Fálkinn


Fálkinn - 28.03.1931, Blaðsíða 9

Fálkinn - 28.03.1931, Blaðsíða 9
F A L K I N N 9 Hefir dr. Alfred Wegener komist lífs af i haust, er liann fór til fjelaga sinna Georgi og Sorge? Hefir hann komist til þeirra. Og hafi hann komist þangað: degja þeir fjelagar ekki úr hungri og vosbúð í vetur, áður en þeim getur komið hjálp í apríl í vor frá vesturstöð leiðangursins? Um fátt er nú meira talað hjer á landi, af erlendum viðburðum og er sú ástœða meðfram til þessa, að þá tvo íslendinga, sem heim eru komnir úr leið- angrinum hefir deili talsverl á um þetta mál. Iívað sem öðru líður verður ekki um það deilt, að þessi för Wegeners inn á jökulinn sje allmikil liætiuför, ekki síst þegar þess er gætt, að hún var ekki framkvæmd í þeirri mynd, sem áformað var, flestir leiðangursmennirnir sneru aftur á miðri leið og hinir sem áfram hjeldu komust ekki með svo mikinn farangur, sem þeir höfðu ætlað sjer. Og víst er um það, að dr. Wegener hefir farið þessa ferð út úr neyð, til þess að flytja þeim, sem bæki- stöð höfðu lí miðjöklinum vistir og eldsneyti, vegna þess að hann áleit þá ekki nógu birga til vetursetunnar. En flutningar lil þeirra höfðu orðið minni en til stóð, vegna þess að mótor- sleðar þeir, sem nota átti á jöklinum höfðu brugðist algjörlega. Efst á myndinni sjest tjaldstaður leiðangursins á vesturströnd- inni en að neðati dr. Wegener og flutningar á íslenskum hest- um upp á jökul. Ein fullkomnasta útvarpsstöð, sem reist hefir verið ennþá í heiminum er nýja útvarpsstöðin við Berlín. Hefir hún kostað ógrynni fjár, og ber myndin vott um, að svo hljóli að hafa ver- ið, því að byggingarnar einar eru ekkert smásmíði. Morðmál eiti hefir vakið afar mikla athygli í Englandi nýlega. Kaupmaður nokkur, Rouse að nafni hefir verið dæmdúr til dauða fyrir morð án þess að hann hafi jáiað á sig morðið eða að sannanir hafi fengist fyrir því að hann hafi drýgt það. Hann var dæmdur á líkum. Fólk hefir mótmælt þessum dómi svo éindregið, að liklegt þykir að fullnæging hans verði frestað. Sýnir myndin hóp fyrir utan rjettarsalinn, en í horninu er mynd af frú Rouse, sem skrifað hefir manni sínum í fangelsið og segist trúa á sakleysi hans. Myndin hjer að ofan er telcin i Berlín um nýjárið, þegar Þjóð- verjar voru að halda hátíðlegt 60 ára afmæli ríkiseiningarinn- ar þýsku. Sýnir myndin heiðursfylkingu, sem hefir staðnæmst fyrir utan þinghús lýðveldisins. Athöfnin var mjög óbrotin og látlaus, og mundi eflaust hafa verið öðru visi en hún hefði farið fram í tíð Vilhjálms keisara.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.