Fálkinn - 14.06.1930, Síða 10
XI
F A L K I N N
SOLINPILLUR
eru framíeiddar úr hreinum
jurtaefnum, þær hafa engin
skaðleg áhrif á likamann, en
góð og styrkjandi áhrif á
meltingarfáerin. — Sólinpillur
hreinsa skaðleg efni úr blóð-
inu. Sólinpillur lækna van-
líðar er stafar af óregluleg-
um hægðum og hægðaleysi.
Notkunarfyrirsögn fylgir
hverri dós.
Verð aðeins kr. 1.25. — Fæst
hjá hjeraðslæknum og
öllum lyfjabúðum.
VAN HOUTENS
konfekt og átsúkkulaði
er annálað um allan heim
fjTÍr gæði.
Brasso
ber sem gull
íif eiri af
öðrum
f æ g i i e g i .
Fæst alstaðar.
■■■■■■■•■*■•••*•■■■■■^B ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
v Til daglegrar notkunar:
? „Sirius“ stjörnukakó.
ft 3 Gætið vörumerkisins.
Best er að auglýsa í Fálkanum
Aðalumboð fyrir
Penta og Skandia.
C. PROPPÉ.
Nokknr orð til Reykvikskra kvenna.
íslenskar konur í fornöld þóttu
skrautgjarnar nokkuð og hefir það
gengið í arf, ef dæma skal eftir þjóð-
búningnum íslenska.
Þjóðhátíð fer í hönd og margra
gesta er von hingað tillands. Erenginn
vafi á að konur allar muni nú skarta
svo sem mega. Má vænta þess að á
Þingvöllum verði margar glæsilegar
og vel búnar konur.
Flestir gestanna munu eiga leið um
Iteykjavík. Mun þá mörgum forvitni
á að skoða bæinn með hinum fallega
fjallahring. Munið að glöggt er gests-
augað. Og dómur gestanna yfir is-
lenskum konum verður ekki siður
lcveðin upp lijer i Reykjavík en á
Þingvöllum. Skítugir gluggar og ó-
hreinir krakkar getur vegið þyngra á
metunum, en silfur og gull, og sorp
og rusl kringum húsin er svo mikill
viðbjóður, að engri siðaðri þjóð sæm-
SJáið nm að börnin sjen
glöð þegar bau fara
að hátta.
Börn eru svo áköf til leikja að þau
geta ekki hugsað til að hvila sig. Flest
fjörmikil börn fyrirlíta tilhugsunina
um að „fara að hátta“. væru þau látin
sjálfráð myndu þau leika sjer þangað
til þau væru orðin svo þreytt að þau
yltu út af.
En börnin verða að sofa vel og
lengi ef þau eiga að vera hraust. Við
vitum nú að það eru fleiri börn, sem
eru veik af svefnleysi en af skorti
liollrar fæðu, og verður því aldrei
brýnt nógsamlega fyrir mæðrum að
gæta þess að börnin fái nægilega
hvíld.
Að vísu er nokkuð mismunandi hve
mikla hvíld og svefn börnin þurfa
Sum þurfa meiri svefn en önn-
ur og verður móðirin að sjá um að
næglegt sje. Barnið hefir ekki sofið
nóg, sje það með úlfúð og óþægð
a morgnana, drattast með ólund af
stað i skólann, já hreint og beint
fyrirlítur skólann, fyrirlitur vinnuna,
fyrirlítur sjálft sig og alt umhverfið.
Ólúið barn fer á fætur glatt og ánægt
og sækist eftir að fá að leika sjer,
eða taka til starfa.
En góð hvíld þarfnast undirbún-
ings. Eins og alt annað í lífi barns-
ins jiarfnast það umhugsunar. Þaðætti
ekki að leika of ofsafulla leiki, lesa of
æsandi bækur, stæla við leiksystkini
ir að láta slíkt sjást. Það er argur
siður og vítaverður frá heilbrigðis-
legu og fagurfræðislegu sjónarmiði,
að á flestum húsum hjer skuli ekki
vera 'hægt að opna nema eina rúðu í
hverjum glugga. Það á að vera hægt
að opna þær allar, svo hægt sje að
hleypa inn hreinu lofti oft á dag. Það
er ekki hægt að iðka hreinlæti í
vondu lofti. Óþefurinn og vonda loft-
ið situr í fötunUm. Má nærri segja
að skíturinn sje ekki ósjaldnar borinn
út á götuna en inn af henni á þann
hátt. Og engin kona er vel húin, sem
angar af svitalykt eða óhreinindum.
