Fálkinn - 10.08.1929, Page 5
F A L K I N N
5
Sunnudagshugleiðing.
Matt. 7, 7—8.
Guðspjöll vor clraga oft upp
inyndir af Jesú Kristi á bæn.
Ein af fyrstu frásögnunum um
Jesú í Markúsarguðspjalli er á
þá leið: „Og árla, löngu fyrir
dögun, fór hann á fætur og gekk,
út, og fór á óbygðan stað og
baðst þar fyrir“.
Jesús Kristur á bæn uppi á
fjalli í skini upprennandi morg-
nnsólar verður oss ávalt ó-
gleymanleg mynd.
Bæði með orðum sínum og
gjörðum brýndi Jesús fyrir oss
nð biðja — biðja himneska föð-
urinn um hjálp og styrk i lífs-
baráttunni.
Nú á tímum líta margir svo á
að það sje aðeins barnaskapur
að biðja. Það gat að vísu verið
gott fyrir feður okkar og mæður
í myrkri fáfræði fyrri tíma.
Sumir segja sem svo: Jeg hefi
i'eynt það að biðja undir örðug-
um kringumstæðum, en ekkert
svar fengið. En af hverju hefir
það stafað? Varstu nógu ein-
huga í bæninni? Lagðirðu rækt
við bænalíf þitt?
Jesús sagði: Biðjið og yður
mun gefast, leitið og þjer mun-
uð finna, knýjið á og fyrir yður
mun upplokið verða.
Það er mikill munur á því
hvernig beðið er. Sumir biðja,
en þreytast strax, ef þeir fá ekki
svar, en aðrir knýja á og fyrir
þeim mun verða lokið upp. Jes-
ús endurtók það að menn yrðu
að leggja rækt við bænalíf sitt,
ef þeir ættu að njóta blessunar
hænarinnar.
Annars mun það reynsla allra
hænarinnar manna að fyr eða
seinna hafa þeir fengið svar við
hænum sínum, og þeir hafa þá
°ft sjeð að það kom á miklu
hagkvæmari tíma en þeir höfðu
i fyrstu óskað eftir.
Ætlir þú að öðlast eitthvað
úýrmætt verður þú að knýja á
leggja þig allan fram. Þetta
a heima um hænina eins og ann-
að. Þú verður að biðja óskiftur.
hrá þín öll verður að beinast til
guðs — þú þarft sem mest að
verða í samræmi við hann til
þess að bæn þín geti borið á-
''angur. Þú þarft ekki að biðja
hann með orðum, heldur opna
hug þinn og hjarta fyrir hon-
}'m, svo að geislana frá almætt-
iseldi hans leggi inn í sjúka sál
þína.
Undramáttur bænarinnar hefir
yerið viðurkendur á öllum öld-
Um og er enn í dag. Hann er
viðurkendur af fjölda manna
hjer í þessum bæ. Mjer dettur í
hug í þessu sambandi samtal er
Jeg átti við konu eina í bænum,
Sem gert hefir mikið að því að
hjálpa öðrum — og er bænar-
jUnar kona. Gjafmildi hennar
hefir stundum gengið svo langt,
uð hún hefir ekkert átt eftir
hnnda sjálfri sjer — en hún
heíir beðið og hjálp hefir hún
:,Itaf fengið á undraverðan hátt,
l'aðan sem hún gat ekki látið
sjer detta i hug að hjálp kæmi
frá.
Eyrir skömmu vissi jeg um
J'ögan inann, sem varð fyrir
þeirri sáru sorg að missa stúíku,
•r hann unni hugástum. Maður-
inn var mjög trúaður á fram-
haldslíf, og hann og þessi sama
stúlka höfðu rætt mikið um það.
