Fálkinn - 08.02.1930, Side 10
Þú ert þreyttur
daufur og dapur í skapi. — Þetta
er vissulega í sambandi við slit
tauganna. Sellur likamans þarfn-
ast endurnýjunar. Þú þarft strax
að byrja að nota Fersól. — Þá
færðu nýjan lífskraft, sem endur-
lífgar líkamsstarfsemina.
Fersól herðir taugarnar, styrkir
hjartað og eykur líkamlegan kraft
og lífsmagn.
Til daglegrar notkunar:
„Sirius“ stjörnukakó.
3 Gætið vörumerkisins.
: Vandlátar húsmæður nota
eingöngu
| Van Houtens
heimsins besta
j Suðusúkkulaði.
: Fæst í öllum verslunum.
Húsmæður!
Gold Dust
þvottaefni og
Gold Dust
skúringar-duft
hreinsa best.
Sturlaugur Jónsson & Co.
Aðeins ekta
Steinway-
Piano oo Flyoel
bera jþetta raerki.
Einkaumboðsenn:
Sturlaugur Jónsson & Co.
Tvær flugur í einu höggi.
JpilllllllllllllllBIIIIIIIIIIIIIIIIIJ
í idozan!
■■ ma
tm wm
er hið
besta meðal
við
blóðleysi
sem til er
Fæst í Lyf jabúðum 1 S
riiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiinii
Stúlkan á myndinni hjer að ofan
hefir verið svo liagsýn að hún hefir
gert sjer kjól er hún getur notað
hvort sem hún vill heldur á dansleik
eða í kveldhoð. Kjóllinn er gerður
úr grænu „georgette" og fylgir hon-
um dálítil „blúsa“, sem gengur utan-
yfir, er hún með löngum ermum. Er
það sjerstaklega hentugt í miðdegis-
samkvæmi, þegar ekki á að dansa.
inn ermalausan og hefir þá við
hann perlusaumaðan kraga eins og
sjest á myndinni. Það er nú að verða
tíska að hafa langa hanska á dans-
leiki, þetta er þvi miður nokkuð
dýrt, því hanskarnir eru fljótir að
verða óhreinir. Kjóllinn er síður og
jafnlangur alt í kring.
HÖFÐINGLEGASTA KONA
HEIMSINS.
Nú liafa menn um tíma haft það
sjer til gamans að velja fegurstu
konurnar í ýmsum löndum.
Á skemtun, sem „Rauði krossinn"
lijelt nýlega á Aix-les-Bains til ágóða
fyrir málefni sín, var ákveðið að
velja höfðinglegustu konuna. Það
vildi svo til að þarna var saman-
komið margt göfugra manna úr ýms-
um löndum og álfum. í einum hótel-
salnum sat fjöldi vel klædds fólks át
og drakk og dansaði milli borðanna.
Öll horðin voru tölusett. Það mátti
ekki sitja nema einn karl og ein kona
við hvert borð. Dómararnir sátu þar
líka, en enginn vissi hverjir þeir
voru eða hvar þeir sátu. Alt í einu
hirtust þeir og úrskurðuðu að kona
ein sem sat við horð nr. 3 væri göf-
ugmannlegust og háttprúðasta kona
heimsins.
Konan, sem fyrir valinu varð var
ítölsk markgreifafrú Anna d’Angelo
di Bartolino, hertogadóttir, fædd
Somma di Circello og dótturdóttir
prinsessunnar frá Patti.
Blöðin fóru nú strax á stúfana eins
og vant er og tóku að spyrja konuna
spjörunum úr: Eg leik golf og ríð út,
jeg hefi sjerstaklega gaman af að vera
á hestbaki, annað liefi jeg ekki að
segja ykkur. Fyrsta æfintýrið, sem
jeg hefi lent i á æfinnni, er að vera
kjörin liöfðinglegasta kona heimsins.
---x-—
SKÓR OG SKYNSEMI.
Skórnir eru álfaf að verða íherki-
legri og merkilegri. Það er ekki leng-
ur nóg að fá sjer skó í sama lit og
kvenkjólinn, heldur verða þeir lika
lielst að vera úr sania efni. Þetta á
einkum við um samkvæmisskó en sje
hægt að koma því við um hversdags-
skóna þykir það mjög áferðarfallegt.
T. d. kvað Raquel Meller ganga með
dúkskó af sÖmu gerð og taska henn-
ar og búningur. Hvað hentugt þetta
er íslensku loftslagi skal látið ósagt.
