Fálkinn


Fálkinn - 10.08.1929, Blaðsíða 4

Fálkinn - 10.08.1929, Blaðsíða 4
4 F Á L K I N N Svona eru hafísjakarnir, sem stundum verSa á vegi skipa í norSanverSu Atlantshafi. Þessi jaki sást af skipi t Atlantshafinu sama mánaðardag og ,,Titanic“ hafSi farist 13 árum áiSnr. árs, þegar kaldast er í sjónum komast þessir jakar svo langt suður í haf, áð skipum, sem fara bein siglingaleið milli Eng- lands og New York getur staf- að hætta af. Má í því sarnbandi minna á hið ægilega slys 1912, þegar eitt af stærstu skipum felli og hungur manna og skepna. En að ísinn sje ekki fjarri stundum, þó ekki l'ylli hann firði og flóa, má marka af því, að býsna oft verða fiskiskip að flýja miðin við vesturlandið vegna þess að þar verður alt fuít af ís. Isjaki, nýkominn á flot í Elah i Norihir-Grænlandi. heimsins, „Titanic" fórst á jaka í vestanverðu Atlantshafi og i'órust á annað jjúsund manns. Hjer við land þekkjum við best hafísinn, þegar hann legst upp að ströndum landsins og heftir siglingar á hafnirnar norð- anlands mánuðum saman og veldur harðindum, sem orsaka A myndunum sem hjer fylgja gefur meðal annars að líta aðal „framleiðanda" hafíssins, nfl. grænlendska landísinn. Þá má ennfremur sjá hafísjakana eft- ir að þeir eru komnir út á rúm- sjó og get'a myndirnar nolckra hugmynd um, hvernig algeng- ustu hafísjakar sjeu. Oft er Á þessari mgnd er hægt að geru samanburð á stœrð venjulegs skips og hafísjaka. T H E R M A »Therma« Fabrik fiir electrische Heizung A/G., af þeim raftækjaverksmiðjum sem þekt er ein Schwanden, er um alla Evrópu, og viðurkend fyrir að skara fram úr hvað vöru- §3 vöndun snertir. — Hin stærstu iðnaðarlönd í álfunni, svo sem t. d. Þýskaland, kaupa rafmagnstæki af Therma. Allir þeir sem ætla að kaupa eitthvað sjerlega vandað, spyrja um „Therma“. Snúið yður til: ]ÚLÍUS BJÖRNSSON, raftækjaverslun, eða ELECTRO CO., Austurstræti 12, Reykjavfk. Akureyri. eklti eintómur ís í þessum fljót- andi ferlíkjum, því grjót og möl hefir frosið við ísinn og berst með honum þangað til hann hráðnar. Vitanlega kemur elcki allur hafís frá Grænlandi. í sjónum umhverfis norðurheimskautið myndast að staðaldri is, sem svo rekur suður á bóginn. Og þegar kemur á suðurhvel jarðar er það vitanlega eingöngu ísinn frá suðurheimskautinu, sem þar er um að ræða, því aldrei hefir svo stór eða „kaldur“ hafísjaki verið til, að hann hafi komist ó- bráðinn yfir hitabeltið. Suður í Tranvaal liefir unga fólkiS tekið upp á að reykja jurt, sem heit- ir (logga. Áhrifin seni þessi jurt hefir á ])á sem reykja hana eru litlu betri en af ópium eða öðru líku. Fólkið verður sinnulaust og fellur í værðar- mók og missir starfsþrek sitt, ]>æði andlegt og líkamlegt. .Turt. þessi vex mjög víða i Transvaal og eru yfir- vöhlin ]>vi i vandræðum hvað gera skuli til ]>ess að útrýma misbrúkun á henni. Nýlega flúðu tvö gamalmenni af elliheimili einu i Ameríku. Karlinn var 69 ára og hafði orðið ekkiil tvisv- ar, en kerlingin 63 og var ekkja. Eftir nokkra daga komu l>au í leitirnar og voru ])á húin að gifta sig. Þau höfðu ltynst