Nú dó stúlkan og hann lagðist
aldrei svo til hvíldar vikum og
inánuðum saman að hann ekki
bæði að stúlkan mætti senda
honum svar yfir djúpið, — en
það kom ekki. Hann byrjaði
jafnvel að efast um líf eftir
þetta. Hann lenti í hræðilegp
hugarstríði. En eftir nokkra
mánaða efasemdir fekk hann
svarið. Hann lá í rúminu sínu
milli svefns og vöku. Honum
fanst stúlkan dána koma til
sín og faðma hann að sjer. Hann
fann það glöggt, en efinn var
búinn að grípa hann þeim helj-
artökum, að hann ýtti henni
frá sjer — hugarburður, draum-
órar hugsaði hann. —
En þá fann hann hvernig hún
þrýsti honum enn fastar að
sjer og fór um hann þeim krafti,
sem þaggaði niður allar efa-
semdirnar hans.
Ungi maðurinn fyltist fögn-
uði og lofaði guð, sem hafði
veitt honum þessa opinberun.
Upp frá þessu gat enginn efi
átt sjer stað. Hann hafði loks-
ins fengið svar.
Árla, löngu fyrir dögun, fór
Jesús einsamall að hiðjast fyrir
— biðjast fyrir undir starfið,
sem beið hans á degi þeim, sem
í hönd fór.
Vjer skulum jafnan byrja
hvern dag með því að biðja guð
um styrk til starfa vorra, svo
að þau megi verða í sem mestu
samræmi við vilja hans. — Jes-
ús Kristur gerði það sjálfur.
Hvers mundi oss þörf, breysk-
um bræðrum hans og systrum?
Amen.
Læknið íslenska tungu.
Frh.
Þó jeg sje ekki kennari og því sið-
ur málfrœðingur, vil jeg samt árœða
að benda á það, hvernig sum fyr-
nefndu mállýtin og örfá önnur —
sem flestir kunna, en fáir muna —
mætti ögn betur af munni mæla. —
Dæmin gríp jcg af handahófi viðs-
vegar, úr daglegu tali, dagblöðum —
og sumt úr ritum margra lærðra
manna nú á dögum. (Sleppi auðvitað
bæði tilvitn. og málfr.):
„að að sjálfsögðu gæti gengi það á
sterlingspundi“ = að gengi það á
sterlingspundi gæti að sjálfsögðu.
afsláttur = verðlækkun (að „slá af“
= lækka verðið).
alckerið, ánkerið = atkyrið (að-
kyrið, scm skipið lielst kyrt við).
á sjer stað = er, her við, vill verða,
kemur fyrir.
átt sjer stað = verið, orðið, viljað
til.
Barometerinn = loftvogin (stendur
illa = er lág, st. vel = er há, fellur
= lækkar, stígur = hækkar).
bítta = skifta.
bókhaldari = bókari, ritari.
búðardiskur = búðarborð.
dekk á skipi = þilfar.
eldri maður eða kona (þegar yngri
er ei nefndur) = fullorðinn, roskin.
„ekki fengið augun opin fyrir þvi“
= ekki sjeð það, ekki getað greint
það.
Fröken = yngismeyja, ungfrú.
fimman (spil, og sexan, sjöan) =
fimmið (sexið, sjöið).
galli (lin 1) = hlífðarföt, yfirhafn-
ir, regnföt, sjóklæði,
gera hreint = ræsta, hreinsa, Jivo
hús (við hreingerning = að ræsta).
gera innkaup = kaupa (gera góð
— stór — innkaup = kaupa lágu
verði, komast að góðum kjörum, —
fara með mikinn kaupskap).
„Hafðu það gott“ = Líði þjer vel,
farnist þjer vel, vegni þjer vel.
haldari — sjá bók-, kirkju-, staðar-.
„Hdr eru teknir saumar“ = Föt eru
sauinuð hjer.
hissa = hlessa (hlaðinn af undrun).
liíva! = upp!
huggulegt = geðfelt, laglegt, við-
feldið, þægilegt.
