Fálkinn


Fálkinn - 25.01.1930, Blaðsíða 4

Fálkinn - 25.01.1930, Blaðsíða 4
4 F Á L K I N N Minning útlagans. Línuveiðarinn Fróði. Fyrir nokkru síðan vakti jeg máls á því, að það væri vel viðeigandi, að ungmennafjelög og iþróttafjelög íslands reistu Gretti Ásmundssyni og Illuga bróður hans minnismerki í Drangey árið 1930 eða 1931, hlið- stætt því, sem Jóni biskupi Arasyni var reist i skálholti. Fróðir menn telja þá bræður tekna af lifi árið 1031, var þá Grettir 35 ára en Illugi 18 vetra. Haustið • áður (1030) synti Grettir úr Drangey til lands. Næsta haust verða þá rétt 900 ár liðin frá þeim atburði. Það er nú einu sinni venja að halda einnar Einstigið í Drangey. aldar eða 10 alda afmæli einstakra viðburða, sent gerst hafa á æfi þjóð- arinnar, er því engin ástæða að ganga fram hjá þessum atburði í lífi Grettis eða æfilokum þeirra bræðra í Drangey, án þess að minn- ast þeirra. Grettir verður ætíð taiinn þjóðhetja íslendinga og Illugi ímynd hugprýði og fórnfýsi. Minnisvarði um þá bræður ætti að vera gerður úr óhöggnum steini, og nafn þeirra rist á hann, ennfrem- ur hvernig dauða jjeirra bar að höndum og hvaða fjclög gengust fyr- ir að reisa steininn. Ef ekki fengist nógu hörð eða hentug bergtegund hjer á landi, sem treysta mætti að þyldi áhrif iofts og vatns, yrði að fá steininn frá útlöndum. Og væri þá helst að fá granít frá Noregi. Einnig gæti komið til mála, að greipa granít eða marmarahellu í íslenskt stuðlaberg, með áletrun, sem áður er greind. Steininn ætti að reisa í tótt þeirri í Drangey, sem kend er við Grettir og sagt er að enn sjáist votta fyrir. Gæti komið til mála að hlaða tóftina upp. Líklegt væri að hægt yrði að finna upp þann útbúnað, sem þyrfti, til að koma 1—2 tonna bjargi upp á Drang- ey. Ef til kæmi gæti sjerstök nefnd rnanna fjallað um það mál. Fyr á öldum bjuggu i flestum hjeruðum landsins nafnfrægir menn, margir liverjir gæddir andlegu og líkamlegu atgerfi á borð við Grettir. Má þar nefna Gunnar Hámundarson, Egil Skallagrímsson, Ingimund Þor- steinsson, Snorra Þorgrímsson o. fl. o. fl. Sveitafjelög, sem hlut eiga að máli, ættu að reisa mönnum þessum nrinnisvarða ef þau vildu halda á lofti mannkostunr þeirra og afreks- verkum. Öðru máli er að gegna nreð Grettir. Hann var heimilislaus, út- skúfaður frá föðurleifð sinni og úr bygðunr landsins, umsetinn af óvin- um. Öræfi og óbygðir voru hans eina athvarf og heimili. Engin ein sveit getur í .raun og veru helgað sjer hann. Öllum íslendingum — ekki síst ungmennafjelögum unr land alt — bæri jrvi skylda til að kosta rninnisvarðann og konra honurn itpp á Drangey, því að þar undi Grettir best hag sinunr i útlegðinni. Grettir sótti tvisvar sinnum eld á æfi sinni, sem i frásögur er fært. Bæði skiftin voru örlagarík í lífi hans. t fyrra skiftið, sem Grettir sótti eldinn urðu afleiðingarnar, út- legð hans og ógæfusöm æfi, vegna þess að það var — eins og hann sjálfur komst að orði: — „Ilt ó- drengjum lið að veita“. í seinna skiftið snerist hugur almennings honum til heilla. Vinir hans sem ó- vinir viðurkendu nú „frábæran frækleik hans bæði á sjó og landi'*. Þaðan af var hann dásanraður sem afreksmaður. Enginn þótti standa l honunr á sporði í áræði, þreki og karlmensku. Alnrenningsálitið veitti honum fulla uppreisn og þjóðin hef- ir síðan harnrað hvernig æfilok hans bar að höndum. Fram á þennan dag lrafa íþróttamenn, einkunr þeir, sem iðka sund, tekið Grettir sjer til fyr- irmyndar. Og í annan stað gæti III- ugi bróðir hans orðið æskulýð lands- ins fyrirmynd í hugrekki, mann- dómi og fórnfýsi. Minnismerkið í Drangey mætti því vel verða til þess að tíðar ferðir tækjust þangað, gætu þær orðið einhverjum að liði, sern skortir eld til að glæða hjá sjer þá mannkosti og dygðir, sem prýddu |rá bræður, Illuga og Grettir. Guðm. Davíðsson. í kjallaranum undir pólska ræðis- mannshúsinu í Wien fann lögreglan nýlega lík af manni með trjefót. 