Fálkinn - 23.08.1930, Blaðsíða 8
8
FÁLKINN
Georges CAaudc ptófessor í Frakklandi liefir gert tilraun til
þess að nola kraft Golfstraumsins sem rafmagns orkugjafa,
en tilraunin mishepitaðist. Geysilega stór stálpípa með flot-
holtum sem noru full af samanþjöppuðu lofti, var lögð út hjá
Havanna, en sökk til hotns á 700 m. dýpi. Þar með fór í súg-
inn V/2 mitj. doltara og 100 manna vinna i hálft misseri.
Fyrir skömmu er byrjað á þvi að grafa og rannsaka Meydum
pýramídann í Egyptalandi. Fyrir verkinu stendur fornminja-
safnið í Pensylvaníti og hefir leiðangur sá, er það gerði úl af
fornfræðingum, ráðið fjotda innfæddra manna til vinnu við
gröftinn. Myndin sýnir þá, þar sem þeir eru að leggja veg
að pýramídanum.
í nánd við Glasgow er verið að gera tilraunir með vjetknúinn
farþegavagn, sem rennur á teinum, sem komið er fyrir uppi
1 Jerúsalem kom fyrir skömmu saman nefnd manna lil þess að
koma sættum á milli Gyðinga og Múhameðstrúarmanna í deil-
unni um Grátmúrinn helga þar i horg. Lögregluþjónn sjest
ganga á undan nefndinni. Meðfram múrnum sitja Gyðingar.
í Galveston i Texas á næsta alþjóðafegurðarsamkepni að fara
fram. Þátttakendur frá Evrópu safnast saman í París og er
myndin af þeim tekin þar. Á myndinni sjást, talið frá vinStri.
þáttakendur frá Ungverjalandi, Þýskatandi, Frakklandi, Tyrk-
landi, Norður- Rúmeníu og Suður-Rúmeníu.
yfir hinum venjutegu járnbrautarteinum. Það hefir tekist að
láta vagn þenna ná allmiklum hraða og ef uppfinningin reyn-
ist að öðru leyti vel, búast menn við því, að gömlu járnbraut-
irnar verði einungis notaðar til vöruflutninga. Myndin er tek-
in á viðkomustað.