Fálkinn - 14.09.1929, Qupperneq 4
4
FÁLXINN
Skógartrjen eru flutt tit sögiiiiannyllunnar.
ir hirti, en í vötnunum er krökt
af urriða og i f jallatindunum
lifa viltar fjallageitur. Á jiess-
um slóðum eru víða svæði, sem
enginn hvítur maður hefir nokk-
þangað þúsundum saman til
veiða. Veiðimennirnir velja sjer
bækistöð við einhverja ána en
fara svo á eintrjáningsbátum
langar leiðir upp eftir ánum inn
Veiðimnður teUur
urntíma stigið fæti sínum á.
Ekki þykir eins mikið til
neins koma og elgsveiðanna, sem
fara fram á haustin. Eru Nova
Scotia og New Brunsvick bestu
elgsveiðilöndin og hópast menn
í skógarþyknin þangað sem elg-
urinn hefst við. Hafa veiðmenn-
irnir tjöld og eldunartæki með
sjer og eru oft marga sólar-
hringa í hverri veiðiferð. En
þessar veiðiferðir eru dýrar og
Elgsdúr i'i flólla undan veiSimönnum.
T H E R M A
»Therma« Fabrik fúr electrische Heizung A/G., Schwanden,
er ein af þeim raftækjaverksmiðjum sem þekt er um alla
Evrópu, og viðurkend fyrir að skara fram úr hvað vöru-
vöndun snertir. — Hin stærstu iðnaðarlönd í álfunni, svo sem
t. d. Þýskaland, kaupa rafmagnstæki af Therma.
Allir þeir sem ætla að kaupa eitthvað sjerlega vandað,
spyrja um „Therma“.
Snúið yður til:
JÚLÍUS BJÖRNSSON, raftækjaverslun, eða ELECTRO CO.,
Austurstræti 12, Reykjavík, Akureyri.
að eins fyrir ríkt fólk, þvi veiði-
leifin og ferðalögin kosta of fjár.
Bændurnir á þessum slóðum lifa
inestmegnis á ferðamönnum og
liafa hætt að strita við kornyrkju
og griparækt, því þeir hafa betri
tekjur af að snúast kringum rík-
isbubbana, sem sá peningunum
hvar sem þeir koma.
Annars er kornyrkjan og þá
c-inkum hveitiræktin sá atvinnu-
vegur sem flestir lifa af, bæði
beinlínis og óbeinlínis. Canada
er að verða mcsta hveitiland
heimsins, einkum vesturlandið,
sem nú er að byggjast smátt og
smátt. En það hefir bagað vest-
urlandið, að svo langt er til hafs,
að flutningur kornsins á markað
hefir orðið afar dýr. Hefir verið
reynt að bæta úr þessu með
byggingu Hudsonsflóabrautarinn-
aiv sem nú er fullgerð, en sá er
gallinn á, að Hudsonsflóinn er
ekki skipgengur nema nokkurn
hluta árs, sökum ísalaga. í sam-
bandi við þessa nýju járnbraut
hafa ýmsir menn bent á, að hent-
ugt væri að flytja körnið frá
Hudsonsflóa til íslands, mala
það þar og hafa kornforðabúr
handa Evrópu á íslandi í stað
þess að flytja kornið beint til
hafna á meginlandi Evrópu, þar
sem vatnsafl er ekki fáanlegt til
mölunar á korninu, og verkið
því dýrara. Mun þetta mál vekja
athygli á íslandi, því ef úr þessu
yrði mundi ísland fá alveg nýja
aðslöðu í samgöngum við um-
heiminn og mundi hjer rísa upp
verzlunar og iðnaðarhorg í stærri
mælikvarða en innlendar sam-
göngur og þarfir landsins einar
gætu skapað í nálægri framtíð.
■S;i mkvænit nýjum skýrslum cru nú
543 miljónamæringar í Stóra-Brct-
lapdi, og er ]>á talið í sterlingspund-
um. Ef taldir væri miljónamæringar
i krónum mundi talan að minsta
kosti liundraðfaldast. Arið 11)23 voru
|>ar 540 miijónamæringar, cn þrjú
næstu árin 592, 597 og 509.
Engin l>jóð hefir eins mikla trölla-
trú á aliskonar Iyfjanotkun og Bret-
ar. Þcir suila í sig hinum og öðrum
töframeðulum daginn út og daginn
inn, lesa skrumauglýsingar um ágæti
]>essa eða hins, fara að nota ]>að og
t'inst svo að ]>eir geti ekki án ]>ess
verið. Hvergi er eins mikið notað uf
allskonar plástrum, pillum, og söltum
og ]>ar. Til dæmis uni notkun Breta
af algenguin lyfjum má nefna, að
þeir nota 500 smálestir af aspiríni á
ári. —
Þess misskilnings hefir orðið vart
að aðeins ógiftar konur geti tekið
þátt í Teofani-samkepninni, skal því
tekið fram, að allar konur giftar,
sem ógiftar, eldri en 16 ára, geta
tekið þátt í samkepninni.
Vegna þess að komið hafa myndir,
sem ekki eru vel skýrar, er þess
óskað að þær myndir sem sendar
eru sjeu skýrar og vel gerðar.
Frestið ekki að senda myndirnar
og skrifið á brjefið
TEOFANI
HAFNARSTR. 10. RVÍK.
í Jena býr einkennilegur listmál-
ari. Þegar hann er ófullur getur liann
ekki málað neitt, en undir eins og
liann er orðinn drukkinn málar hann
og málar af svo mikilli list og kunn-
áttu, að honum er likt við snillinga.
Það er l>vi líkast, að liann máli
ósjálfrátt. Á einni nótt hefir Imnn t.
d. málað 30 myndir, sem að vísu voru
ekki stórar, og sex myndir teiknaði
hann á tiu mínútum. Einkenriilegast
við ]>enna málara er ]>ó ]>að, að liann
getur málað i myrkri. Og myndir ]>ær,
sem liann hefir málað ]>annig liafa
vakið undrun maiína, fyrir það hve
litablöndunin er eðlileg og blærinn
fallegur yfir myndunum.
I sænska þorpinu Bcnneberg við
Kristinehamn laust nýlega niður eld-
ingu og varð fyrir henni kona ein,
sem heitir Signe Paulström. Hárnál-
arnar í hári liennar hráðnuðu, hárið
sviðnaði og fötin, og liún fekk víðu
brunasár, en hjelt þó lífi.
Oscar Biddle læknir við Carnegi-
stofnunina í Baltimóre segir frá ein-
kennilegum afleiðingum af æxlismynd-
un á stúlku einni. Æxlið hafði breytt
starfi ýmsra kirtla í líkama stúlk-
unnar, svo að hún varð i útliti eins
og karlmaður. Meðal annars óx henni
skegg á stuttum tima. En eftir að
æxlið hafði verið skorið burt komst
alt í saint lag aftur.