'I’rjefóturinn var holur að innan og jregar farið var að athuga hann fund- ust í honum 80 þúsund dollarar í seðlum. ----x—■— Síðastliðið ár voru 99 manns í Osló, sem áttu eina miljón eða meira. Flest- ir auðkýfingarnir voru skipaeigend- ur, tóbaksgerðarmenn eða ölgerðar- menn. ----x---- Spánska stjórnin hefir nýlega skip- að nefnd til að rannsaka, hvort til- tækilegt sje að grafa neðansjávar- göng undir Njö’rfasund. Er gert ráð fyrir, að jarðgöngin kosti 125 miljón krónur. Árið 1802 kom fram fyrsta tillagan um að grafa þessi göng. ----x—— G. II. Unthan, snillingurinn hand- leggjalausi, sem margir kannast við, er nýlega látinn. Hann lærði m. a. að leika á liljóðfæri með tánum og var fimari í því, en margir aðrir með fingrunum. ----x---- Ein af elstu prestum Dana, Möller Holst sóknarprestur á Falstri varð nýlega bráðkvaddur í kirkjunni, þar sem hann stóð fyrir altarinu. Meðan verið var að syngja útgöngusálm- inn hneig hann niður og var þegar örendur. Hann var 90 ára gainall. -----x—— Sameinuðu brunabótafjelögin i Bandaríkjunum hafa nýlega gefið út auglýsingapjesa, sem prentaður er í 20 miljón eintökum. Á forsíðunni er mynd af húsi, sem stendur í björtu báli. Eii undir eins og kverinu er flett upp finnur lesandinn megna lykt af sviðnu timbri. Og á blaðinu er prentað með stóru letri: „Þegar þjer finnið þessa lykt í húsum yðar, er orðið of seint að vátryggja“. Þeir kunna að auglýsa í Ameríku! Síðasiliðin ár hefir linuveiða- gufuskipam fjölgað mjög hjer á landi, og munu þau nú alls vera um 30. Fálkanum þgkir því hlýða að hirta hjer mynd af línuveiðaranum Fróða, sem á hinu siðastliðna ári varð afla hæstur allra línuskipa er fisk- veiðar slunda hjer við land. Þess má einnig geta, að ekk- ert annað línuskip hefir nokkru sinni áður aflað svo mikið á einu ári, Qg hefir því Fróði sett íslenskt fisimet á línuveiðum, og hver veit nema um heims- met sje að ræða? Afli skipsins nam alls um 800 smálestum eða 3200 skippund, af saltfiski vigtuðum upp úr skipi. — Vetrar og vorvertíðin hófst um miðjan janúar og stóð fram í júnímánuð. Á þessu tímabili fiskaði Fróði 570 smá- lestir og yfir sumarmánuðina eða frá því um miðjan júlí og þangað til í byrjun nóvember, nam aflinn 230 smálestum. Skipshöfnin var 18 menn: skipstjóri, stýrimaður, tveir vjelstjórar, einn matsveinn og 13 hásetar. Hluti hvers háseta yfir vetrar og vorvertíðina (5 mán.) nam um )000 krónum og yfir sumarmánuðina nam hlut- urinn nærri 1600 kr. Skipið er 7 ára gamalt, 98 smálestir (brutlo) og hefir 200 hestafla vjel. Sldpið er bygt i Englandi og er einn af þeim 3 línuveiðurum, sem hr. Halldór Kr. Þorsteinsson skipstjóri keypti fyrir Isfirðinga fyrir 5 árum síðan. Hafa skip þessi reynst sjerlega sterk og ágæt sjóskip. Hr. Þorsteinn J. Eyfirðingur hefir verið skipstjóri á Fróða frá því að hann kom hingað til landsins. Hann er fæddúr á Hofi í Svarfaðardal og er nú hö ára gamaíl. Hefir liann stundað formensku og skipstjórn lengi og er orðlagður atorkumaður. Ríkasti Indíáninn i Bandaríkjun- um liefir nýlega fengið skilnað frá kerlingunni sinni. Það gekk ekki hljóðalaust af og hálfa miljón doll- ara varð karlinn að punga út með til þess að losna úr hjónabandinu. -----------------x----- Þjóðverjar eru að smiða stærstu steinsteipubrú heimsins, rjett lijá Oberammergau. Er aðalboginn 180 metrar á lengd. ----x---- Eitt af merkustu gistihúsum í New York, Waldorf Astoria, var rifið ný- lega, til þess að byggja annað og stærra hús á lóðinni. Nýja húsið verður 83 hæðir og á þaki þess verður mastur handa loftskipum að leggjast við. ------------------------ Þessi áflætu rakvjelablöð Hreinar ljereftstuskur kaupir Herbertsprent, Bankastræti 3.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.