„Hvernig hefurðu það?“ = Hvernig
líður þjer? Hvernig vegnar þjer?
Hversu likar þjer nú?
„í smáum stíl“ = litlum inæli,
skamt á vegi („gerði tilraun í smá-
um síl“ =-------litla, einfalda, ódýra).
keyra (bíl, vagn, sleða) = aka
(„hann er í keyrslu“ = að aka).
kirkjuhaldari = kirkjuvörður,
-bóndi.
kíkja inn = líta inn, koma inn.
knúbbur, knúppur = knappur.
komandobrú = stjórnpallur, lyft-
ing.
kostgangarar = matsveinar (mat-
borðssveinar?), -meyjar. (Matselja
„liefir marga kostg.“ = fæðir marga,
selur mörgum fæði. — Ivaupendurnir
eru i mötuneyti, þeir eru mötunautar).
laga mat = matreiða. („Vantar
stúlku sm kann að laga mat“ = mat-
reiðslu).
„leifir ekki miklu af“ = munar
litlu, liggur við.
los! = niður!
lóð (landsnepill) = grund*).
lóðaskrárritari = grundi (beygist
eins og goði).
manni! (many, e.) = maður!
„má ekki eiga sjer stað“ = má ekki
koma fyrir, má aldrei verða.
„Með bæjarins lægst verði“ = Lægsta
verð(i) i bænum.
„Menn eru teknir í þjónustu“ = Föt
verða þvegin fyrir menn. Þjónusta
býðst, Mönnum verður þjónað. —
Stúlkan sem þjónar, nefnist þjónusta
(líklega á ekki að „taka mennina i
liana!!). Þvotturinn og það er lion-
um heyrir til, nefnist líka þjónusta,
eða þjónustuhrögð. Þvottastúlkur, er
óska „að taka menn í þjónustu“, biðja
þá líklegast um það, að mega þvo
karlmönnum kroppinn!!
niður til Danmerkur = til D.
„og því skal lijer slegið föstu" =
og hcr skal það fullyrt; talið víst.
ódó = ótó (sem ekki verður táið
— til að spinna —, eða getur þrifist
með sinum lílca. — Sbr. ,,tagi“).
„ó! hvað þetta er sætt“ = (en livað)
þetta er laglegt, fallegt, yndælt, ágætt.
„Óska cftir störfum við skriftir" =
Vil taka í liendur ritstörf.
pent = snoturt, myndarlegt.
pússa = sljetta (pússning = sljctt-
un, pússningarsandur = sljettisand-
ur).
„rákust tveir mótorbátar á á Ólafs-
firði“ = r. á tveir vjelbátar á Ó.
„skotinn í henni“ = ástfanginn
af henni.
skúra = þvo (gólf). Skúringar =
(liún er við) ræstun, húsþvott.
slagta = slátra. „Slögtunarhús“ =
sláturhús.
staðarhaldari = staðarbóndi, -ráðs-
maðuí, -forstöðumaður.
„standi krónan liátt“ = þegar hátt
er gengi kr.
„stendur beint undir ráðhcrranum"
= lýtur ráðherra.
stjórnarráð = a) ríkisstjórn, b)
stjórnarstofur, -liús.
stórum stíl = ríkum mæli, mikilli
inergð, mjög mikið.
strauja = sljetta, strjúka lin.
*) Orðið „lóð“ (um grund) er að
visu gamal nokkuð og fast orðiö í
málinu, cn afsltræmi samt. „Grundár-
leigu“ greiddi Ögm. bisk. Pálss. í Nor-
egi (um 1525), en ekki lóðargjald, af
garði þeim er hann keypti ]iar.
sætur (maður) = laglegur, fríður,
snotur, kurteis, geðþekkur, Ijúflyndur.
tagi = tæi (það er af því tæi, sem
er táið — eða á að tæja — i þessa
voð) .* )
til baka = eftir.
til góða = inni.
tíkall = tiukr. seðill, tikrýningur
(tvíkall = 2 kr., 5 kall, 50 kall, 100
kall, sömulciðis ill og óþörf máls-
spjöll, en 6 kall, 18 kall o. s. frv.