Við ráðum ekki högum okkar sjálf-
ar nema að litlu leyti, sumar eiga
dýrindis klæða val, en aðrar ekkert,
en hver sem kjör okkar eru, allar
eigum við þó aðgang að Gvendar-
brunnum og hinu hreina og heilnæma
lafti hjer við Faxaflóa. — Kona.
sín, eða reyna að fást við erfið við-
fangsefni rjett áður en það fer að
hátta, það má ekki ganga til sængur
með meðvitundina um það að það hafi
ekki lokið dagsverki sínu. Rólegt og
ánægt hugarfar er nauðsynlegt til
þess að hvíldin komi að rjettum not-
um. Reynjð að láta barnið vera ánægt
þegar það fer að hátta. Þetta á engu
síður við um fullorðná. Gömul frænka
min var vön að segja: „Ó, nei, við
skulum ekki tala um svona sorglega
hluti á kveldin". Jeg hefi seinna skilið
hve hyggilega hún mælti.
Lágvær söngur og hljóðfærasláttur
flytur frið og rósemi. Fallegt æfin-
týri sefar hugann. Hreint loft, Ijettar
og hlýjar sængur, rökkur eða algjört
myrkur er nauðsynlegt. Muniðl At-
liafnir dagsins velta allar á að vel sje
sofið á nóttunni.
ÖLL ÚT f NÁTTÚRUNA.
Náttúran kallar, kallar okkur út um
haf og upp til fjalla. Hjer er alstaðar
svo óendanlega fagurt — heilnæmt og
liressandi loft.
Það, sem okkur íslendingum verður
ekki hvað minst starsýnt á þegar út
kemur til annara landa, er hve vel
allir menn og konur kunna að njóta
góðviðrisins. Þarna situr jiað og ligg-
ur og veltir sjer í sólinni, ungir og
gamlir, allir jafnt. Fólkið þyrpist i
útilegur, skógartúra og á baðstaði
iiiiiiiiiiiiiiiiiinmiiiiiiiiiiiiii
m
S Ef jijer þjáist af blóðleysi, 5
5 taugaveiklun og ofþreytu, S
er járnmeðalið
| IDOZAN [
besta meðalið. Er mjög
styrkjandi.
Fæst í lyf jabúðunum. 4 S
TiiiiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiiiiiiiiíI
Vandlátar húsmæður
kaupa
Hjartaás
smjörlíkið.
þeir, sem geta. Að vísu er ekki eins
lieitt hjer á íslandi og víðast annar-
staðar um Evrópu, en þó er margur
goour dagur og kveld, sem nota má
til útiveru betur en gert er. Það er
ekki algengt að sjá gamalt fólk hjer
á landi mikið á gönguferðuin. Hvers-
vegna ekki? Er það ekki besta ráðið
til þess að losna við gigtina og önnur
óþægindi? Og hjer er svo skamt út í
náttúruna, hvort sem gengið er, má
svo að segja komast út úr bænum á
fáeinum minútum. Það má hafa með
sjer hressingu, kaffibrúsa og annað
slíkt sjer til gamans. Það bragðast
alt svo miklu betur liti en inni. Unga
fólkið ætti að fara burt úr bænum
um lielgar, gamla fólkið út um holt
og inn í Öskjulilíð.
Ef gott verður veður i sumar verð-
om við öll að nota það, hver sem bet-
ur gelur — öll út i náttúruna, það er
besta skemtunin og ódýrasta.
Búmannsklukkan, sem víða er not-
uð lijer á landi, bæði sumar og vetur,
og fyrirskipuð var að sumarlagi í
flestum löndum Evrópu til þess að
spara ljósmeti, þegar harðast var i
ári á meðan á stríðinu stóð, hefir alls
ekki fallið úr gikli í öllum þessum
löndum ennþá. Þannig er búmanns-
klukka ennþá i Englandi og Frakk-
landi og hefst sumartími þar aðfara-
nótt 13. apríl og stendur í fimm mán-
uði. Búmannsklukka þessara þjóða er
klukkutíma á undan rjettum meðal-
tíma landsins.
----x----
Flugvjelasmiðja í Ameríku er farin
að selja flugvjelar, sem vega ekki
nema 300 kg. Þær eru ódýrar og um-
búðakassinn, sein þær eru í, er þann-
ig, að það má nota hann fyrir skýli
handa vjelinni.
----X----