Fálkinn


Fálkinn - 14.03.1931, Blaðsíða 11

Fálkinn - 14.03.1931, Blaðsíða 11
F A L K I N N 11 Yngstu lesendurnir. Hundrað krónu seðillinn. Eirikur litli kom hlaupandi heim úr skólanum. Hann hentist inn í lít- ið gulkalkaö hús í miðjum bœnum. „Mamma, mamma“, kallaði hann og ætlaði varla að ná andanum, svo mikið var honum niðri fyrir. „Hugsaðu þjer, allur skólinn fær að fara til Kaupmannahafnar tólfta júní. Öll ferðin kostar ekki nema krónu á mann. Jeg má fara líka — er það ekki — manuna þú lofar mjer? Mamma Eiriks stóð og var að strjúka lín fyrir yfirlögregluþjóninn. Hún þurfti að vanda sig, því yfir- löregluþjónnínn var góður viðskifta- maður, sem notaði marga flibba og manséttur á ári. Auk þess var yfir- lögregluþjónninn ríkur maður og allra besti karl í raun og veru. Eftir drykklanga stund sneri móð- irin sjer að Eiriki litla, augu henn- ar flóðu í tárum. „Mammal", hróp- aði hann upp yfir sig og flaug í fang henni, „inamma, ertu lasin?“ „Nei, nei, drengurinn minn, svar- aði hún og strauk hár lians. „Jeg er frísk eins og fiskur. Þetta er ekkert. Nú er jeg aftur glöð, sjáðu! Við höf- um heldur ekki ástæðu til annars, þó vegna það komu tár i augun á mjer?“ „Mamma, mig iangar ekkert til Kaupmannahafnar“ mælti Eirikur og lagði hendurnar um hálsinn á henni, jeg vil þúsund sinnum heldur vera eftir heima hjá þjer“. „Þakka þjer fyrir Eiríkur minn! En nú verðurðu að fara aftur í skól- anii. Við skulum athuga hvað klukk- an er. Nei, það er ennþá kortjer þangað til hringt verður inn, þú get- ur á meðan hlaupið inn til yfir- lögregluþjónsins með þessar skyrtur, hann þarf að nota þær i kvöld. Vertu sæll Eiríkur minn!“ Yfirlögregluþjónninn sat kófsveitt- ur i viðkunnanlegu stofunni sinni, ciginlega var hann búinn að ætla sjer að fá sjer miðdagslúr, en það var eitt og annað, sem hjeit fyrir honum vöku. Fyrst og fremst lá slór hunki af brjefum fyrir framan hann og svo var það ræða, sem hann ætl- aði að halda daginn eftir, sein altaf var í huga hans. Svitadroparnir láku niður á nefið á honum. „Dömur mínar og herrar!“ Nei, það var alt of tilgerðarlegt. „Hátt- virta samkoma!" .... það var barið. að pabba þínum væri kipt svona skyndilega frá okkur. Jeg skai segja þjer Eiríkur minn, að mjer þætti vænt um ef þú gætir farið þessa ferð til Kaupmannahafnar. Við skulum reyna að útvega krónuna, jeg held meira að segja að þú eigir hana til i sparibauknum þínum. Það sem er Iakara, er að þú þyrftir að fá nýja húfu. Og það, sein verra er, þú átt hvorki föt eða skó, sem þú getur verið i. Það er ekki svo litið, finst þjer það? En það sem þó er verst af öllu, er það að buddan henn- ar mömmu þinnar er alveg galtóm Eirikur minn góði. Skilurðu nú livers „Kom inn! nú það ert þú Eiríkur með þvottinn, settu hann inn í svefn- herbergi, nei, það er best jeg fari sjálfur"! Hann stóð á fætur, greip bögg- ulinn og fór með hann inn, en kom strax aftur. „Þú mátt fara, Eirikur“ sagði hann þegar hann kom aftur“ jeg íiefi svo mikið að gera í dag. Eiríkur var að snúa sjer við, en í sama bili opnaði Stína, kona yfir- lögregluþjónsins, dyrnar fram í eld- húsið og kallaði: „Bíddu svolítið við! þú verður að fá kökubita fyrir ómakið! Gerðu svo vel Eirikur minn. Jeg heyri sagt að þú ætlir til Kaupmannahafnar með hinum skólabörnunum. En hvað það verður skemtilegt". „Jeg hugsa — að jeg verði eftir heima —- hjá mömmu“, sagði Eirík- ur og horfði niður fyrir sig. Hin góða kona skildi strax hvern- ig í öllu lá. Hún varð blíðleg á svip- inn og laut niður að honum. „Já, gerðu það drengur minn, gerðu það bara. Mömmu þinni mun þykja leiðinlegt að sjá af þjer. En hlauptu nú af stað. Þú þarft náttúr- lega að flýta þjer í skólann. Vertu nú sæll!“ Eirikur flýtti sjer af stað, og Stina settist í hægindastólinn og fór að vinda upp bandhnykil. Við og við brosi hún kímnislega i áttina til manns síns, sem lijelt áfram að þylja ræðuna. Loksins virtist hann vera búinn. „Nú verðurðu að hlusta á mig kona góð! Heyrðu nú til: Heiðruðuð áheyrendur! Þar sem nú er. . það var. . það átti að vera. ... Ó. . . .