Fálkinn - 20.09.1930, Blaðsíða 8
8
F Á L K I N N
Eins og mörg önnar af hinum eldri
ríkjum Asíu á Persía erfitt upp-
dráttar um þessar mundir. Ríkið er
í f járhagsuandræðum og sambúðin
við nhgrannana einkum Tyrki, hin
bágbornasta. Varð það nýlega að
sundurþykkjuefni Persa og Tyrkja,
að Tyrkir fóru í herferð gegn Kúrd-
um og barst viðureignin inn í Per-
síu. Mótmættu Persar þessu en Tyrk
ir tóku þeim mótmælum með lítilli
kurteisi og hafa verið viðsjár milli
þessar þjóða síðan. TJm líkt leyti
hófst uppreisn í einni af borgum
Persa suður við Persaflóa og hefir
stjórnin því haft nóg að hugsa í
sumar. — Persía er fornt menning-
arríki, um 15 sinnum stærra en ís-
land, en um íbúatölu þess vita menn
harla lítið, því manntal er þar öfull-
komið .Leikur íbúafjöldinn á fjór-
um til tíu miljónum. Auk Persa
sjálfra búa í landinu hinir sundur-
leitustu þjóðflokkar, svo sem Turk-
menar, Armenar, Arabar, Gyðingar,
Kurdar, Afganar og Belutsjar, en
Persar, sem eru indo-evrópeiskir að
ætterni þykjast hafnir yfir þessa
þjóðflokka. Eru þeir glæsimenni í
framgöngu og hafa löngum ráðið
tískunni í Suðvestur-Asíu, enda hafa
þeir verið kallaðir Frakkar austur-
landa. Mestur hluti landslýðsins er
múhameðstrúar. Iíeisari eða „sjah“
Persa var einvaldur fram að 1906 en
þá voru gerðar ýmsar rjettarbætur
og þing stofnað. En síðan hefir geng-
ið á ýmsu. Frá 1915—’21 kom þing-
ið aldrei saman en það ár gerðu
Persar úl sendinefnd á friðarfund-
inn í París til þess að bera fram mál
sín. Nefndinni var elcki veitt viðtal
en hinsvegar komu Bretar ár sinni
fyrir borð hjá Persum og fengu hjá
þeim víðtæk sjerleyfi, m. a. til járn-
brautabygginga. En Rússar, sem áð-
ur höfðu verið áhrifaríkir í Persíu
mótmæltu þessu og fór svo að enski
samningurinn var feldur úr gildi.
1921 var gömlu keisaraættinni velt
af stóli og tók þá við Risa khan. —
Hjer á myndinni t. v. sjest hann
halda ræðu í þinginu.
Þessi mynd er af forsetabústaðnum í Bolivíu. Þar hefir verið
ókyrt á þessu ári og forsetinn verið rekinn frá völdum.
Byrd pólfari er í miklu afhaldi hjá Amerikumönnum enda hef-
ir hann flogið yfir bæði heimskautin. Hjer sjest hann akandi.