Fálkinn


Fálkinn - 20.09.1930, Side 7

Fálkinn - 20.09.1930, Side 7
F A L K I N N 7 Pjetur sláni Eftir John Ek. Pjetur sláni var liann kallað- ur, en það var ekki hans rjetta nafn. I rauninni hjet hann Pjet- ur Efraím Hedenström og var fæddur á Heiði. En liann var langur og renglulegur og var í ótal hlykkjum þegar hann gekk, eins og líkaminn væri allur sam- settur úr liSugum lijörum. Hann var eins og sláni og þvi festist nafnið við hann. Hann kærði sig kollóttan þó að strákarnir hrópuðu Pjetur sláni eftir hon- um, því að sannast að segja stóð honum alveg á sama livað þeir sögðu. Iiann kærði sig ekki frekar um það en um tóbaksnef. Og neftóbak kærði hann sig, þó að undarlegt megi virðast, ekk- ert um. En Pjetur sláni liafði ást á öðru. Ógæfusama ást. Hann var bálskotinn i henni Línu á Bakka sem gerði ekki annað en skop- ast að honum, liún eins og allar hinar stelpurnar. Og Lína átti sjer meir að segja pilt, sem hún ætlaði að eiga, — hann Lárus Lind í Miklagarði. Hann var duglegur og framtakssamur maður, en það var meira en hægt væri að segja um hann Pjetur, sem var eiginlega hálf- gerður draugur — eða algerð- ur — eða svo fanst fólki yfir- leitt. Og það var eins og Pjetur yrði ennþá aumingjalegri því meir sem Lína skopaðist að hon- um, en hún skeytti vitanlega ekkert um það og gerði sjer ekki grein fyrir hve ljótar að- farir liennar voru. Þeir menn eru vitanlega til, sem hefðu orðið gramir og reið- ir af slíkri meðferð, en það varð Pjetur ekki. Það var eins og háðið og spottið hennar Linu hefði mýkjandi áhrif á hann, þvi liann var orðinn miklu þýð- ari í lund en liann hefði verið í æsku. Það var gaman að sjá hann þegar hann safnaði strák- unum úr þorpinu saman kring- um sig og fór að segja þeim sögur, til þess að hafa frið fyrir þeim þá stundina, því þeir sendu honurn þó ekki tóninn á meðan. Enginn vissi liver liafði kent honum allar þessar sögur, og brjefhirðingamaðurinn full- yrti að liann hefði sett þær sam- an sjálfur. Og það var víst ekki fjarri sanni. Pjétur hafði ráðist i vinnu- mensku að Kirkjubæ, en ekki þótti hann neinn afkastamaður. En hann fjekk að vera og seinna kom það í ljós, að liann var ekki óþarfur maður á bænum. Bónd- inn ljet svo um mælt eftir á, að það liefðu ekki margir farið í fötin lians Pjeturs við það tæki- færi, sem nú skal sagt frá. Kirkjubæjarbóndinn áttiliólma Úti á vatni skamt frá bænum og þar í hólmanum var ágætis slægja. Loðnasti bletturinn í landareigninni. Heyið varð að fljdja heim á bátum. Það var eitt sinn að bátur fullhlaðinn af lieyi lagði af stað heim úr hólm- anum og á hátnum voru auk lióndans sjálfs vinnumaður hans og vinnukona. Bóndinn og vinnu maðurinn voru undir árum en stúlkan sat við stýrið; það hafði hún gert oft áður. En í þetta sinn hvolfdi bátnum og alt fór í vatn- ið. Pjctur sláni stóð í vörinni og horfði á. Hann vissi að vatnið var djúpt þarna og fólkið mundi drukna. En hann vai syndur og fleygði sjer þegar út. Og hvern- ig sem þessu var nú varið þá bjargaði hann aleinn þeim þremur, sem öll voru ósynd og dró bátinn á þurt, en vitanlega fór heyið forgörðum. Eftir þetta atvik varð liljóð- ara um þá, sem skopuðust að Pjetri slána. Það voru eiginlega ekki aðrir en Lárus og Lina sem hjeldu áfram uppteknum hætti, í hvert sinn sem Pjetur kom að Miklagarði en þar var Lína lika i vist. En eftir þetta atvik þá varð hugmyndaflug Pjeturs meira en áður. í lieila hans skiftust mynd- ir á, eins og á tjaldi í kvik- myndahúsi. Og hvernig sem því er varið þá verður altaf eitthvert samhengi í grúskaraheilanum. Hann hugsaði um björgunina en nú var mynd af eldsvoða blý- föst í huga hans. Ilann bjó til allskonar myndir og Lína varð aðalpersónan í þeim öllum. Hugsum okkur ef Lína skyldi lenda í eldsvoða, hún sem bjó á þakherbergi í húsinu í Mikla- garði! Og smám saman varð það óbifanleg sannfæring