Fálkinn - 08.06.1929, Blaðsíða 9
F A L K I N N
9
t dijragöröunum erlendis cr það oft
vandasamasta verkið, að lialda dýrun-
um hreinum og þriflegum. Því allskon-
ar óþrif og lýs vill sækja á þau i fang-
elsunum, þó ckkert beri á slíku meðan
dýrin eru vilt. Á mgndinni sjest mað-
ur vcra að þvo skjaldböku, -— hann
burstar hana upp úr sápuvatni. Skjald-
bakan cr róleg á meðan athöfninni
stendur, en það verður eldd sagt um
ýms önnur dýr, sem líka þurfa þvoita
við.
IIjer i blaðinu hefir verið getið hinna
tveggja stórsýninga, sem Spánverjar
halda í sumar, einkum heimssýningar-
innar í Barcelona. Sýningin i Sevilla er
hinni nokkuð frábrugðin, og er aðaltil-
gangur hennar að sýna, hversu miklum
framförum Spánn og hinar fornu ný-
lendur Spánverja i Ameriku hafi tek-
ið síðan Columbus fann Vcsturheim.
Mgndirnar hjer til vinstri eru teknar
daginn scm Sevilla-Sýningn var opnuð.
Á þeirri cfri sjest Alfons konungur um
borð á skipinu „Santa Maria“ sem er
nákvæm eftirliking skips þess, sem
Columbus sigldi vestur. Á neðri mynd-
inni sjest Primo de Rivera vera að tala
við konungshjónin, er þau koma akandi
til þess að vera viðstödd opnun sýning-
arinnar.
Hjer eru tvær mgndir frá heimssýning-
unni i Barcclona. Stærri mgndin sýnir
inngönguhliðið á sjálft sýningarsvæðið,
er það mjög skrautlegt, eins og sjá má
á mgndinni. Litla mgndin er af annari
stærstu sýningarhöllinni; þar verður
nær eingöngu sýnd sjmnverslc list.