Fálkinn - 15.02.1930, Síða 8
8
F Á L K I N N
Þegar kvittur gýs upp í London um það, að Georg konungi hafi slegið niður aftu eftir veilc-
indi sín, tekur hann sig oftast nær til og ekur í bifreið um fjölförnustu götur borgarinnar,
til þess að sýna að hann sje við góða heilsu. Hafa Bretar afar mildð dálæti á konungi sínum.
Friðþjófur Nansen sjest hjer vera að
flytja fyrirlestur í útvarp um pólflug-
ið, sem ekkert verður úr í ár. En nú er
fullyrt, að flogið verði árið 1932.
Þessi mynd t. v. er elcki af kinn-
ungi af skipi, eins og menn
kynnu að lialda við fyrstu sjón
heldur er hún af kinnungnum
á hinni miklu flugvjel „1)()-X“
sem Dornier verksmiðjurnar
smíðuðu í sumar og fór full-
gerð í reynsluflug með 170 far-
þega. Nú hefir Junker smíðað
ennþá stærri flugvjel, en Dorni-
er vill ekki verða eftirbátur
hans. Er liapn genginn i sam-
band við General Motors og
Fokkersmiðjurnar og ætlar nú
að smíða flugvjelar, sem bera
miklu meira en „DO-X“ og
eiga þær að vera í förum yfir
Atlantshaf.
Japanar liafa fyrir sið að hengja
upp sópa og kaðla á hús sín á
gamlárskvöld. Flytur það gæfu
og heldur illum öndum burtu
frá húsinn. Myndin t. h. sýnir
verslun, þar sem þessir bjarg-
vættir eru seldir.
• • ■
MMá
Fyrsta nóvember sigldi skonn-
ortan Olga frá Thorö frá Sunds-
vall í Svíþjóð áleiðis til Eng-
tands með timburfarm. Frjett-
ist ekkert til skipsins langa
lengi, þangað til sú frjett lcom
frá Shetlandseyjum, að þur væri
farið að reka t{mbur og brak
úr skipi. Telja menn víst, að
þetta sje úr „Olgu“ og hefir hún
þá farist með allri áhöfn, átta
manns. Hjer á myndini t. v.
sjást haugar af timbri, sem rek-
ið hafa á Shetlandseyjum.
í‘v'/\ , ' ’,'j’.Ye'/ffii ijjD',' 'D'1 ■!'Sit'n
•;■■■ - '/:V" : , ' ■....;.
' ' ; '■■■:' . " ;■■ ■ '
'■/
■ ■■■:/
, ■
• ■,'/■ ■
W7 ’
■■ '■/■"' ■
,i , .■.,:,
: ■ ■■;'
■ : :,■■■■.■.■
.
>