Fálkinn - 13.12.1930, Blaðsíða 4
4
F A L K I N N
Nýr listíðnaður.
Guðmundur Einarsson myndhöggv-
ari frá Miðdal hafði á ferðum sinum
um landið fundið ýmsar tegundir af
leir, sem hann taldi vel notandi til
þess að brenna úr muni. Ljet hann
rannsaka leir þennan í Þýskalandi
og kom þá á daginn, að hann var
engu síðri en er-
lendur leir, og
að sumu leiti
fremri. Itjeðist
Guðmundur þvi
í að kaupa
brensluofn og á-
höld til leirkera-
gerðar og kom
þessu fyrir i
Listvinafjelags-
húsinu í sumar
og tók að
brenna leirmuni
og virðast þeir
ekki standá að
baki vönduðustu
framleiðslu er-
lendis, og lýsa
mjög góðum
smekk. Á sýn-
ingunni gefst
fólki tækifæri á
að sjá hvernig
leirinn er hnoð-
aður og mótað-
ur, þar sjest
einnig þurkofn-
inn og svo
brensluofninn,
þar sem mun-
irnir eru hertir
t 900—1200 stiga
hita í alt að 16
klukkutíma og
síðan látnir smá
kólna. Alls eru
þeir í ofninum
nær þrjá sólar-
hringa. Síðan
eru þeir málaðir með gljávökva og
svo brendir á ný. Guðmundur kann
sjálfur alt til leirgerðar en hefir auk
þess tvo Þjóðverja til aðstoðar.
Allmikið flyst á ári hverju til
landsins af svona munum og ætti
því að vera góður markaður fyrir
þessa framleiðslu. Hjer er um merka
nýjung að ræða, sem ætti að geta
orðið gagnleg þegar stundir iíða og á
Guðmundur þakkir fyrir að hafa
hrint þessu í framkvæmd.
Auk þessara nýju muna eru á sýn-
ingunni fjöldi málverka og mynda.
Á myndinni að ofan til vinstri sjást
ýmsir af hinum nýju leirmunum, en
til hægri Guðmundur og frú hans og
hið þýska aðstoðarfólk. Neðar til
hægri er leirbrensluofninn.
„Á ÍSLANDSMIÐUM“.
í grein um bók þessa, sem birt
var í síðasta blaði hafði fallið úr
nafn þýðandans, en hann er Páll
Sveinsson mentaskólakennari.
Það er sjaldgæft, að sama skipið
sigli í tvær áttir samtímis en þó
kom þetta fyrir skipið „Fred B.
Taylor". Það varð fyrir ásiglingu og
brotnaði í tvent. . Frampartinn rak
i land í Delawareflóa en afturpartinn
rak til hafs og strandaði að lokum á
eyjunni Ascension 4500 enskar míl-
ur frá Delaware.
Febrúar 1866 var stjörnufræðilega
sjeð merkur og einstæður mánuður,
í þeim mánuði var nefnilega aidrei
fult tungl, en hinsvegar var tvisvar
sinnum fult tungl bæði i janúar og
mars. Er þetta sjaldgæft og kemur
ekki fyrir aftur fyr en eftir 2.500.000
ár!
Alexía M. Guðmundsdóttir ekkja frá Oddfrtður Þorvaldsdóttir ekkja á
Mjósundi, Bergþórugötu 20, varð 75 Ölvaldsstöðum i Mýrasýslu varð 80
ára 4. þ. m. ára 26. f. m.
Guðmundur T. Hallgrímsson, lœknir Sigurður Þ. Jómsson kaupmaður verð- Niljónius Ólafsson verslunarmaður Valgerður Guðmundsdóttir fráÞernu-
á Siglufirði verður 50 ára 17. des. ur 60 ára 16. þ. m. verður 40 ára 21. des. vík i Ögursveit varð 70 ára 2. des.