Fálkinn


Fálkinn - 28.03.1931, Blaðsíða 6

Fálkinn - 28.03.1931, Blaðsíða 6
6 F A L K I N N e lndreglatro/'*t Hinn eini ekta ,,VOSS DESINFECTOR“. Sótthreinsaridi vatn. Dönsk uppgötvun 1907. Gullmedalía: Kaupmannahöfn 1923 og 1925. Gullmedalía og' hæstu verðlaun: Khöfn 1925. Sótthreinsar loftið í svefnherbergjunt og sjúkrastofum og gefur því ilm, sömuleiðis í samkvæmissölum, skrifstofum, leikhúsum, skólum o. s. frv. Sótthreinsar talsímaáhöld, húsgögn, fatnað. Styrkir hárið og hreinsar flösu. I baðvatn, fótaböð, gegn fótasvita og fótasærindum. Eyðir sviða eftir rakstur. Gegn mýbiti, drepur mel og önnur skorkvik. Gott við Ozonlampa, eyðir tóbaksreyk. Fæst alstaðar. Sími Vester 2 x það sem jeg hefi nú, til þess að geta gegnt störfunum sómasam- lega. Jeg fór fram á fjárveitingu við þingið i fyrra — dálítið stóra — en henni var ekki sint. Jeg þykist gera eins vel og liægt er að húast við, og i einlægni sagt geri jeg miklu meira en liægt er að búast við. Hjerna eru margir rnenn, sem hafa unnið alt að 5 timum að meðaltali á dag kaup- laust, umfram sína skyldu, að- eins af því, að jeg liefi beðið þá um það. Sumir þeirra eru eins góðir eins og jeg. Hvað á jeg að gera? Láta mál bíða, þegar jeg veit, að þeim liggur á. En þetta verð jeg að gera“. — Scotland Yard er miðstöð 200 lögreglustöðva víðsvegar um London, en borgin nær yfir 700 enskra fermílna svæði. Eitt þús- und símastöðvar hefir lögreglan til afnota víðsvegar um borgina. Loftskeytasamband er við flestar miðstöðvar lögreglunnar víðsveg- ar um öll hverfi Lundúnaborgar. Og þegar fram í sækir er það ætlunin, að þesskonar firðtal- stöðvar verði um alt ríkið, svo að liægt verði að ná í afbrotamann, sem drýgir einhvern þann glæp, sem hlýtur að komast upp inn- an stundar, áður en hann er kom- inn út fyrir landamærin. Og í sjálfri borginni London er liver sá vagn, sem sendur er út í er- indum Scotland Yard búinn við- tækjum, þannig að liann geti liagað sjer eftir skipunum stöðv- arinnar hvenær sem er.------ Scotland Yard þykist gera eins og hann getur, en eins og áður er sagt, segist hann mundu gera meira ef hann hefði meira fje til umráða. En eigi að síður liefir fjöldinn gerst til þess nú upp á síðkastið, að ganga í skrokk á þessari gömlu, og eflaust heiðar- legu stofnun, og bera lienni á brýn, að hún sje ekki vanda sín- um vaxin. Varð valdandi þessu í fyrstu morðð á konu einni sak- lausri, sem lögreglusveitin gat ekki komist íyrir upptökin að, en svo bættist það á, að formaður deildarinnar, Byng lávarður, hafði verið erlendis meðan á sakamálsrannsókninni stóð, og var það notað til árása á liann persónulega. Og nú er heimtað, að útlendir menn komi til sög- unnar og dæmi um hvort starfs- aðferðir Scotland Yards sjeu rjettar eða ekki. Úr annari átt er þessum árás- um svarað þannig, að ef árásar- menn treysti sjer til að gera bet- ur, þá taki þeir við völdunum og sýni hvað þeir geti. En í sam- bandi við þetta bendir stjórn lög- regluliðsins á, að á árinu 1928 liafi verið komist fyrir 18 morð af þeim 28, sem framin voru í London það ár. „Geri aðrir bet- ur“, hugsa þeir. Og þegar þeir verða fyrir árásum af mönnum, um sem aldrei hafa við lögreglu- mál fengist, dettur þeim ósjálf- rátt í liug, að „hægra sje að kenna heilræðin en halda þau“. Þyí að Scotland Yard her enn nafn með rentu; liann er enn fullkomnasta lögregluúrval veraldarinnar. Eða að minsta kosti segja hæði Þjóð- verjar og Frakkar