ætti liver maður að skammast sín
fyrir að láta lieyrast).
„upp á siðkastið" = á síðari stund-
um, siðustu dögum — vikum — mán-
uðum — árum.
„upp i stjórnarráð“ = inn í stjórn-
arstofur, til ríkisstjórnar, að finna
ráðuneytið.
upplifað = lifað, liðið, reynt, þolað.
útlandinu = útlöndum.
vaska = þvo (fisk).
vaskur = þvegill (bej’gist eins og'
legill).
viskustykki = þurka, þvottarýja.
vörupartí = vöruforði, -fúlga,
-byrgðir, talsvert af vörum.
yfirsetukonuumdæmið = Ijósmóður-
staðan.
„Það kunngerist lijer með, að hr.
N. N. liefir tjáð mjer að liann þurfi
að....“ = Hr. N. N. þarf að ............
„þar sem gæðin eru best“ = þar
sem varan — efnið — er best. (Segja
má: gæði flest og gæði mest, en þá
er ctið smjer við floti, þegar gæðin
eru best).
Brot eitt örlitið sýna þessi fáu
dæmi, af öllum þeim vörtum sem enn
loða við tungu vora, og af þeim sár-
um, sem nú er verið að stinga i hana.
All það er særir tungu voru og hyl-
ur lireinleik og fegurð hennar, þarf
að lækna og útrýma. Og þetta litla
brot, á einungis að minna menn á
þörfina fyrir leiðbeiningu á ýmsum
sviðum málfars og ritháttar. Einn sjer
þetta, annar hitt. Þarf því hver að
hjálpa öðrum. Enginn má þykjast of-
góður til að leiðbeina, eða of vitur til
að nota leiðbeiningar.
V. G.
Bráðum á að rifa til grunna hið
fræga söngleikahús Covent Garden í
London. Við söngleikahúsið er aðal
grænmetismarkaður Lundúnabúa, og
er svo þröngt orðið á markaðnum, að
liúsið verður að víkja, og verður það
rifið undir eins og núgildandi leigu-
máli á þvi er útrunninn, árið 1933.
Núverandi söngleikahús er 70 ára
gamalt, en tvö söngleikahús sem bæði
brunnu, liafa verið þarna áður. Var
liið fyrra bygt 1733. Söngleikar hafa
ekki verið sýndir að staðaldri i Covent
Carden lieldur aðeins á vorin; þá
safnast þangað lieimsfrægt sönglið úr
ýmsum áttum, en aðgöngumiðar eru
svo dýrir, að söngleilcarnir i London
eru ekki nema fyrir rikt fólk. Húsið
tekur aðeins 2000 áliorfendur. Nú er
i ráði að byggja nýtt og fullkomið
söngleikaliús fyrir 5000 áhorfendur
og stendur ekki á öðru en því, að
finna lientugan stað fyrir það.
Siærsti vindill í lieimi, er til sýn-
is á spansk-suðurameríkönsku sýning-
unni í Sevilla. Hann er 2% metra
langur og er 200 kg. á þyngd. Vind-
illinn er gerður af einum stærsta
vindlaframleiðandanum á Kúba, Buel-
to Abajo og liefir úrvals tóbak verið
notað i hann.
*) Margar ágætar samlíkingar i
máli voru cru frá ýmiskonar vinnu-
brögðum, en gleymast og glatast með
brcyttum vinnubrögðum, málinu til
tjóns og þjóðinni til vanvirðu (sbr.
t. d. um forna vefnaðinn: að útkljá,
i miðjum kliðum o. s. frv.) Efnið er
ótæmandi, og ærið eitt i doktorsritgerð
fyrir málfræðing.