að lifa meðal þeirra sem kristniboði.
Charles Edison, sonur liins fræga
uppfyndingamanns, tilkynnir nýlega,
að faðir hans sje að leita fyrir sjer
eftir ungum manni sem geti „haldið
áfram“ starfsemi gamla mannsins
eftir hans dag. Verður nú valinn einn
efnilegur maður úr liverju fylki og
])eir síðan allir sendir til Edisons „til'
yfirheyrslu". Sá sem valinn verður,
verður kostaður á skóla af Edison og
á siðan að starfa á verksiniðju lians.
í Toronto kom fyrir nýlega að
brúðguminn, sem verið var að gifta,
fjekk svo ákafan hiksta meðan hann
stóð fyrir altarinu, að fresta varð at-
höfninni.
Prestur nokkur í Ameríku liefir
fundið upp á ágætu ráði til þess að
að fá fólk til að sækja kirkju lians.
Hann lætur taka ljósmyndir af kirkju-
gestum alveg ókeypis, svo nú er kirkj-
an troðfull livern messudag.
I