Fálkinn - 15.02.1930, Page 1
Síðan flotamálaráðstefnan var haldin í ^ashington 1921 hefir fátt gerst merkilegt um takmörkun vígbúnaðar á sjó, þó mikið
hafi verið um það mál rætt. Þó var nýr fundur um málið haldinn 1927 í Genf, en úrslit hans urðu svo háðuleg, að flestir voru
sammála um, að stórveldunum væri sæmra að þegja um málið en halda slika fundi. Nú situr ný ráðstefna á rökstólum í Lond-
on um afvopnunarmálin og eftir undirbúningi hennar og undirtektum stórveldanna má ætla að hún beri nokkurn árangur,
Stórveldin höfðu tekið þátt í ráðstefnunni Washington með hangandi hendi, en á þennan fund sendu þau aðalmenn sína sem
fulltrúa, og gefur slarf fundarins hingað til von um góð úrslit. Ráðstefnan liófst í London 21. janúar og setti Georg Engla-
konungur liana með ræðu. Eru þar samankomnir fulltrúar frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakíelandi, Ítalíu og Japan. Milda
eftirtekt hefir vakið sú lillaga, að smíði kafbáta skuli hætt og þeir bannaðir í liernaði, en gegn henni lmfa Frakkar risið.
Segja þeir að kafbátarnir sjeu vopn „fátæku þjóðanna“, sem eigi hafi fjármagn til að smíða hin dýru beitiskip og bryn-
dreka. — Mijndin hjer að ofan er telcin í efri málstofu breska þingsins, en þar var ráðstefnan sett. Sýnir hún Georg konung
vera að flytja ræðu sina í viðurvist allra fulltrúa ráðstefnunnar. Ramsay McDonald var kosinn forseti ráðstefnunnar.
FLOTAMÁLAFUNDURINN í LONDON