“ 'Yf irlögregluþ j ónninn þagnaði, roðnaði og liorfði vandræðalegur til konu sinnar. „Já, þetta er nú meiri vitleysan, þú ert góður heimilisfaðir og dug- legur yfirlögregluþjónn, en þú ert enginn ræðumaður, karl minn! Slepptu því alveg að halda tölur, láttu þá fást við það, sem kunna til þess! Það er nú mitt ráð“. „Já, en það er nú heldur aldrei tími til að setja neitt saman, muldr- aði yfirlögregluþjónninn. „Fyrst kom smiðurinn og truflaði mig. Svo kom Oli Hansson og seinast Sören Mog- ensen með hundrað krónurnar. — Hvað — hvað er þetta —- hvað er orðið af hundraðkrónuselðinum, jeg lagði hann hjerna á borðið! Siðan hefir enginn komið hjerna inn, nema þú og svo jeg! Jú, Eiríkur! það er satt. Drengurinn hefir stolið hon- um!“ „Uss, suss, Kristján“, Stína reyndi að þagga niður í honum. „Drengur, sem hefir eins falleg augu og hann Eiríkur, stelur ekki“. „Augu, augu! hrópaði yfirlögreglu- þjónninn reiður. „Reiddu þig ekki á augu! Það þekki jeg hundrað sinn- um betur en þú, þar sem jeg hefi verið lögregluþjónn. Hvar er þorp- arinn! Nú já í skólanum! Jeg verð að ná í liann áður en hann er bú- inn með alla penigana“. „En hugsaðu þjer hvað þú ætlar að gera!“ sagði Stína alvarleg. „Gjöra, gjöra! Lögreglan veit altaf hvað hún er að gera!“ kallaði hann og þaut út. Yfirlögregluþjónninn talaði við kennarann í skólanum. „Jeg get ómögulega trúað því upp á þennan ágæta pilt“ sagði kennar- inn, „en farið þjer heim með hann og rannsakið þjer málið“. Þegar heim var komið, settist yf- irlögregluþjónninn við borðið og dró Eirík til sin. „Nú spyr jeg þig — hvað heitirðu annað en Eiríkur? Gott! Nú spyr jeg þig Eiríkur Knútur Sveinsson, hvort þú hafir verið inni í þessu herbergi fyrir klukkutíma síðan? spurði hann hátíðlega. „Já vísl var jeg það!“ svaraði Ei- rikur undrandi, „þjer vitið vel að jeg kom. . . .“ „Þegiðu!" hrópaði lögregluþjónn- inn skipandi „þú svarar ekki öðru en þvi sem jeg spyr þig um! Segðu mjer hvað lá á borðinu? „Á borðinu — það lá víst ekkert á því. Hafið þjer ef til vill tínt ein- hverju, sem jeg á að leita að? sagði Eirikur og horfði hreinskilnislega i hin ógnandi augu yfirlögregluþjóns- ins. „Lá þar ekki — iá þar ekki hundr- að krónu seðill, sem þú hefir stolið? svaraðu því drengur!" öskraði yfir- lögregluþjónninn. „Kristján, Kristján!“ heyrðist sagt M á I n i n g a -! ! vorur | Veggfóður | Landsins stœrsta úrval. j MÁLARINN Reykjavík. Miklar birgðir ávalt fyrirliggjandi af nýtisku hönskum i Hanskabúðinni Austnrstrætl 6 i hægindastólnum. Eiríkur varð blóðrauður út undir eyru, nú skildi hann hvað um var að vera. „Jeg hefi aldrei sjeð hundrað krónu seðil“ sagði hann ákveðinn. „Og nú er jeg alveg viss um að það lá ekki neitt á borðinu, en aftur á móti lá samanvöðlaður pappirsmiði á gólfinu....“ „Já, það veit hamingjan, það sá jeg lika!“ mælti Stína og reis á fætur. „Hvaða drasl er þetta, liugsaði jeg með mjer og ætlaði að kasta því í eldinn, en þá þurfti jeg einmilt að fá mjer eitthvað til að vefja bandið mitt upp á. —■ Kristján! Kristján! Það getur þó aldrei verið?“ Hú fór að vefja ofan af hnyklinum með skjálfandi höndum. En hvað hún flýtti sjer, nú var ekki mikið eftir, það sást á pappírssnepil. Yfirlögregluþjónninn greip hann og sljetti úr honum. Hundrað krónur. „Stina! Stína! sagði hann í öngum sínum. En Stína skellihló. „Jú, þú ert sannarlega yfirlög- regluþjónn, svo um munar, Kristján! Þú tekur Eirík fastan, sem er sak- laus, en konan þín, sem er sek fær að sitja eins og ekkert hefði í skor- ist í hægindastólnum sínum. En þú verður að gjalda fyrir þetta. Jeg dæmi þig til að fara með Eirík inn í bæ í dag og kaupa ný föt á hann frá toppi til táar, svo að liann geti tekið þátt í skólaferðinni til Kaup- inannahafnar. En það er annars best að jeg fari með ykkur og sjái um að ] að verði almennilegt efni í þeim. Þú getur þá um leið gefið ínjer efni i kjól. Það er líklega það minsta, sem jeg á skilið i fundarlaún,' af þvi að jeg fann seðilinn". „Stina! Stína! Þú ert slungnari en tíu yfirlögregluþjónar", mælti maður hennan „En það verður að vera eins og ]ni vilt“. ----x---- Eitt af arabisku blöðunum i Jerúsa- lem birtir nýlega frá sagnir ýmsra um, að þrælahald sje tíðkað í Pale- stinu og skorar á ensku yfirvöldin að skerast i leikinn. Segir blaðið, að það sje altítt, að efnalausir bændur, sem eigi erfitt með að sjá börnum sinum farborða, selji (>—8 ára gömul meybörn til 25 ára fyrir 4—500 krón- ur. Kaupendurnir lofi þvi, að ambáttir þessar verði settar i vist á heimilum, en líklegt sje að annað verra taki við börnunum. Ennfremur segir blaðið, að embættisinenirnir sjálfir taki þátt í þessari verslun, og býðst til að sanna það.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.