---x----
KARTÖFLUR.
íslenskar konur eiga ekki því láni
að fagna ennþá, að hafa eins mikið
úrval grænmetis og aðrar konur víða
um heim, en það er enginn vafi á að
þess verður ekki langt að bíða að þær
geta valið um þessar fæðutegundir.
En eitt eiga þær þó, sem altaf má
nota og enginn verður leiður á, en
það eru kartöflurnar. Ef tími er til
og konur liafa gaman af að breyta
tii og reyna eitthvað nýtt, skal þeim
bent á hvernig matreiða má karöflur
á ýmsan hátt:
Franskar kartöflur
IV2 til 2 kg. fastar góðar kartöflur,
1 kg. pálmafeiti.
Kartöflurnar eru afhýddar liráar
og skornar í þunnar flísar., best að
nota agúrkuhefil. Þær eru látnar
hggja í tíu mínútur í köldu valni og
þerraðar i hreinum klút rjett áður
en þær eru soðnar.
Feitin er hituð i járnpotti. (Til
þess að vita livenær feitin er orðin
mátulega heit má skera flís úr
hreinni eldspýtu og flegja ofan í, ef
að fitan sýður í kring um eldspýtuna
er hún mátulega heit, en sjáist engar
loftbólur í kringum eldspýtuna er
hún köld). Kartöfluflísarnar eru lagð-
ar í gisið sigti og er því dýft i fituna.
Sigtið er fært fram og aftur i fitunni
svo kartöflurnar steikist jafnt á alla
vegu. Þegar kartöflurnar eru orðnar
fallega ljós-gul-brúnar er þeim livolft
á hreinan hvítan pappír og salti stráð
yfir þær, síðan er fitan látin hitna
dálítið áður cn byrjað er að steikja
að nýju.
Rjett áður en kartpflurnar eru
bornar fram er blaðinu með þéim á
skotið sem snöggvast inn í ofninn,
til þess að liita þær, en má ekki vera
nema sem allra snöggvast, þvi annars
geta þær orðið of dökkar.
Kartöflurnar eru afhýddar og
telgdar þannig að þær verða ferkant-
aðar í laginu, síðan eru þær skorn-
ar í V2 sm. þykkar sneiðar, og sneið-
arnar aftur skórnar í ræmur að sömu'
þykt. Farið, með þær á sama hátt og
hinar.
Pont-Neuf kartöflur.
Stórar kartöflur eru afhýddar og
skornar á langs í ferkantaðar lengj-
ur, sem eru 1 sm. að þvermáli.
Þessar kartöflustengur eru lagðar í
sjóðandi fitu og soðnar þangað lil
þær eru mjúkar innah en harðar ut-
an. Farið með þær á sama hátt og
franskar kartöflur.
„Souffleraðar“ kartöflur.
Kartöflurnar eru lireinsaðar af-
liýddar og tálgað af þeim svo þær
verði nokkurnveginn ferkantaðar, þá
eru þær skornar sundur i lengjur V2
—1 sm. að þvermáli. Þær eru þvegn-
ar og þerraðar og lagðar niður í hálf-
volga feitina. (Þetta má ekki gera
með neinar aðrar kartöflur). Fitan
er nú látin hitna með kartöflunum í.
Þegar þær eru soðnar skýtur þeim
upp á yfirborðið og eru þær þá lekn-
ar upp úr.
Þegar búið er að sjóðja kartöfl-
urnar á þennan hátt, er fitan hituð
þangað til hún er orðin sjóðandi
heit og kartöflunum siðan dýft nið-
ur í sem snöggvast i gisnu sigti. Við
að koina niður í svona mikinn hita
myndast blöðrur á lengjurnar.
Kartöflurnar eru eins og vant er
lagðar á hvítan hreinan pappír og
stráð á þær salti. Þær eru bornar
fram strax og fitan er runnin af
þeim'.
——-x------
Bóksali einn i Cambridge fjekk
nýlega mánaðar fangelsi og 100
punda sekt fyrir að selja bók, eftir
rithöfundinn D. H. Lawrence, sem
gerð hafði verið upptæk. Heitir bók-
in „Elskhugi frú Chattery“ og var
prentuð i Italíu fyrir tveimur árum,
en þótti svo sóðaleg, að hún var
bönnuð í Englandi. Bóksalinn hafði
stolið undan eintaki þegar bókin
var gerð upptæk en fjekk að súpa
af því seyðið.