það, einmitt á sama tíma, sem Bretar sjálfir eru að lmýta í sinn eigin Scotland Yard. Samkvæmt síðustu skýrslum opin- berum eru nú 3.509.000 útvarpshlust- andur i Þýskalandi, —- þrátt fyrir atvinnuleysið og fjárkreppuna þar i landi. ----x----- Fyrir tveim árum skipaði Banda- rikjaforseti ellefu manna nefnd til þess að rannsaka og gera tillögur um bannið í Bandaríkjunum. Átti nefndin að draga saman í eitt reynslu þá, sem fengist hafði af kostum og lóstum laganna, safna allskonar hag- skýrslum þeiin viðvíkjandi, og því um líkt. Og nú er nefndaxálitið kom- ið. Er það 90.000 orð á lengd en nefnd- arkostnaðurinn hefir orðið 500.000 dollara, eða 5 dollarar og 45 cent á orðið. En það sem verst þykir um álitið er, að það er svo loðið, að blöð- in sem banni fylgja telja það eindreg- ið með sjer og andbanningar eru í ekki minni vafa um, að álilið sje ein- dregið á móti bannlögunum og með afnámi þeirra. Að því er sjeð verður hafa sjö nefndarmenn gert að tillögu sinni að lögin verði endurskoðuð, en hinir fjórir telja rjett að reyna bann- lögin nokkur ár enn, í óbreyttri mynd. ----x—— Eins og kunnugt er liefir Mussolini varið ógrynnum fjár til þess að leita að fornmenjum i Ítalíu síðan liann komsl til valda. Nýlega Iiafa fundist skamt fyrir sunnan Róm rústir af lieilli húsaþyrpingu og Iiefir eitt hús- ið verið afar skrautlegt og stórt, með flísamyndum í gólfum og höggmynd- um, marmaraveggjum og súlnaröðum. Þykir víst að þetta sje sveitabústað- ur Nerós keisara. ----x---- Páfinn hefir komið sjer upp út- varpsstöð í Vatikaninu og var liún vígð 12. febrúar. Hjelt páfinn þá ræðu á látínu. Frá stöðinni verður útvarp- að daglega fyrirlestrum kirkjulegs efnis, svo og sálmasöng. ----x---- Woldemaras, fyrrum einvaldsstjóra í Letlandi hefir nýlega- verið stefnt fyrir ríkisrjett; en hann kærður fyr- ir landráð. Um sama leyti liefir stjórn in ákveðið, að koma fram breylingu á stjórnarskránni þess efnis, að for- setakjör hins núverandi rikisforseta, Smetona, verði gert gildandi meðan liann lifir. Misjöfn eru kjörin mann- anna. ----x---- Ný hraðlest var nýlega tekin til notkunar á brautinni milli Milano og Venezia. Á lestin að fara þessa leið á 2 tímum 35 mínútum, en með því móti verður meðalhraðinn 105 kíló- metrar á klukkustund. Suma kaffa leiðarinnar fer lestin með 140 kiló- metra hraða á klukkuslund, og er það mesti járnbrautarliraði í Evrópu. ----x---- Helina Rúminíuprinsessa, sem ekki vildi taka sáttum við Carol konung, er nú komin til Parísar og jiaðan berst nú sú fregn, að hún sje ekki orðin leið á hjónaböndunum, þrátt fyrir það að Carol garmurinn reyndist henni illa. En ætli nú að fara að gifta sig. Og bóndaefnið er rúmenskur liðsforingi af lágum stigum. Er sagt að Maria drotning hafi gert sem hún gat til að afstýra þessu, en það hafði ekki tek- ist. nú vantar ekkert nema María gamla giftist götusópara eða eitthvað þesskonar. •——x----- í nunnuklauslrinu i Cambery dó nýlega kona, sem einu sinni var á allra vörum i Evrópu fyrir auðlegð og fegurð. Hún var dóttir italska for- sætisráðherrans Merchese Rudini og giftist miljónamæringnum Carlotti. D’Annunzio liefir notað hana sein fyr- irmynd í skáldsögunni „Dama del Garda“. Ilún gaf 125 miljónir líra til líknarstarfsemi eftir lát föður síns og gekk siðan i klauslurreglu karmelíta og ljet byggja klausiur fyrir þessa reglu bæði í Ítalíu og Frakklandi.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.