á elliheimilinu og orðið svo ástfangin hvort af öðru, að þau af- rjeðu að giftast. En af því að þau bjuggust við, að þeim mundi eltki verða leyft að ná saman á elliheim- ilinu, tóku þau til hragðs að flýja burt til þess að gifta sig. Furstinn af Haiderabad, sem er tal- inn einn af ríkustu furstum í Ind- landi, hefir neyðst til að hiðja Ind- landshanka um að geyma fyrir sig 625.000 sterlingspund í mótuðu gulli. Stafar þetta af því, að fjárhirslur furstans eru orðnar svo fullar af gulli og silfri, að þar er elcki rúin fyrir meira. Henry Ford hefir nýlega . sent al- þjóða-atvinnumálastofnuninni i Genf tilmæli um, að gefa sjer upplýsingar um, hvað kosti að lifa i ýmsum horg- um Evrópu. Hann vill sem sje . vita þetta, til þess að geta miðað kaup verkamanna sinna í Evrópu þannig, að þeim verði ekki minna úr kaupinu en verkamönnum hans i Ameriku. En eins og kunnugt er, eru vetkamenn F'ords allra manna hæst launaðir þar. Ford heldur þvi fram, að gjnlda eigi scm hæst kaup, svo að kaupgetan vaxi og verkamenn geti veitt sjer sem mest Hfsþægindi. í Bandarikjunum tók lögreglan ný- lega mann fastan fyrir einkennilegt afhrot. Hann hafði sett saman vökva, sem hann gat notað til j>ess að þvo stimpilsvcrtu með af notuðum frí- merkjum, svo vel að þau litu út eins og nýy Maður hafði keypt notuð frí- merki í pundatali, þvegið þau og selt cins og ónotuð væru. Hefir hann meðgengið að liafa selt um 5 miljón „ný“ frímerki. Nýlega stóð 24 ára gö’mul kona fyr- ir rjetti i London, sökuð um að hafa gifst óleyfilcga í annað sinn, með þvi að maður liennar fyrri væri á lifi og hún hefði ekki fengið skilnað. Við rjettarhöldin kom á daginn að kon- unni höfðu borist fregnir um, að máður hennar, sem heima átti í Kina, var sagður dauður fyrir tveimur ár- um, og hafði hróðir hans borið henni fregnina. Maðurinn varð að játa, að hann hefði látið ])essa fregn berast, til þcss að losna við að sjá konuhni sinni fyrir lífeyri. Konan.var sýknuð. Skipin „Evi’opa" og „Bremen“, sem Norddeutsclier Lloyd hefir hygt, eru nú að hefja ferðir síriar til Ameriku. Eru þau húin öllum nýtísku þægind- um. En auk þess hafa þau tekið upp eina nýjung, scm sjóveiku fóllti mun þykja vænt um, nefnilega þá, að þeir sem eigi liafa lyst á mat vegna sjó- veiki, þurfa ekki að horga fæðispen- inga á leiðinni. í skipinu er sjerstak- ur matsalur, þar sem fólk getur feng- ið sjer sjerstakar máltiðir þegar það hefir matarlyst., og sleppur á þann hátt við kostnað af þeim máltíðum, sem það ekki neytir. Ameríkumenn hafa miklar mætur á Hoover forseta. Hefir þetta meðal annars komið fram í því, að þeir fara í hópum til fæðingarstaðar Hoov- ers í Palo Alto, til þess að stela sjer þar einhverju til minja um staðinn. Sumir taka blóm upp með rótum úr garðinum, aðrir skera flísar úr bekkj- um og öðru þvi sem til næst, og einn liafði á burt með sjer lokið af náð- hússetunum. Nú liefir stjórnin skipað tvo eftirlitsmenn á staðinn, þvi ann- ars mátti búast við, að húsið yrði horfið einn góðan veðurdag.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.