Fálkinn


Fálkinn - 20.07.1929, Blaðsíða 4

Fálkinn - 20.07.1929, Blaðsíða 4
4 F ALKINN I’essi hjörijiinarhátur getur elcki sokkiö. Haiux tekur 1 ht) manns. tii Harboöre, þar sem svo inörg og geigvænleg slys hafa orðið. Nóttina inilli 12. og 13. april 1847 strandaði enska barkskip- ið „Vertumnus“ í ofsaveðri við Harboöre. Þrettán manns voru á skipinu, en aðeins fjórir kom- ust lifandi i land. Fólkið í landi gerði það sem það gat til þess að bjarga skipsbrotsmönnunum. Þrjú rif voru við ströndina og stóð skipið á miðrifinu, svo nærri landi, að fólkið gat fylgst með öllu þvi sem gerðist um borð. Menn reyndu að koma línu út í skipið. Það tókst að lokum, en þegar draga skyldi kaðal á linunni milli skips og lands þá slitnaði hún. Næsta dag allan og nóttina eftir sá fólkið í landi skipsmennina berjast við dauðann, og mann eftir mann týnast fyrir borð. Loks tókst að koma streng út í skipið aftur og síðustu fjórir mennirnir um borð björguðust á síðustu stundu, aðfram komnir. Maðurinn sem stóð fyrir björgunartilraununum í landi hjet Claudi og var sandgræðslu- maður þarna á staðnum. Og á hann hafði viðburður þessi þau áhrif, að hann hófst handa um að beita sjer fyrir því, að kom- ið yrði á fót öflugu slysavarna- fjelagi. Starf hans bar heillarík- an ávöxt og nú standa Danir framarlega í þessum efnum. Claudi tókst ferð á hendur til Englands á eigin kostnað til þess að kyiinast björgunarmál- um Breta, en þar hafði slysa- varnafjelag verið stofnað árið 1824 sem starfaði ineð sam- skotafje, án nokkurs opinbers styrks. Þegar hann kom heim aftur fjekk hann „Foreningen til Skibsfartens Fremme“ og Frí- múraraf jelagið til þess að ljá málinu fylgi og fyrsta sporið var stigið: settir björgunarbátar við Agger Kanal og Harboöre og flugeldaáhöld við Klitmöllen. Claufi var óþreytandi. Árið 1849 ljekk hann komið því til leiðar, að stjórnin skipaði nefnd til þess að ihuga björgunarmálin. Átti hann vitanlega sjálfur sæti í þeirri nefnd. Sköininu síðar — á ríkisþinginu 1851—52 var fyrsta fjárveitingin til björg- unarstarfsemi tekin upp á fjár- lögunum og lög samþykt um slysavarnir. Gilda þau lög að mestu leyti óbreytt, enn þann dag í dag. Nú eru í Danmörku yfir 60 fullkomnar björgunarstöðvar með nýtisku áhöldum og starfs- mönnum, sem heita inega ein- valalið. Og síðan 1852 hefir björgunarliðið alls bjargað um 11.000 manns úr greipum Ægis. Maluerk af slysinu við Harboöre 1897, — er bjönjunarbátinn rekur i land. 25 25 m I 1 I I I i m 25 T h e r m a Therma rafmagns suðu- og hitatæki hafa verið notuð á íslandi um tvo áratugi samfleytt. Margar gerðir af raftækjum hafa komið á íslenskan markað á þeim tíma, en engin hefir tekið Therma fram. Therma tæki eru ekki ódýrust í innkaupi, en þau verða ódýrust í reyndinni, vegna þess að þau endast best og þurfa minst viðhald. Leitið nánari upplýsinga um Therma hjá Júlíus Björnsson og Electvo Co. raftækjaverslun Akurepri. 