Pjeturs, að húsið í Miklagarði brjmni. — Heyrðu Lína, sagði Pjetur einu sinni við stúlkuna þegar þau hittust af tilviljun, — þú skalt ekki sofa þarna í þakherberginu; hugsaðu þjer ef það kviknaði í húsinu og þú brynnir inni! — Mikill bjálfi ertu, sagði Lína og hló. — Heldurðu að jeg þurfi að hræðast. Ef svo kynni að fara að það brynni í Miklagarði þá mundi þjer ekki verða mikið fyr- ir að bjarga mjer. Þú sem bjarg- aðir stúlkunni í Iíirkjubæ frá druknun. Það er annars skrítið að þið skulið ekki hafa gifst. Svo- leiðis er það altaf í skáldsögun- um. Að minsta kosti er það svo- leiðis í neðanmálssögunni í Sveitahlaðinu. — Þú veist vel hver það er, sem jeg vil giftast, svaraði Pjet- ur og horfði sakleysislega á Línu, en liún liló fullum liálsi. En Pjetur hafði fengið nýtt umhugsunarefni við galsann i lienni Línu. Vitanlega mundi liann bjarga henni, ef Mikligarð- ur brynni. Það var svo sem sjálf- sagt. Og af þessu leiddi svo, að Pjet- ur gerðist einskonar brunavörð- ur á Miklagarði margar nætur i röð, enda þótt hann ætti heima í Kirkjubæ eins og fyr. En enginn kom bruninn og Pjelur fór aftur að sofa heima lijá sjer á nóttunni, enda þótt honum yrði ekki svefn- samt. Hann lá lengst af vakandi og hugsaði. Svona leið heill mánuður. En eina nóttina þegar Pjetur var ný- sofnaður vaknaði hann alt í einu — við hvað vissi liann ekki gjörla. En honum fanst liann sjá óvenjulegan bjarma og svo fanst honum þessi bjarmi svoeinkenni- lega flöktandi.. Hann þaut upp úr rúminu og fór í buxur og vesti, berfættur fór liann út og gaf sjer ekki tíma til að fara í jakkann, því að ermafóðrið var rifið og seinlegt að komast í ermina þess vegna. Hann fleygði jakkanum út í horn. Reyk jarmökk og loga bar við himin i áttina að Miklagarði að sjá. Og nú var Pjetur ekki leng- ur í vafa. Hann vakti Kirkjubæj- arfólkið og hljóp svo berfættur beinustu leið yfir akra og girðing- ar upp að Miklagarði. Húsið stóð í björtu báli og þarna var alt á ringulreið. Þar þvældist hver fyrir öðrum og brunatækin voru í ólagi. Lárus stóð þarna í liópnum ráðalaus en Pjetur hljóp beina leið að liúsinu. Þakið var alelda og hann sá að húsið sjálft var farið að brenna. Þetta var langt hús og herbergi Linu var við norðurgaflinn. Lang ur var hann Pjetur sláni, víst var um það, en samt gekk Mikla- fólksfólkinu illa að skilja hvern- ig hann fór að klifra upp gaflinn og ná taki á gluggakarminum þarna uppi undir þakskegginu. Og það þótti furðulegt að sjá hvernig liann lijelt sjer með ann- ari hendinni meðan liann mölv- aði rúðuna með hinni og náði taki utan um gluggapóstinn. Að vörmu spori var glugga- póstinum hrundið hurtu með nokkrum sterkum hnefahöggum og nú sást Pjetur sláni i glugg- anum. Lína lá yfir vinstri öxl hans og liann hjelt henni með vinstri hendi. Öllum þeim sem stóðu fyrir neðan og liorfðu á f jellust hendur þegar Pjetur kast- aði sjer út um gluggann. Hann hringsnerist og kastaðist til og frá í fallinu, fjell á bakið niður á hlaðið með Línu í fanginu og hjelt' utan um liana báðum hönd- um. Pjetur varð undir, svo að Lína kom ekki afar hart niður og þegar hún var losuð úr faðm- lögunum var hún að vísu í yfir- liði — sennilega liefir liðið yfir hana af reyknum — en hvergi var meiðsli á henni að sjá. Húsið fjell saman með braki og brestum og fólkið æddi fram og aftur — flest á nærklæðunum, en enginn liugsaði um það. Allir þyrptust kringum Pjetur slána. Það var hörmung að sjá hann. Hendurnar allar skornar af gleri og hnaklcinn gapandi sár. Hann hafði lent með höfuðið á steini þegar hann kom niður. Og var steindauður. Hún var falleg ræðan, sem presturinn hjelt við gröfina ves- lingsins hans Pjeturs slána. Miklu fallegri en sú, sem hann hafði haldið yfir stórbóndanum á Skarði. En fóllci kom saman um, að liann Pjetur hefði átt hana skilið.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.