Fálkinn - 13.12.1930, Blaðsíða 9
P Á L K I N N
9
/ Cleveland í Ohio reyndu
nýlega ellefu þúsund at-
vinnulausir menn að gera
aðsúg að ráðhúsinu til þess
að krefjast dýrtíðarvinnu,
er hafði verið stofnað til, til
þess að bæta úr atvinnuleys-
inu. Myndin t. v. sýnir einn
af atvinnuleysingjunum,
sem fjell í ómeginn meðan
hann stóð í þvögunni og varð
lögreglan að bera hann buri.
Hann hafði verið matarlaus
í marga daga. Og þetta gerist
í landi „velsældarinnar."
Vegna eiturgasnotkunarinn-
arinnar í styrjöldinni miklu
var farið að gera grímur til
þess að verja menn áhrifum
gassins. Þessar grímur koma
líka að haldi á friðartímum,
t. d. í efnagerðum og þegar
bruna ber að höndum. Hjer
sjást menn með gasgrímur
vera að æfa sig á að bera
burt mannslíkan úr gangi,
sem cr fullur af eilurgasi.
Evrópumenn eru fyrir löngu hætiir að furða sig á tiltækjum
Ameríkumanna. Enginn mun því furða sig á þessari mynd:
hún er af verðlaunabelju, sem var boðin sem heiðursgestur í
veislu, sem haldin var í verslunarf jelagi í Chicago. Á myndinni
sjest heiðursgesturinn, eigandi beljunnar og formaður versl-
unarmannafjélagsins.
Þjóðverji hefir smíðaði flugvjel af nýrri gerð, sem vakið hefir
mikla atlxygli, og kölluð er „Bremer-öndin". Það er því líkast
að haft hefði verið endaskifti á venjulegri flugvjel.
Mynd þessi er frá Indlandi, en þar gerir fólk ekki miklar kröfur
til lifsþæginda. Skóarinn á myndinni vinnur undir beru lofti og
þegar miðdegishvíldin kemur hallar hann sjer út af og notar
skó skiftavinanna fyrir kodda, og hvílist eins vel og hinir, sem
liggja í rúminu sínu.
Sjaldan hafa
nokkrir menn
rengið betri við-
tökur í Frakk-
landi en þeir
flugmennirnir
Costes og Bel-
lonte er þeir
komu heim aft-
ur eftir hið
frækilega flug
sitt frá París til
New York. Er
það fyrsta flug
vestur þessa
leið, en þeir
fyrstu sem
'•eyndu það flug
voru þeir Nun-
qesser og Coli,
sem hurfu fyrir
Fult og alt. Cost-
es hefir áður
unnið fjölda
mörg flugafrek
Myndin er tekin
við ráðhúsið í
París.