1 É m 1 I á á á i Það var elju Claudi að þakka, að danska ríltið varð fyrst allra ríkja til þess að taka björgunar- málin í sínar hendur. Þremur árum síðar gerði Svíþjóð það sama, en það var ekki fyr en nokkuð löngu síðar, að fyrstu björgunarfjelögin voru stofnuð í Frakklandi og Þýskalandi. Og þó undarlegt megi virðast, var norska slysvarnafjelagið ekki stofnað fyr en 1893. Christópher Berent Claudi varð fyrsti forstjóri slysavarn- anna í Norður-Jótlandi og gegndi því starfi til 1870, að hann varð að láta af því sök- um lasleika. Og í ársskýrsl- unni fyrir 1869 segir svo: „Eins og stofnun björgunar- starfseminnar hjer í landi má þakkast þessum manni einum, eins má segja að gengi þess fram að þessum degi, sje að þakka starfi þessa sama manns, og missir málið mikils, er hans hættir að njóta við“. Maðurinn var Claudi, faðir danskra slysavarna. Hann dó 1880. ftalska ríkið hefir nýlega gefið Mussolini skemtisnekkju eina og ætl- ar hann að nota liana til ferðalaga sinna um Miðjarðarhaf. Skipið heit- ir „Aurora“ og var upprunalega eign ensks auðkýfings, en lenti á stríðs- árunum hjá Austurrikismanni, en ítalir slógu eign sinni á það er þeir tóku Fiume. Síðan Iiefir skipið verið notað sem spitalaskip, en nú liefir það verið dubbað upp og skreytt eftir föngum, svo að það yrði boðlegt handa Mussolini. Það er haft til marks um, að fjár- hagur Parisarbúa sje slæmur um þessar mundir, að óvenjulega margir veðsetja bifreiðarnar sinar. Hand- veðslánastofur borgarinnar hafa alveg gefist upp við að leigja pláss fyrir allar bifreiðarnar sem þær lána út á, og hafa því látið byggja geymslu- skúra fyrir 600 bifreiðar — minna telja þær ekki að komi að gagni, svo að hægt sje að hýsa allar þær bif- reiðar sem að jafnaði standa að veði fyrir lánum. Kerling ein suður i Serbiu, 93 ára að aldri hefir nýlega orðið uppvis að því, að hafa drepið yfir 60 manns. Kerlingin heitir rjettu nafni Anjuka Dee, en gengur undir nafninu „Banat- nornin“. Hún eitraði fyrir fólk með arseniki. Kerlingin hefir orðið að játa á sig öll þessi morð, en lætur eigi hugfallast eigi að siður og kveðst viss um, að hún verði ekki dæmd til líf- láts, — „og úr tugthúsinu kemst maður einhverntima aftur“, segir hún. Hún er mjög tilhaldssöm, liðar liár sitt og farðar sig á hverjum degi og hefir meira að segja fengið leyfi til að láta tannlækni setja í sig nýjar tennur, eftir að hún kom í gæslu- varðhaldið. Nýja-Sjáland er ennþá meira jarð- skjálfta- og cldfjallaland en ísland, og núna í síðasta mánuði var óvenju- lega ókyrt suður þar. Á 36 klukkutim- um komu 21 stórir jarðskjálftakippir og í einum þeirra hvarf heilt fjall, sökk bókstaflega i jörð. Heitir það Mount Stevens. Ókunnugt er enn, hve margt manna hefir farist þegar þetta skeði, en sennilega hefir það verið mesti fjöldi, því fjölmenn bygð var undir fjallinu. Fyrsta þing reykingamanna var ný- lega liáð í Paris. Samþykti þingið ýmsar tillögur, þar á meðal nokkrar viðvíkjandi tilbúningi vindla og vindl- inga, og voru þær sendar stjórn tó- bakseinkasölunnar frönsku til álita og væntanlega eftirbreytni. En i fund- arlok var háð kappreykingamót og unnin þar ýms „afreksverk". Kepp- endum var skift í þrjá flokka, eftir því hvort þeir reyktu vindla, vindl- inga pða pípu, og var sama tóbaks- tegundin notuð í hverjum flokki. Einn maðurinn reykti 67 vindla á 6 tímum, annar 312 vindlinga á sama tíma og þriðji eitt enskt fund af tó- baki á 11 tímum — og hann var sá eini, sem var eftir sig daginu eftir. Kendi liann þvi um, að hann hefði ckki mátt liafa nema tvær pipur til skiftanna. „Hefðu þær verið fimm, skyldi jeg ekki hafa fundið til þess“, sagði hann.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.