Fálkinn - 29.11.1930, Side 9
F A L K I N N
9
Uppskeran í vínhjeruðum Frakklands byrjar venjulega í lok
september og er þá glatt á hjalla meðal uppskerufólksins. Hver
sem vetlingi getur valdið er að einhverju leyti viðriðinn upp-
skeruna. Börn og gamalmenni bera þrúgurnar í körfum í vagn-
ana, og síðan er ekið heim á búgarðinn, þar sem kvenfólkið tek-
ur við og pressar safann úr þrúgunum. Iíjer á myndinni sjest
unga fólkið við uppskeruna og er auðsjeð, að meðal þess ríkir
bæði vinnugleði og vinnulöngun.
1 Ponca City í Oklahama er maður sem heitir Eversole. Hann
hefir ekkert gaman af hestaveðhlaupum eða kappakstri bíla,
en segir að skjaldbökuveðhlaup sje það eina, sem nokkuð sje var-
ið í. Eversole á heilan hóp af skjaldbökum, sem hann er að æfa
í veðhlaupum og þegar tími er til kominn, ætlar hann að efna
til opinberra veðhlaupa með skjaldbökunum. Gerir hann ráð
fyrir að margir verði til þess að horfa á þau veðhlaup og með
timanum muni þau verða eins vinsæl og hundaveðhlaup eru nú.
Nýjabrumið er farið af Indlands-
frjettum og altaf kenXur eitthvað
nýtt til að dreifa athygli hins les-
andi heims. En eigi er svo að skilja,
að nú sje alt með kyrrum kjörum
í Indlandi. Nýlega hafa til dæmis
alvarlegar róstur orðið í Bombay,
svo að stjórnin þóttist verða að
skakka leikinn; Ijet hún taka 250
manns fasta, en verkföll örðu í
fjölda mörgum vinnugreinum. —
Hjer til hægri er mynd af ráðhús-
inu í Bombay. Sýnir myndin líka
eina aðferðina, sem sjálfstæðismenn
hafa til þess að láta taka eftir sjer.
Á ráðhúsinu er veitt leyfi til þess að
reka veitingastaði. En fyrir neðan
dyraþrepin hafa indverskar konur
myndáð varðröð til þess að varna
fólki að komast inn til þess að kaupa
leyfin. Lögreglan vill ekki ráðast á
konurnar, en hefir myndað aðra
röð fyrir innan hina, iil þess að sker-
ast í leikinn, ef lenda kynni í upp-
námi.
Myndin t. v. er frá Moskva. Hún
minnir á myndir, sem á ófriðar-
árunum bárust frá svo mörg-
um þýskum bæjum, af fólki,
sem beið eftir að fá matvæli
tímum saman við búðardyrnar.
f Rússlandi er altaf öðru hvoru
hörgull á ýmsum matvælum,
svo að þröng er fyrir utan mat-
arverslanirnar og þeir sem síð-
ast koma fara oft aftur tóm-
hentir.
Við kosningarnar þýsku síðast
unnu hinir ófstækisfullu þjóð-
ernissinnar mikinn sigur, undir
forustu Hitlers. Er hann í mörgu
talinn eftirmynd Mussolini. Hjer
á myndinni sjást sjálfstæðislið-
ar i her Jians vera að vinna fanaeið.