Fálkinn - 10.08.1929, Qupperneq 6
6
FÁLKINN
Hjer gefur að
líta mgnd af
biskupsstólnum
nýja i Landa-
koti, sem ka-
þólski söfnuö-
urinn og sgst-
urnar í Regkja-
vík hafa gefið
hinni nýju ka-
þólsku kirkju.
Stóllinn er úr
mahogniviði og
er smíðaður á
vinnustofu Frið-
riks Þorsteins-
sonar, Laugaveg
1. — Ríkarður
Jónsson skar
stólinn út. —
Sig. Guðmunds-
son Ijósmgndari
tók mgndina.
®®®®®®®®®®®®
PJETUR J. THORSTEINSSON
útgerðarmaður Ijest á heimili
sínu í Ilafnarfirði 27. júlí s. I.
Hann var 75 ára að aldri, fædd-
ur árið 1854 í Otrardal á Barða-
strönd. Kvæntur var liann Ást-
hildi Guðmundsdóttur, Einars-
sonar prests á Brciðabólstað. —
Nafnkendastur barna þeirra var
Guðmundur heitinn listmálari,
sern öllum íslendingum er að
góðu kunnur.
Myndina eftir biskupsvígsluna i síð-
asta tölublaði „Fálkans“ tók Óskar
-Gíslason ljósmyndari.
Viðskiftavelta sambands ensku sam-
vinnufjclaganna (The Cooperative
Wliolesale Society) var siðasta ár 87.3
miljón pund eða um 1570 miljón
gullkrónur. Er l>að 6 %% meira en
árið 1927.
ítalska skáldið Gabriel d’Annunzio
er likur sjálfum sjer. Nýlega Ijet
hanu gera á sjer botnlangaskurð og
gekk það vel. Daginn sem laeknirinn
tilkynti honum, að hann vœri úr allri
hættu ljet liann skjóta ellefu fall-
byssuskotum til heiðurs sjer!
Frú Word Life í New York er vell-
auðug ekkja og getur þessvegna leyft
sjer ýmislegt, sem öðrum er bannað.
Nú liefir hún látið gera sjer glerliús
og býr þar ein, með fjölda þjóna þó.
Hún fer aldrei út fyrir dyr, og geng-
ur um húsið klædd baðbúningi. Sjálf
segir hún, að slík hús sjeu alveg fyr-
irtak, þvi að með því sje hægt að
hafa eftirlit með þjónustufólkinu um
alt liúsið.
Mussolini hefir fyrirskipað að allir
háskólastúdentar skuli bera stráhatt
á sumrin. Gerði liann það til þess að
hjálpa stráhattaverksmiðjum lands-
ins, sem komnar voru að gjaldþroti,
vegna þess að karlmenn voru hættir
að bera stráhatta. En fjöldi manna
fetar í fótspor stúdentanna og strá-
hattagerðin blómgast í ítaliu.
Á uppboði í London var nýlega selt
kvæði eftir Gray, sem heitir „Elegi“.
Það kom fyrst út 1751 og kostaði þá
6 pence. En nú var kvæðið selt á 20
þús. krónur. Gray græddi samtals á
öllum kvæðum sínum um 750 krónur.
Á sama uppboði var fyrsta útgáfa af
Danicl Defoe’s „Robinson Crusoe“ seld
— fór hún á 22,000 krónur.
Gleraugnabúöin, Laugaveg 2, er ein-
asta gleraugnasjerverslun á fslandi, þar
sem eigandinn er sjerfræöingur. Þar
veröa gleraugu mátuö meö nýtísku áhöld-
um, nákvæmt og ókeypis. I' eö fullu
trausti getiö þjer snúiö yöur til elsfa og
þektasta sjerfræöingsins: LAUGAVEG 2.
Merkasti árlegi atburðurinn i iþróttalifi voru er Islandsglíman, sem
háð er venjulega seinnipart júnimánaðar. I henni talca aðeins þátt
fræknir glimumenn, bestu glímumenn Regkjavíkur og „glimukóngar“
ýmsra lijeraða utan af landi. Saga Íslandsglímunnar er orðin alllöng
og merk. Fgrst var kept árið 1906 á Akuregri, hafði þá fjelagið
„Grettir“ á Akuregri gefið belti eitt veglegt að keppa um, Grettis-
bcltið. Fgrsti handhafi þess varð Ólafur V. Daviðsson, nú kaup-
maður i Hafnarfirði. Næstu tvö ár vann Jóhannes Jósefsson það.
1909 sóttu Sunnlendingar beltið. Varð Guðmundur Stefánsson (mí í
Ameriku) þá sigurvegari og eftir það hefir það aldrei komist norður.
Næstu fjögur ár vann Sigurjón Pjetursson beltið. En frá 1914—1919
fjell Íslandsglíman niður. Árið. 1919 var hún hafin á ný og hefir
aldrei fallið niður síðan. Það ár vann Trgggvi Gunnarsson Grettis-
beltið og ennfremur árið eftir. 1921 vann Hermann Jónasson lög-
reglustjóri beltið. Þá tók við Sigurður Greipsson til 1927. Þorgeir
Jónsson 1927 og 1928, en 1929, s. I. vor, vann Sigurður Thorarcn-
sen beltið og er þvi núverandi glímukóngur Islands. —- Mgndin hjer
að ofan er af þátttakendum i síðustu íslandsglímu. Frá hægri til
vinstri standa: Björgvin Jónsson, Georg Þorsteinsson, Iijartan Guð-
jónsson, Sigurður Stefánsson, Lárus Salómonsson, Marino Nord-
quist og Viggo Natlianaelsson. Þeir sem sitja eru Þorgeir Jónsson,
Sigurður Thorarenscn og Jörgen Þorbergsson. Eins og áður er sagt
vann Sig. Thorarensen beltið. Næstur honum var Þorgeir Jónsson.
Verðlaun fgrir fallegasta glímu. Stefnuhornið, vann Jörgen Þor-
bergsson. Glíman fór vel fram; margar glimur ágætar. — Glimu-
kóngurinn Sig. Thorarensen er rúmlega tvítugur að aldri og er
Rangæingur að ætt, sonur Gríms hreppstjóra, er lengi bjó i Kirkju-
bæ á Rangárvöllum. Sigurður glimir vel og drengilega og er vcl að
beltinu kominn. Marga mun langa til þess að sækja það í greipar
lians á næsta ári, 1930. — En miklar líkur mæla með þvi að Sig-
urður haldi velli.
Mgndin hjer að ofan sýnir Ií. R.-stúlkurnar, sem kcptu í boðlúaupi
á íþröttavellinum 17. júní í vor. Skeiðið var 300 stikur. Úrslit urðu
þau að I. sveit (Saga Jósefsson, Sigríður Ólafsdóttir, Margrjet
Thorlacius og Fanneg lngólfsdöttir) vann II. sveit (Heiðbjört Pjet-
ursd., Tóta Guðmundsd., Fríða Guðmundsd. og Unnur Öladóttir).
I. sveit rann skeiðið á 43,4 sek., en II. sveit á 44 sek. — Keppendur
taldir frá hægri til vinstri: Margrjet, Fanneg, Saga, Sigríður, Fríða,
Heiðbjört, Tóta, Unnur. — Mgndina tók Óskar Bjarnason prentari■